Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 13:00

Evróputúrinn: Greg Chalmers um muninn á áströlskum og bandarískum ungkylfingum

Nú er nýlokið á Lake Karrinyup golfvellinum í Perth, Vestur-Ástralíu, ISPS Handa Perth International mótið, sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Greg Chalmers var einn af „heimamönnunum“ sem kepptu og nældi sér í 10. sætið, sem var besti árangur ástralskra kylfinga í mótinu.  Chalmers lék á samtals 7 undir pari (68 73 69 71). Chalmers er auk þess einn af mest áhugaverðu kylfingunum á Túrnum og í nýlegu viðtali talaði hann m.a. um það hvernig væri að vera í forystu snemma í móti og muninn á áströlskum og bandarískum ungkylfingum í því sambandi. „Ég held að þetta sé eitt af því erfiðasta fyrir flest fólk (þ.e. að vera í forystu snemma í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 09:30

Evróputúrinn: Boo Van Pelt sigraði í Perth

Það var Bandaríkjamaðurinn Boo Van Pelt sem sigraði á ISPS Handa Perth International nú fyrir skemmstu.  Van Pelt spilaði á samtals 16 undir pari, 272 höggum (70 67 67 68).  Hann spilaði lokahringinn af nokkru öryggi fékk 6 fugla og 2 skolla. Tveimur höggum á eftir Van Pelt varð landi hans, Ryder Cup liðsmaðurinn 2012 Jason Dufner á samtals 14 undir pari, 274 höggum (71 67 67 69). Spánverjinn Alejandro Cañizares varð síðan í 3. sæti á 11 undir pari 277 höggum (65 73 71 68). Í 4. sæti varð Nýsjálendingurinn Michael Hendry á samtals 9 undir pari. Fimmta sætinu deildu síðan 5 kylfingar: Paul Casey, sem virðist vera að ná sér Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 09:00

Fegurðardrottning meðal keppenda á Ladies Indonesia Open – Kongkapan Patcharatchuta sigraði

Í gær lauk í Jakarta Ladies Indonesia Open, en það mót var það 9. á Ladies Asian Golf Tour og það kvennagolfmót með mesta verðlaunaféð í Suðaustur-Asíu, eða $ 30.000. Mótið hófst á fimmtudaginn og eftir 1. dag var indverski atvinnukylfingurinn Smriti Mehra í forystu s.s. Golf 1 greindi frá SJÁ HÉR:  Eftir 2. dag mótsins leiddi áhugamaður frá Malasíu, Kelly Tan og í mótinu sigraði síðan kylfingur frá Thaílandi í gær: Kongkapan Patcharatchuta; var á samtals 7 undir pari, 209 höggum (71 70 68). Til þess að sjá úrslitin á Ladies Indonesia Open SMELLIÐ HÉR:  Meðal þekktra stjarna Asíu, sem þátt tók í mótinu, var sigurvegarinn í Ungfrú Indónesiu, 2012, indónesíska Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 07:50

LPGA: Suzann Pettersen sigraði á Hana Bank Championship eftir 3 holu bráðabana við Catrionu Matthew

Það voru norska frænka okkar Suzann Pettersen og Catriona Matthew frá Skotlandi sem voru efstar og jafnar eftir 72 spilaðar holur á Ocean golfvelli, Sky 72 golfklúbbsins, í Incheon, í Suður-Kóreu á LPGA KEB Hana Bank Championship. (Til þess að komast á heimasíðu klúbbsins  SMELLIÐ HÉR: (aðeins fyrir þá sem tala kóreönsku) en fyrir þá sem vilja sjá góða yfirlitsmynd af vellinum, sem er einn af hönnunargimsteinum Gullna Bjarnarins, Jack Nicklaus SMELLIÐ HÉR: ) Báðar voru þær á samtals 11 undir pari, 205 höggum; Suzann (63 68 74) og Catriona (68 70 67).  Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra og var 18. holan spiluð 3 sinnum. Í tveimur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 07:30

PGA: Davis Love III og Jim Furyk efstir á McGladrey Classic fyrir lokahringinn – hápunktar og högg 3. hrings

