Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2013 | 14:30

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Pétursdóttir – 5. febrúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Rún Pétursdóttir, GR.  Rún er fædd. 5. febrúar 1995 og er því 18 ára í dag.  Rún hefir spilað á Arionbankamótaröð unglinga s.l. sumur, 2011 og 2012.  Rún er Íslandsmeistari í höggleik 2011, í  flokki 15-16 ára. Eins var Rún var í kvennasveit GR sem varð Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í European Ladies Club Trophy, sem fram fór á eyjunni Corfu á Grikklandi, haust 2011.

Sumarið 2012 vann Rún m.a. í flokki 17-18 ára í 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar á Þverárvelli.

Komast má á facebook síðu Rúnar til þess að óska henni til hamingju með afmælið  hér að neðan:

Rún Pétursdóttir  (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Jane Geddes, 5. febrúar 1960 (53 ára);  José Maria Olázabal 5. febrúar 1966 (47 ára),  Kevin Stadler, 5. febrúar 1980 (33 ára) ….. og …..

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum, sem afmæli eiga innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is