Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2013 | 07:00

GG: Staða GG traust þrátt fyrir miklar framkvæmdir og aukna skuldsetningu

Aðalfundur Golfklúbbs Grindavíkur fór fram í golfkskálanum 29. desember síðastliðinn og var hann vel sóttur. Sjá skýrslu gjaldkera fyrir árið 2012.

Um 209 meðlimir eru nú í GG og stendur fjöldinn í stað frá í fyrra.  Enn standa yfir stækkunarframkvæmdir á vellinum og má gera ráð fyrir um 4-5 milljón króna kostnaði til að ljúka þeim.   Einnig hefur verið lögð mikil vinna við stækkun og endurbætur á framtíðarskála GG sem nú er að mestum hluta lokið. Sjá skýrslu stjórnar fyrir árið 2012

Ágætis rekstrarár er að baki hjá Golfklúbbi Grindavíkur og nemur tap ársins um 2 milljónum króna. Rekstrartekjur ársins voru um 39,2 milljónir sem er hækkun um 10,5 milljónir frá árinu 2011 en rekstrargjöld um 40,7 milljónir.  Heildarskuldir golfklúbbsins eru samtals um 18 milljónir króna en eftir er að skuldfæra styrki á móti efnisúttektum.  Verðmætaaukning er 28,5 milljónir kr.

Ákveðið var að hafa félagsgjöld óbreytt frá síðasta aðalfundi að undanskildu að nýliðagjald lækki í 32.000 kr. Það er gert til að tryggja enn betur rekstrargrundvöll golfklúbbsins og samræma gjaldflokkana  Þess ber að geta að Golfklúbbur Grindavíkur er stoltur af því að bjóða sérstök námsmannagjöld, einnig fyrir örorkulífeyrisþega aldraða, nýliðagjöld og hjónagjöld sem eru með þeim lægstu á landinu. Einnig ber að hafa í huga að félagsgjöldin verða áfram með þeim lægstu miðað við 18 holu golfvelli landsins. Sjá gjaldskrá árið 2013 Páll Erlingsson var endurkjörinn formaður klúbbsins en hann hefur setið sem formaður undanfarin fimm ár. Stjórn GG árið 2013 er því eftirfarandi: Páll Erlingsson (formaður), Halldór Einir Smárason, Sverrir Auðunsson (nýr í stjórn), Jón Guðmundsson, Gunnar Oddgeir Sigurðsson, Jón Júlíus Karlsson, og Sigmar Eðvarðsson. Í varastjórn eru Halldór Jóel Ingvason og Jóhann S. Ólafsson sjá stjórnarskipan. Sigvaldi Þorsteinsson og Jóhann Freyr Einarsson gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.  Friðrik Ámundason sagði sig úr stjórn í águst 2012. Golfklúbbur Grindavíkur kann fráfarandi stjórnarmönnum miklar þakkir fyrir mjög gott starf.

Heimild: golf.is – heimasíða GG