Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 01:45

LPGA: Cristie Kerr sigraði á Lorena Ochoa Invitational

Það var bandaríski kylfingurinn Cristie Kerr sem stóð uppi sem sigurvegari í Lorena Ochoa Invitational í Guadalajara í Mexíkó. Cristie lék á samtals 16 undir pari, 272 höggum (67 69 67 69) og hlaut að launum $ 200.000,- (u.þ.b. 24 milljónir íslenskra króna). Sigurinn var naumur en hún átti aðeins 1 högg á þær sem næstar komu: Inbee Park frá Suður-Kóreu og Angelu Stanford frá Bandríkjunum. Fjórða sætinu deildu nr. 2 á Rolex-heimslista kvenna Stacy Lewis og Candie Kung frá Tapei á samtals 12 undir pari, hvor  Í sjötta sæti voru  síðan tvær frá Suður-Kóreu: Haeji Kang og So Yeon Ryu, á 11 undir pari, hvor. Til þess að sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 12. 2012 | 01:00

PGA: Charlie Beljan vann fyrsta sigur sinn á PGA Tour á Children´s Miracle Network Hospitals Classic

Charlie Beljan sigraði í fyrsta sinn á PGA Tour nú fyrr í kvöld þegar hann sigraði á Children´s Miracle Network Hospitals Classic.  Hann var s.s. margoft hefir verið fjallað um í 139. sæti peningalista mótaraðarinnar en með sigrinum fer hann í 63. sæti listans og er öruggur með kortið sitt á PGA Tour næsta keppnistímabil. Fyrir sigurinn hlýtur hann auk þess $ 846.000 (u.þ.b. 120 milljónir íslenskra króna).  Það ætti að draga úr kvíða hans en hann er nýbakaður faðir og var í kvíðakasti mestallt mótið, þannig að hann var með andnauð, aukinn hjartslátt og blóðþrýsting og doða í handleggjum.  Hann hefir lýst því yfir að hann ætli að taka á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 21:00

Viðtalið: Axel Bóasson, GK.

Axel Bóasson er einn af þeim afrekskylfingum sem spilar í bandaríska háskólagolfinu. Hann stundar nám og spilar með golfliði Mississippi State. Axel er, án þess að á nokkurn sé hallað, einn af okkar albestu kylfingum, varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik 2011.  Hér fer viðtalið við Axel: Fullt nafn: Axel Bóasson. Klúbbur: Golfklúbburinn Keilir. Hvar og hvenær fæddistu?  Reykjavik 3. júní 1990. Hvar ertu alinn upp? Garðabæ. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Allir spila golf nema kærastan, mamma og pabbi og systir og bróðir minn. Hvenær byrjaðir þú í golfi? 8 ára. Hvað varð til þess að þú byrjaðir í golfi?  Allir í fjölskyldunni spiluðu og mig langaði að prufa þetta. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 20:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gunnar Ringsted – 11. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Gunnar Ringsted. Gunnar er fæddur 11. nóvember 1952 og á því 60 ára stórafmæli í dag!!! Gunnar býr í Borgarnesi og er kvæntur Jenný Lind Egilsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið: Gunnar Ringsted (60 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Fuzzy Zoeller, 11. nóvember 1951 (61 árs);  Róbert Garrigus, 11. nóvember 1977 (35 ára) ….. og …… Ólöf Baldursdóttir (45 ára) Þórhallur Gunnarsson Dagur Freyr Bjarnason Arnar Unnarsson (45 ára) Nfih Nemendur (84 ára) Örvar Gunnarsson (20 ára) Margrét Gauja Magnúsdóttir (36 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 11:00

PGA: Hápunktar og högg 3. dags á Children´s Miracle Network Hospitals Classic

„Ég veit ekki hvernig ég er kominn þangað sem ég er í augnablikinu (þ.e.a.s. í 1. sætið á Children´s Miracle Network Hospitals Classic mótinu)“ sagði Charlie Beljan, degi eftir að þjást af andnauð, auknum hjartslætti, háum blóðþrýstingi og doða í handleggjum. Ég held að mesta hagræðið fyrir mig hafi verið að ég var ekki að hugsa um golf eða púttin eða vippin eða höggin eða sveilfuna.“ „Ég var bara að hugsa um heilsuna, eitt högg í einu, eina holu í einu. Þessar 36 holur voru bara fínar.“ „Ég myndi líklega segja að 99,9% líkur hefðu verið á því að ég myndi ekki spila á laugardeginum,“ sagði Beljan. „En ég kom Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 10:15

Evróputúrinn: Matteo Manassero sigraði með erni eftir 3 holu bráðabana við Oosthuizen!!!