Það eru Davis Love III fyrirliði liðs Bandaríkjamanna í Ryder Cup og maðurinn með skrýtnu sveifluna Jim Furyk eru í efsta sæti á McGladrey Classic mótinu, sem fram fer á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgíu. Báðir eru þeir á samtals 13 undir pari, 197 höggum; Love III (65 66 66) og Furyk (66 65 66). Davis Love III er e.t.v. kominn of neðarlega fyrir sinn smekk á peningalistann (104. sætið) en með sigri myndi hann koma sér í 55. sætið og þar með endurnýja kortið sitt á PGA Tour fyrir 2013 keppnistímabilið. Af hverju Jim Furyk er að taka þátt í þessu móti er óljósara – hann er í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2012 | 21:15

Af týndum golfboltum í Arizona og snákum með magapínu

Í Arizona  er e.t.v. best að sætta sig við það þegar golfboltar týnast. Það er betra að taka víti og halda áfram…. Ekki fara að leita utan „röffsins“ í kjarragróðri, í sandinum og innan um kaktusa. Það eru ástæður fyrir að ekki er farið að leita að boltanum innan um kaktusana sérstaklega þegar það er þurrt og steikjandi hiti. Ástæðurnar má sjá í myndaseríunni hér að neðan: Heimild: The kokopelligolfstance


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2012 | 20:55

Afmæliskylfingur dagsins: Kristján Þór Kristjánsson – 20. október 2012

Það er Kristján Þór Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kristján Þór er fæddur 20. október 1967 og er því 45 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.  Kristján Þór er kvæntur Helgu Loftsdóttur.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Kristján Þór Kristjánsson (45 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Tsuneyuki „Tommy“ Nakajima, 20. október 1954 (58 ára);  David Lynn, 20. október 1973 (39 ára); Veronica Zorzi, 20. október 1980 (32 ára);  Danielle Kang, 20. október 1992 (20 ára stórafmæli!!!) (Sjá nýlega grein Golf 1 um Danielle Kang með því að SMELLA HÉR: ) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2012 | 20:00

GS: Dagur Ebenezersson og Haukur Armín Úlfarsson sigruðu á haustmótaröð GS og Bílahótel nr. 2 í dag

Það voru um 110 kylfingar sem tóku þátt í haustmótaröð GS og Bílahótels í dag í köldu en fallegu haustveðri.  Þetta er 2. mótið í haustmótaröðinni. Leikformið var bæði punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar. Á besta skorinu í höggleiknum var Dagur Ebenezersson, úr Golfklúbbnum Keili (GK). Dagur lék á  3 undir pari, 69 glæsihöggum!!!! Frábært hjá Degi!!!  Dagur fékk 5 fugla (á 1.; 9., 11.; 15. og 16. braut) og 2 skolla (á 3. og 18. braut). Í punktakeppninni sigraði Haukur Armín Úlfarsson, í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR). Hann var á 43 frábærum punktum!!! Úrslit að öðru leyti í punktakeppninni urðu eftirfarandi: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2012 | 16:45

Dagatal Paulu Creamer 2013 komið út í Japan

Það er kominn þessi tími ársins:  Dagatal Paulu Creamer er komið út í Golf Digest Japan. Paula býr til nýtt dagatal fyrir GDJ á hverju ári og það er bara til sölu í Japan. Einnig er hægt að nálgast eintak á eBay.  Einnig er ef heppnin er með hægt að finna eintök hjá öðrum seljendum. Ef þið getið lesið japönsku  SMELLIÐ HÉR:   (ef ekki smellið líka til að skoða myndir 🙂


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 20. 2012 | 14:00

LPGA: Suzann Pettersen í forystu fyrir lokahring Hana Bank Championship

Suzann Pettersen er enn í forystu fyrir lokahring Hana Bank Championship. Suzann er samtals búin að spila á 13 undir pari, 131 höggi (63 68) og hefir 5 högga forskot á þá sem næst kemur, So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu. So Yeon Ryu er búin að spila á samtals 8 undir pari, 136 höggum (66 70). Í 3. sæti er síðan landa Ryu, Se Ri Pak, sem hún deilir með þeim Yani Tseng og þýska W-7 módelinu fyrrverandi Söndru Gal. Lexi Thompson er síðan T-6 ásamt 3 öðrum.  Lokahringur mótsins verður leikinn á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Hana Bank Championship  SMELLIÐ HÉR: