Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 17:00

PGA: 10 mestu heppnishöggin – Myndskeið

Já, golfið er svo miklu meira en bara tæknin og andlega hliðin. Það sem skiptir oft sköpum um hvort mótin vinnast eða ekki er heppnin og hvort hlutirnir falla með viðkomandi kylfingi þann daginn. Þeir á PGA Tour hafa tekið saman 10 mestu heppnishöggin að þeirra mati. Sjá má myndskeiðið með 10 mestu heppnishöggunum með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 14:30

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Pétursdóttir – 5. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rún Pétursdóttir, GR.  Rún er fædd. 5. febrúar 1995 og er því 18 ára í dag.  Rún hefir spilað á Arionbankamótaröð unglinga s.l. sumur, 2011 og 2012.  Rún er Íslandsmeistari í höggleik 2011, í  flokki 15-16 ára. Eins var Rún var í kvennasveit GR sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í European Ladies Club Trophy, sem fram fór á eyjunni Corfu á Grikklandi, haust 2011. Sumarið 2012 vann Rún m.a. í flokki 17-18 ára í 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar á Þverárvelli. Komast má á facebook síðu Rúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið  hér að neðan: Rún Pétursdóttir  (Innilega til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 12:25

Evróputúrinn: Sterne kallaði Gallacher „grísara“ og grínaðist í honum allan lokahring Omega Dubai Desert Classic

Skotinn Stephen Gallacher hefir verið að vinna hörðum höndum í að breyta leikjadagskrá sinni eftir frábæran sigur á Omega Dubai Desert Classic s.l. helgi. Aðal samkepnnisaðili hans í Dubai og vinur á Evróputúrnum Richard Sterne kallaði Gallacher „grísara“ (ens.: jammy bastard) eftir að Gallacher setti niður 115 yarda (105 metra) fleygjárnshögg úr karganum á 16. braut Emirates golfklúbbsins í Dubai, fyrir erni, sem eiginlega innsiglaði sigur hans. Gallacher hafði ætlað sér að ferðast til Suður-Afríku til að taka þátt í Joburg Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og Sterne var búinn að bjóða Gallacher að gista í glæsivillu sinni í Pretoríu. Sterne grínaðist við Gallacher allan lokahringinn og í hvert Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 08:00

Rolex-heimslisti kvenna: Karrie Webb fer upp um 5. sæti

Staða efstu kvenkylfinga á Rolex-heimslista kvenna er eftirfarandi: 1 — Yani Tseng TPE 49 9.80 480.36 2 — Na Yeon Choi KOR 55 8.60 473.06 3 — Stacy Lewis USA 52 8.00 415.93 4 — Inbee Park KOR 65 7.62 495.32 5 — Shanshan Feng CHN 60 6.85 411.11 6 — Suzann Pettersen NOR 47 6.59 309.71 7 — So Yeon Ryu KOR 50 6.47 323.35 8 — Jiyai Shin KOR 52 6.19 321.70 9 — Ai Miyazato JPN 49 6.13 300.37 10 — Mika Miyazato JPN 50 5.45 272.55   Í töflunni hér fyrir ofan sést það illa en Yani Tseng frá Taíwan er efst með 9,80 stig og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 07:45

Heimslistinn: Phil Mickelson kominn í 10. sætið

Við sigurinn á Waste Management Phoenix Open s.l. helgi fer Phil Mickelson úr 22. sæti í 10. sæti heimslistans nú í þessari viku og er því á nýjan leik kominn meðal heimsins bestu 10 kylfinga. Brandt Snedeker sem varð í 2. sæti á mótinu fer úr 7. sæti heimslistans í það 6. og er það, það hæsta sem hann hefir komist á heimslistanum. Við þetta færist Adam Scott úr 6. sætinu í það 7. Staða efstu manna á heimslistanum er að öðru leyti óbreytt: 1. sæti Rory McIlroy (12.23 stig); 2. sæti Tiger Woods (9.15 stig); 3. sæti Luke Donald (7.76 stig); 4. sæti Justin Rose (6,53 stig); 5. sæti Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 07:25

Sigurpáll kennari ársins, Hlynur Geir kylfingur ársins og Ólafur PGA meistari

Á aðalfundi PGA á Íslandi sem haldinn var síðastliðinn laugardag kynnti matsnefnd PGA val sitt á kennara ársins 2012 og kylfing ársins 2012. Sigurpáll Geir Sveinsson var valinn kennari ársins en við matið var stuðst við árangur í starfi þ.e. þeir titlar sem nemendur viðkomandi unnu til á árinu ásamt vinnu við uppbyggingu og útbreiðslustarfi á barna-, unglinga- og almenningsstarfi. Þá þarf viðkomandi að sýna fagleg vinnubrögð í anda PGA og vinna í þágu PGA og GSÍ. Hlynur Geir Hjartarson var valinn kylfingur ársins en hann hefur sýnt mikla seiglu í gegnum árin og náð frábærum árangri hér heima og með landsliðinu. Í sumar útskrifaðist hann sem PGA kennari og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2013 | 13:30

Ólafía Þórunn og Jar of Hearts

Ólafíu Þórunni Kristinsdótttur, GR og Wake Forest er margt til lista lagt. Ekki aðeins varð hún klúbbmeistari GR, Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni 2011 og sigraði m.a. á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar í fyrrasumar, 2012, í Leirunni, nýkomin að utan og er ein af okkar albestu kvenkylfingum, heldur getur hún líka sungið og spilað á gítar s.s. sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Þar tekur hún Christinu Perri lagið Jar of Hearts. Myndskeiðið var sett á You Tube í gær. Næsta mót Ólafíu Þórunnar í bandaríska háskólagolfinu með Wake Forest er eftir nákvæmlega viku, þ.e. Northrop Grumman Regional Challenge mótið í Palos Verdes, Kaliforníu. Til þess að sjá Ólafíu Þórunni flytja lagið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2013 | 13:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jósefína Benediktsdóttir – 4. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er  Jósefína Benediktsdóttir.  Jósefína fæddist 4. febrúar 1958 og á því 55 ára stórafmæli í dag. Jósefína er í Golfklúbbi Siglufjarðar (GKS) og varð m.a. ásamt eiginmanni sínum Þorsteini Jóhannssyni, klúbbmeistari GKS 2011. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið: Jósefína Benediktsdóttir (55 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag: Helmut Stolzenwald  (f. 4. febrúar 1901 – d. 5. febrúar 1958) Hann var einn af frumkvöðlum að stofnun GHR árið 1952 og forystumaður í klúbbnum fyrstu árin. Helmút fæddist í Þýskalandi en fluttist til Íslands 1924 og settist þá að í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2013 | 10:45

Golfleiðbeiningar: 10 reglur Stocktons um hvernig eigi að setja niður 2 metra pútt (4. grein af 10)

Hér verður fram haldið með 1 af 10 reglum golfkennarans og fyrrum PGA Tour leikmannsins Dave Stockton, um, hvernig setja eigi niður 2 metra pútt: 3. Ekkert endilega hugsa um að pútta beint Þegar Tiger Woods stóð frammi fyrir 12 feta púttinu (u.þ.b. 4 metra púttinu) á 72. holu á Torrey Pines til þess að komast í umspil á Opna bandaríska 2008, þá kallaði hann á kylfusvein sinn, Steve Williams, til þess að hjálpa sér við að lesa púttið. Stockton veðjar á að Tiger sá að brotið lá til vinstri en það hefir eflaust pirrað hann að púttið gæti verið þráðbeint.  Ef það er eitthvað sem góðum púttara er illa við Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2013 | 04:30

PGA: Phil Mickelson sigraði á Phoenix Open – hápunktar og högg 4. dags

Það var Phil Mickelson sem stóð uppi sem sigurvegari á Waste Management Phoenix Open mótinu … og kemur fáuum á óvart enda var hann búinn að leiða ALLT mótið…. allt frá því hann spilaði 1. hring á 60 höggum. Samtals spilaði Phil á 28 undir pari, 256 höggum (60 65 64 67) og átti 4 högg á þann sem næstur kom, Brandt Snedeker. Að sigrinum loknum sagði Phil m.a.: „Þetta var mikilvægur sigur fyrir mig því það er orðið svolítið síðan að ég hef unnið og svolítið síðan að ég hef verið í þeirri stöðu að vera með sigurinn innan seilingar.  Ég var svo sannarlega stressaður fyrir lokahringinn.“ Scott Piercy Lesa meira