Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 31. 2012 | 12:00

Gleðilegt nýtt ár 2013!

Golf 1 óskar lesendum sínum svo og öllum kylfingum nær og fjær gleðilegs nýs árs 2013,  með mörgum gleðistundum í golfi á komandi ári.

Gleðilegt nýtt ár 2013!!!

Gleðilegt nýtt ár 2013!!!

Golf1 hefir nú verið starfandi í rúma 15 mánuði, þ.e. 1 ár , 3 mánuði og 6 daga og hafa á þeim tíma birtst tæp 4500 greinar, á 2. hundrað myndaseríur og á 2. hundrað viðtala við erlenda jafnt sem innlenda kylfinga.

Kylfingar innanlands, sem og vaxandi fjöldi erlendra kylfinga hafa tekið þessum yngsta golffréttavef Íslands framúrskarandi vel og umferð um vefinn ekkert nema aukist frá því hann hóf starfsemi 25. september 2011.

Ýmsar nýjungar verða á döfinni á Golf1 á næsta ári, 2013, sem kynntar verða síðar.

Golf1.is fer nú í nýársdagsfrí og munu nýjar golffréttir ekki birtast fyrr en árla morguns á nýju ári, 2. janúar 2013.

Kærar þakkir fyrir frábærar viðtökur – Hafið það gott! – Komist öll slysalaust yfir ársskiptin með bestu óskum um heilbrigði og hamingju 2013.

Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.