Ákvarðanir R&A um reglu 6-3 a – Undantekningar frá frávísun komi kylfingur of seint á teig (1. grein af 5)
Nú á fimmtudaginn s.l. 21. mars 2013 fór fram fræðslu- og umræðufundur dómaranefndar GSÍ um hvað gera megi til að bæta leikhraða.
Þórður Ingason, alþjóðadómari ræddi á fundinum um „5 mínútna regluna“ svokölluðu, þ.e. reglu 6-3a í golfreglum R&A. Reglan gengur út á að ef kylfingur mætir allt að 5 mínútum of seint á teig eigi hann ávallt rétt á að hefja leik gegn viðurlögum upp á 2 högg í víti. Mæti hann seinna sætir hann frávísun. Mæti kylfingur meira en 5 mínútum of seint hlýtur hann frávísunarvíti. Mínúturnar 5 skv. reglu 6-3 a eru því undantekningin frá því að kylfingur hljóti frávísun.
Á reglu 6-3 a er undantekning. Þ.e. mótsnefnd (hér nefnd Nefndin) getur ákveðið að ekki skuli koma til þessara 2 högga í víti mæti kylfingur allt að 5 mínútum of seint, eigi sérstök undantekningartilvik við um kylfing, sem hafi orðið þess valdandi að hann mætti of seint á teig. Þessi undantekningtilvik eru túlkuð mjög þröngt.
Meðal efnis í ræðu Þórðar voru 5 nýlegar ákvarðanir R&A um túlkun á 5 mínútna reglunni.
Nú næstu daga verður fjallað um ákvarðanirnar 5 frá R&A, sem Þórður fór í , en þær eru allar nýlegar frá s.l. ári, 2012.
Ákvarðanirnar eru settar fram í spurnarformi og síðan reglan gefin í svari við spurningunni.
Spurning: Skv. undantekningu á reglu 6-3a segir að ef Nefndin ákveði að sérstakar undantekningarástæður hafi meinað kylfingi að hefja leik á réttum rástíma hans, þá verði engum viðurlögum beitt (2 högg í víti). Hverjar af eftirfandi ástæðum teljið þið vera slíkar að ekkert víti verði gefið komi kylfingur of seint á teig:
1. Kylfingur villist á leið á golfvöllinn?
2. Mikil umferð varð til þess að ferð kylfings á völlinn tók lengri tíma en hann bjóst við?
3. Meiriháttar slys tafði kylfing á leið á völlinn og ferð hans þangað tók lengri tíma en við var búist?
4 .Bíll kylfings bilar á leiðinni á völlinn?
5. Kylfingur er á vettvangi slyss og veitti aðstoð á slysstað eða var krafinn um skýrslu sem vitni og myndi annars ekki hafa mætt of seint á teig?
Svar:
Það er engin nákvæm regla í þessu efni. Þetta er því matskennt. Viðeigandi framkvæmd byggist á kringumstæðum í sérhverju tilfelli fyrir sig og er komin undir ákvörðun Nefndarinnar. Almennt, myndi aðeins nr. 5 af ofangreindum tilvikum koma til athugunar varðandi það hvort veita eigi undanþágu frá víti undir reglu 6-3a. Það er á ábyrgð kylfings að tryggja að hann hafi ávallt nægan tíma til þess að komast til keppni og hann verður að gera ráð fyrir mögulegum töfum á leið sinni út á golfvöll.
- júní. 7. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía M. Jónsdóttir – 7. júní 2023
- maí. 19. 2023 | 19:00 GKS: GA tekur við rekstri Siglo Golf
- maí. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2023
- apríl. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórey Petra ——– 18. apríl 2023
- apríl. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ragna Björk Ólafsdóttir – 17. apríl 2023
- apríl. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2023
- apríl. 15. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (15/2023)
- apríl. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Gerða Hammer og Finnbogi Haukur Alexandersson – 15. apríl 2023
- apríl. 14. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hlín Torfadóttir —— 14. apríl 2023
- apríl. 13. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jónína Ragnarsdóttir – 13. apríl 2023
- apríl. 12. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Björg Egilsdóttir – 12. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 17:00 Masters 2023: Ný met Mickelson á Masters
- apríl. 11. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2023
- apríl. 11. 2023 | 09:00 Masters 2023: Nokkrar skemmtilegar staðreyndir um Masters
- apríl. 10. 2023 | 20:00 25.000 fréttir skrifaðar á Golf1