Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2012 | 09:50
Frægir kylfingar: Dennis Quaid

Dennis William Quaid er með betri kylfingum í Hollywood, með 5 í forgjöf. Hann er fæddur 9. apríl 1954 í Houston, Texas og því 58 ára á árinu. Hann kom fyrst fram á sjónarsviðið svo tekið væri eftir í kringum 1980 og síðan þá hefir hann leikið í fjölmörgum kvikmyndum meðal þeirra þekktari eru: Breaking Away, The Long Riders, The Right Stuff, Enemy Mine, Great Balls of Fire!, The Big Easy, Far from Heaven, The Rookie, The Day After Tomorrow, Traffic, Vantage Point, Footloose, Frequency, Wyatt Earp, The Parent Trap, Soul Surfer and Innerspace. Eins var hann í hlutverki annars frægs kylfings, Clinton forseta í kvikmyndinni The Special Relationship frá árinu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2012 | 08:15
LPGA: Hverjir eru bestu 5 nýliðar ársins 2012 á LPGA?

Hér verður farið yfir þá 5 nýliða á LPGA sem staðið hafa sig best á árinu: So Yeon Ryu – Hún hlaut titilinn nýliði ársins á LPGA enda hefir hún átt eitt besta nýliðaár í sögu mótaraðarinnar. Hún komst í gegnum 23 niðurskurði af 24 mótum sem hún tók þátt í og var í 6. sæti á peningalistanum. Hún sigraði á Jaime Farr Toledo Classic, hún varð 12 sinnum meðal 5 efstu í mótum LPGA á árinu og 16 sinnum meðal efstu 10. Hún er nú þegar nr. 8 á Rolex-heimslista kvenna og ef hún getur snúið einhverjum af topp-5 áröngrum sínum í sigur gæti hún farið alla leið á toppinn. Lexi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 23:59
Golfgrín á laugardegi

Áttræður Bandaríkjamaður flutti til nýrrar borgar og gekk þ.a.l. í nýjan golfklúbb. Þegar hann kom í fyrsta sinn í klúbbhúsið litu nokkrir klúbbfélagar á hann með ákefð í augum: aahhhh þarna væri eldri borgari sem e.t.v. væri hægt að sigra í veðmálum (alltaf til einhverjir kylfingar sem vilja vinna pylsur eða pening af þeim, sem þeir telja ekki vera eins góða kylfinga og þeir sjálfir!) Áttræði kylfingurinn gerði ekkert til þess að draga úr eftirvæntingu þeirra. „Ég sló bara ansi vel í dag,“ sagði hann „en ég á í nokkrum vandræðum með að komast úr djúpum glompum.“ Þeir kylfingar sem ætluðu sér að græða á gamla manninum hugsuðu „Aha! Völlurinn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 18:00
Fyrirhugað er að gera breytingar á Old Course

Fyrirhugað er að betrumbæta einn þekktasta golfvöll heims; sjálfan Old Course, „vöggu golfsins“ – á St. Andrews, Skotlandi, annan uppáhaldsgolfvalla íslenskra kylfinga erlendis, skv. nýlegri könnun Golf 1. Breytingarnar á að gera til þess að gera völlinn meira krefjandi fyrir bestu kylfinga heims, sem snúa aftur til „heimilis golfsins“ á Opna breska risamótið, sem fyrirhugað er að halda að nýju á St. Andrews árið 2015. Hinn virti golfvallararkítekt Martin Hawtree hefir verið ráðinn af St. Andrews Links Trust, sem sér um allar framkvæmdir á Old Course og 6 öðrum völlum á „heimili golfsins“ og The R&A Championship Committee, sem sér um framkvæmdarhlið á þessu elsta móti golfsins (Opna breska), til þess að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 16:00
Evróputúrinn: Sergio Garcia og Jeev Milkha Singh jafna vallarmetið á Earth Course í Dubai

Það er skammt stórra högga á milli. Í gær átti Spánverjinn Sergio Garcia, mjög einkennilegan hring, sem þó varð til þess að honum tókst að jafna vallarmetið á Earth Course á Jumeirah golfstaðnum, þar sem Dubai World Tour Championship, lokamót Evrópumótaraðarinnar fer nú fram um þessa helgi. Vallarmetið á Earth Course er 64 högg. Hringur Garcia var einkennilegur því skorkort hans var mjög skrautlegt, ekkert jafnvægi allar tegundir skora: tveir ernir, níu fuglar, þrjú pör, tveir skollar og einn skrambi. Í gær var Garcia í 18. sæti en eftir daginn í dag er hann kominn niður í 31. sætið , eftir „slæman“ hring upp á 73 högg þ.e. spilaði á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 13:30
Evróputúrinn: Luke Donald og Rory McIlroy leiða á Dubai World Tour Championship fyrir lokadaginn

