Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Brá Björgvinsdóttir – 25. mars 2013

Afmæliskylfingur dagsins í dag er Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Guðrún Brá er fædd 25. mars 1994 og á því 19 ára afmæli í dag. Guðrún Brá er í Golfklúbbnum Keili. Hún var valin efnilegasta golfkona Íslands 2010. Guðrún Brá varð bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokki 17-18 ára á Arionbankamótaröð unglinga 2011. Síðan unnu þau frænsdsystkinin Axel Bóasson og hún fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni 2011. Guðrún Brá tók þátt í Duke of York mótinu 2011 og 2012 og stóð sig vel, bæði skiptin. Guðrún Brá var í landsliðshóp íslenskra kylfinga 2012 og er í núverandi landsliðshóp 2013, völdum af Úlfari Jónssyni, landsliðsþjálfara og fór m.a.í æfingaferð í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2013 | 02:40
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía og Wake Forest luku leik í T-5 á LSU Golf Classic

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest léku nú um helgina á LSU Golf Classic mótinu, sem fram fór í The University Club, í Baton Rouge í Louisiana. Þátttakendur í mótinu sem stóð 22. -24. mars 2013 voru 79 frá 14 háskólum. Ólafía Þórun spilaði á samtals 13 yfir pari, 229 höggum (70 78 72) og bætti sig með hverjum hring. Hún varð T-23 þ.e. deildi 23. sætinu í mótinu með 3 öðrum og var á næstbesta skori Wake Forest. Golflið Wake Forest varð í T-5 í liðakeppninni, þ.e. deildi 5. sætinu með golfliði Georgia háskóla. Sjá má úrslitin í LSU Golf Classic mótinu með því að SMELLA HÉR: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2013 | 02:30
LPGA: Beatriz Recari sigraði á Kia Classic

Beatriz Recari frá Spáni sigraði á Kia Classic golfmótinu á Aviara golfvellinum í Carlsbad, Kaliforníu nú rétt í þessu. Recari spilaði á samtals 9 undir pari, 279 höggum (69 67 69 74). Hún var jöfn IK Kim (71 67 70 71) frá Suður-Kóreu eftir hefðbundnar 72 holur og varð því að koma til bráðabana milli þeirra. Spila þurfti par-4 18. holuna tvisvar áður en úrslit fengust. Eftir 1. skiptið voru báðar á pari og í seinna skiptið fékk Beatriz glæsifugl en Kim tapaði á parinu. Í 3. sæti urðu 3 kylfingar: Pornanong Phattlum frá Thaílandi og bandarísku kylfingarnir Mo Martin og Cristie Kerr allar á samtals 8 undir pari, 280 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2013 | 02:00
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU luku leik T-11 á Furman mótinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið Eastern Tennessee State University (ETSU) léku á Furman Intercollegiate mótinu, sem fram fór dagana 22.-24. mars s.l. og lauk í gær. Spilað var á Furman University golfvellinum í Greenville, Suður-Karólínu. Þátttakendur voru 126 frá 21 háskóla. Guðmundur Ágúst lék á samtals 222 höggum (72 74 76) og hafnaði í 33. sæti í einstaklingskeppninni, en sætinu deildi hann með 6 öðrum kylfingum, þ.e. varð T-33 (T er eiginlega stytting úr ensku og stendur fyrir „tied“ og þýðir að nokkrir leikmenn eða nokkur lið, a.m.k. fleira en 1, seú spyrt eða hnýtt saman í sætistölunni sem alltaf fylgir fyrir aftan). Guðmundur Ágúst var á 3. besta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2013 | 01:00
PGA: Arnold Palmer Invitational frestað vegna veðurs – Hápunktar og högg 4. dags