Það var æsilegur endir á Barclays Singapore Open.  Ítalska táningnum Matteo Manassero tókst að knýja fram umspil við Louis Oosthuizen á 72. og síðustu holu venjulegs hringjafjölda í 4 hringja móti,  þar sem hann fékk frábæran fugl, eins og hann hafði reyndar fengið tvo dagana þar áður.  En það var svolítið annað að gera þetta undir pressu. Eftir 4 spilaða hringi voru Oosthuizen og Manassero jafnir á 13 undir pari, 271 höggi; Manassero (70 68 64 69) og Oosthuizen (70 69 65 67). Oosthuizen og Manassero fóru því í bráðabana. Á fyrstu holu umspils, sem var sú 18. fengu báðir par – en báðir voru þar áður búnir að fá fugl á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 09:15

Evróputúrinn: 73 komust á lokaúrtökumótið í Girona

Nú liggur fyrir hverjir þeir 73 eru sem spila um kortin sín á Evrópumótaröð karla á PGA Catalunya golfvellinum í Girona, 24.-29. nóvember n.k. Því miður er Birgir Leifur „okkar“ Hafþórsson, ekki þar á meðal en hann er einn af þeim 303, sem spiluðu á 2. stigi úrtökumótsins. Annað stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina fór fram á 4 mismunandi stöðum um allan Spán, en Birgir Leifur spilaði á El Valle í Murcia, en þar sigraði Ítalinn Nicolo Ravanna. Aðrir sigurvegarar á 2. stigi voru þeir Liam Bond frá Wales, sem vann á Lumine golfvellinum, Skotinn Jamie McLeary, sem sigraði á El Saler og Hollendingurinn Tim Sluiter, sem sigraði á Las Colinas í Campoamor Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 08:15

LPGA: Inbee Park efst fyrir lokahring Lorena Ochoa Invitational

Það er Inbee Park, frá Suður-Kóreu,  sem leiðir fyrir lokahring Lorena Ochoa Invitational í Guadalajara, Mexíkó. Park er samtals búin að spila á 15 undir pari, 201 högg (67 68 66).  Inbee Park er búin að eiga frábært keppnistímabil. Hún er aðeins 58 punktum á eftir Stacy Lewis í að verða leikmaður ársins á LPGA (og nú eru bara 5 mót eftir á dagskrá LPGA það sem eftir er ársins). Tvo titla er hún svo til  búin að tryggja sér hvort sem hún vinnur í Mexíkó eða ekki – hún er með lægsta meðaltalsskorið, sem hún hlýtur Vare Trophy fyrir og er efst á peningalista LPGA. Í 2. sæti er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 08:00

Tiger Woods verðmætasti íþróttamaðurinn skv. Forbes …. og Nike verðmætasti íþróttavöruframleiðandinn

Á lista, sem birtist nú nýverið yfir vermætustu vörumerkin í íþróttum lýsti Forbes því að Tiger væri vermætasta vörumerkið hvað varðaði íþróttamenn og Nike verðmætasta vörumerkið þegar kæmi að íþróttavöruframleiðendum. Verðmæti íþróttamanna var þannig reiknað út að verðlaunafé viðkomandi íþróttamanns var dregið frá þeirri fjárhæð sem viðkomandi fékk í styrki og auglýsingasamninga og þannig fékkst að verðmæti Tiger væri  $38 milljónir. Hann var annar af tveimur kylfingum sem voru meðal 10 efstu íþróttamanna heims, en hinn var Phil Mickelson, sem var jafn öðrum í 3. sæti  og  $26 milljóna virði. Tennisleikarinn Roger Federer var í 2. sæti á eftir Tiger,  $29 milljóna virði, meðan Mickelson deildi 3. sætinu eins og áður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2012 | 07:00

Paul Lawrie heiðraður fyrir frábært keppnistímabil 2012 í Aberdeen

Framkvæmdastjóri Ryder Cup í Evrópu, Richard Hills var á meðal 400 gesta í boði Deeside golfklúbbsins í Aberdeen, Skotlandi til heiðurs Paul Lawrie, miðvikudagskvöldið  7. nóvember nú í s.l. viku. Boðið fór fram í Marcliffe hótelinu í Aberdeen, til heiðurs sigurvegara Opna breska 1999, Paul Lawrie, sem sigrað hefir tvívegis á þessu ári á Evrópumótaröðinni þ.e.  í Commercialbank Qatar Masters styrktu af Dolphin Energy  og í Johnnie Walker Championship í  Gleneagles, Skotlandi. Þessir tveir sigrar urðu m.a. til þess að hinn 43 ára Lawrie hlaut sæti í Ryder Cup liði Evrópu sem sigraði svo eftirminnilega á sunnudeginum í Medinah í tvímenningsleikjunum. Paul Lawrie vann Brandt Snedeker 5&3. Framkvæmdastjóri Deeside golfklúbbsins, sem Lawrie Lesa meira