Það eru heimsins besti, Rory McIlroy og Luke Donald sem deila 1. sætinu eftir 3. dag á Dubai World Tour Championship. Rory og Luke eru búnir að spila á samtals 17 undir pari, 199 höggum, hvor: Rory (66 67 66) en Luke Donald (65 68 66). Donald jók skollafrían holufjölda sinn á Earth golfvelli Jumeirah golfstaðarins í Dubai í 100 holur – en síðasta skiptið sem hann missti högg á vellinum var á 8. holu á 2. hring fyrir ári síðan. McIlroy tókst að halda í við Donald fékk að vísu skolla á 1. braut en fylgdi því eftir með 5 fuglum og erni á löngu 14. brautinni. Í 3. sæti eru tveir risamótsmeistarar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 13:00
Tár trúðsins – Christina Kim þunglynd (2. grein af 8)

Það kemur örugglega mörgum á óvart að kylfingurinn hressi og káti Christina Kim hafi þessa dagana verið greind með þunglyndi. Hér fer 2. hluti í góðri grein Stinu Sternberg hjá Golf Digest Women, sem birtast á í jólablaði Golf Digest þ.e. blaði desembermánaðar n.k: „Persónulegt helvíti Kim byrjaði nógu sakleysislega með bakmeiðslum sem hún hlaut í nuddi fyrir mót LPGA í Malasíu, haustið 2010. Kim er þekkt fyrir hressilegan, athyglissjúkan stíl og mikla lengd af teig. En skyndilega var Kim að berjast við að spila án þess að finna til verkjar – sem var nokkuð til að hafa áhyggjur af – hún tapaði 2 1/2 kylfulengd í fjarlægð. „Ég hræðist Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 11:55
Afmæliskylfingur dagsins: Auðunn Einarsson – 24. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Auðunn Einarsson. Auðunn er fæddur 24. nóvember 1975 og er því 37 ára. Auðunn er klúbbmeistari Golfklúbbs Ísafjarðar 2011 og 2012. Hann varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSí, með liði GK, árið 2008… og þá er aðeins fátt eitt talið af afrekum Auðunns í golfíþróttinni. Auðunn er mörgum að góðu kunnur sem frábær golfkennari, var lengi starfandi hjá Golfklúbbnum Keili en eftir ársdvöl í Ástralíu sneri hann aftur til heimabæjarins, Ísafjarðar, í fyrra, þar sem hann kennir nú golf. Auðunn hefir keppt í fjölmörgum opnum mótum og alþjóðlegum mótum. Hann reyndi m.a. fyrir sér á sænsku mótaröðinni 2007. Kona Auðuns er Kristín Rúnarsdóttir. Komast má á facebook síðu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 10:45
Bestu par-3 brautir í heiminum (nr. 9 af 10)

Þá er komið að bestu par-3 holum í Ástralíu og þar er ein sem er í 1. sæti en það er 15. brautin á Kingston Heath golfvellinum, sem hönnuð er af Alister McKenzie. Sú hola var jafnframt valin besta par-3 golfhola af fjölmörgum góðum í Ástralíu af Daríus Oliver á vefsíðunni ausgolf.com og verður hér farið að sérfræðiáliti Oliver í þeim par-3 holum, sem getið verður hér. Brautin er 142 metra löng af öftustu, sem virðist ekkert sérlega langt. En á veginum að flöt þarf að varast heila breiðu af sandglompum sem eru e.t.v. einhverjar algengust hindranir í kringum par-3 holur og á Kingston Heath kom McKenzie sérstaklega til Ástralíu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 24. 2012 | 07:30
Darren Clarke veitt OBE orðan úr hendi Elísabetar Bretadrottningar

Með Alison eiginkonu sína sér við hlið og tvo syni, geislaði norður-írski kylfingurinn Darren Clarke hreinlega þegar hann státaði sig af OBE (Order of the British Empire) heiðursorðu sinni. Darren leit bara ansi hreint lekker út í kjól og hvítu með forláta hatt þegar hann stillti sér upp á tröppum Buckingham hallar eftir að hitta drottningu. Ungir synir hans Tyrone og Conor spariklæddir vegna tilefnisins stóðu sitt til hvorrar hliðar brosandi parsins, á fjölskyldumynd sem mun að öllum líkindum vera á besta stað á heimili þeirra. Alison sem giftist Darren, sem er frá Dungannon, í brúðkaupi sem hljótt fór um í fyrra var elegant og smart í svörtum, hnélöngum kjól og fallegum Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

