Ragnheiður Jónsdóttir | október. 21. 2012 | 07:30

PGA: Davis Love III og Jim Furyk efstir á McGladrey Classic fyrir lokahringinn – hápunktar og högg 3. hrings

Það eru Davis Love III fyrirliði liðs Bandaríkjamanna í Ryder Cup og maðurinn með skrýtnu sveifluna Jim Furyk eru í efsta sæti á McGladrey Classic mótinu, sem fram fer á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgíu.

Báðir eru þeir á samtals 13 undir pari, 197 höggum; Love III (65 66 66) og Furyk (66 65 66). Davis Love III er e.t.v. kominn of neðarlega fyrir sinn smekk á peningalistann (104. sætið) en með sigri myndi hann koma sér í 55. sætið og þar með endurnýja kortið sitt á PGA Tour fyrir 2013 keppnistímabilið.

Af hverju Jim Furyk er að taka þátt í þessu móti er óljósara – hann er í miklu öryggi á peningalistanum 19. sætinu en sigri hann fer hann með verðlaunafénu ($ 720.000) í 9. sæti peningalistans.

Indverjinn Arjun Atwal, sem var í forystu í gær er 2 höggum á eftir þeim félögum á samtals  11 undir pari, 199 höggum (67 63 69) ásamt DJ Trahan (66 67 66), en þeir deila 3. sætinu.  DJ Trahan er ávallt meðal efstu manna á þessu móti því hann á í eilífðarbaráttu að koma sér meðal 125 efstu á peningalistanum.  Sem stendur er Trahan í 151. sæti peningalistans, en nái hann 3. sætinu í þessu móti er spáð að hann komist í 123. sætið og rétt sleppi innan markanna.

Í 5. sæti í mótinu er nýliðinn Bud Cauley á 10 undir pari (Cauley er í öruggu sæti á peningalistanum því 41.)

T-6 eru 5 kylfingar: sá sem á titil að verja Ben Crane, Will Claxton og Charles Howell III frá Bandaríkjunum; Matthew Goggin frá Ástralíu og Rory Sabbatini frá Suður-Afríku. Allir hafa þeir spilað á samtals 9 undir pari.

Til þess að sjá stöðuna eftir 3. hring McGladrey Classic mótsins SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá hápunkta McGladrey Classic mótsins SMELLIÐ HÉR:

Til þess að sjá högg 3. dags á McGladrey Classic mótinu, sem Will Claxton átti SMELLIÐ HÉR: