
Matthew Guyatt leiðir á Talisker Masters eftir 1. dag – Adam Scott í 2. sæti
Ástralinn Matthew Guyatt leiðir á Talisker Australian Masters sem hófst fyrr í morgun hinum meginn á hnettinum. Hann kom í hús á 7 undir pari, 65 höggum; fékk 8 fugla og 1 skolla.
Adam Scott er í 2. sæti eftir 1. dag, fékk fugla á seinni 9 og lauk hringnum á 5 undir pari, 67 höggum Scott byrjaði á 10. holu og var á parinu eftir fyrri 9 (þ.e. seinni 9 á vellinum, Kingston Heath) en fékk síðan 4 fugla í röð og bætti einum við á 7. holu. Hann deilir 2. sætinu með landa sínum, Michael Landry og Ryder Cup hetju evrópska liðsins Ian Poulter, sem á titil að verja.
Sex ástralskir kylfingar deila síðan 5. sætinu þ.á.m. Peter O’Malley , en allir eru þeir á 4 undir pari, 68 höggum.
Graeme McDowell, sigurvegari Opna bandaríska risamótsins 2010 kom í hús í morgun á 1 undir pari, 71 höggi og deilir 20. sætinu ásamt 14 öðrum kylfingum.
Til þess að sjá stöðuna á Australian Masters eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024