Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 1. 2013 | 22:30

Afmæliskylfingur Nýársdags 2013: Gestur Már Sigurðsson

Afmæliskylfingur dagsins er Gestur Már Sigurðsson. Gestur Már er fæddur 1. janúar 1963 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Gestur Már er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Hann er sérlega snjall púttari og er iðulega í verðlaunasætum á púttmótum GK. Komast má á facebook síðu Gests Más til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Gestur Már Sigurðsson (50 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mike Sullivan, 1. janúar 1955 (58 ára); Paul Lawrie, 1. janúar 1969 (44 ára)…… og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is