Nú í dag, mánudagsmorguninn 25. mars 2013 ræðst loks hver stendur uppi sem sigurvegari í Arnold Palmer Invitational. Tekst Tiger Woods að standa uppi sem sigurvegari og verja titil sinn? Það ræðst í dag vegna slæms veðurs, sem var í aðalhlutverki á Bay Hill í gær og frestaði öllum leik. Hápunktur 4. dags var einmitt veðrahamurinn sem reið yfir golfvöllinn, stormur og rigning og má sjá myndskeið frá því með því að SMELLA HÉR: Nokkrir fóru út og kláruðu að spila nokkrar holur og var högg Sergio Garcia valið högg 4. dags SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá stöðuna fyrir lokahringinn, sem lokið verður við í dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2013 | 20:30
PGA: Arnold Palmer Invitational í beinni

Mót vikunnar á PGA Tour er Arnold Palmer Invitational. Allir bestu kylfingar heims eru í mótinu. Tekst Tiger, sem á titil að verja, að landa 1. sætinu á heimslistanum að nýju? Útsending á netinu í beinni hófst kl. 19:30 Til þess að sjá frá Arnold Palmer Invitational í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2013 | 13:00
Ákvarðanir R&A um reglu 6-3 a – Undantekningar frá frávísun komi kylfingur of seint á teig (1. grein af 5)
Nú á fimmtudaginn s.l. 21. mars 2013 fór fram fræðslu- og umræðufundur dómaranefndar GSÍ um hvað gera megi til að bæta leikhraða. Þórður Ingason, alþjóðadómari ræddi á fundinum um „5 mínútna regluna“ svokölluðu, þ.e. reglu 6-3a í golfreglum R&A. Reglan gengur út á að ef kylfingur mætir allt að 5 mínútum of seint á teig eigi hann ávallt rétt á að hefja leik gegn viðurlögum upp á 2 högg í víti. Mæti hann seinna sætir hann frávísun. Mæti kylfingur meira en 5 mínútum of seint hlýtur hann frávísunarvíti. Mínúturnar 5 skv. reglu 6-3 a eru því undantekningin frá því að kylfingur hljóti frávísun. Á reglu 6-3 a er undantekning. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Dorothy Campbell – 24. mars 2013

Það er Dorothy Campbell, sem er afmæliskylfingur dagsins en hún var fædd 24. mars 1883 og hefði því átt 130 ára afmæli í dag. Dorothy Iona Campbell (fædd 24. mars 1883 – dáin 20. mars 1945) var fyrsti kvenkylfingurinn sem eitthvað kvað að á alþjóðavettvangi. Hún var einnig þekkt undir nöfnunum Dorothy Hurd, Mrs. J.V. Hurd og sem Dorothy Howe. Eins var hún þekkt undir sambreiskingnum Dorothy Campbell Hurd Howe. Dorothy Campbell 1909 Hún fæddist inn í mikla golffjölskyldu í Norður Berwick á Skotlandi og byrjaði að sveifla kylfum aðeins 18 mánaða gömul. Innan örfárra ára var hún farin að keppa við systur sína. Hún var fyrsta konan til að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2013 | 09:45
GSG: Karl Hólm og Bjartmar Már Björnsson sigurvegarar á Marsmóti nr. 4
Í gær fór fram 4. Marsmótið á Kirkjubólsvelli þeirra Sandgerðinga. Leikfyrirkomulag var sem fyrr höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf og veitt verðlaun fyrir besta skor og 3 efstu sætin í punktakeppninni. Þátttakendur voru 52 og luku 46 keppni, þar af 5 konur og stóð Guðmundína Ragnarsdóttir, GO, sig best af þeim bæði í höggleik og punktakeppninni. Á besta skorinu var heimamaðurinn Karl Hólm, GSG, spilaði Kirkjubólsvöll á 3 yfir pari, 75 höggum. Hann deildi líka 1. sætinu í punktakeppninni með Bjartmari Má Björnssyni, GA, 34 punktum, en gat ekki tekið verðlaun í báðum flokkum. Í 2. sæti í punktakeppninni varð Birgir Arnar Birgisson, á 32 punktum (18 punktum Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

