Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2012 | 15:00

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (26. grein af 34): Maria Beautell

María Beautell er sú síðasta af 7 kylfingum sem urðu í 9. sæti í Q-school Evrópumótaraðar kvenna, sem verður kynnt hér.

María fæddist í St. Cruz de Tenerife 13. mars 1981 og er því 31 árs. Foreldrar hennar eru Carlos Beautell og Rosa Maria Largo frá Tenerife á Spáni. Sem áhugamaður varð María spænsku meistari í golfi 1998 og átti sæti í spænska kvennalandsliðinu í golfi.  Hún tók sem áhugamaður m.a. þátt í British Girls Championship.

Á árunum 1999-2002 var María í sama háskóla í Bandaríkjunum og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir og spilaði með golfliði Wake Forest.

María gerðist atvinnumaður í golfi 1. apríl 2004 (alveg satt 🙂  Hún komst strax á Evrópumótaröð kvenna og spilaði á henni 2005-2008 en síðastnefnda árið datt hún út og hlaut ekki kortið sitt að nýju vegna slaks gengis 2008.  Hún var í lægð 2009 og 2010, en 2010 spilaði hún á 1 móti á LEt og síðan 2 árið  2011. Hún endurnýjaði síðan skorkort sitt með því að deila 9. sætinu í Q-school á La Manga s.s. fyrr greinir.

Áhugamál Maríu eru ljósmyndun, náttúran, að fara á ströndina og hlusta á góða tónlist. Hún hefir látið hafa eftir sér að ef hún væri ekki atvinnukylfingur myndi hún vilja vinna sem ljósmyndari fyrir National Geographic Magazine. María býr í Santa Cruz de Tenerife og á systur sem líka spilar á LET, Söru Beautell.