Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 14:00

Golfgrín á þriðjudegi

Þar sem nú eru mánaðarmót og margir í bankarápi og öðrum leiðinda mánaðarmótaerindum og aðrir enn að jafna sig á að þurfa aftur að byrja að vinna eftir páskafrí, er ekki úr vegi að reyna að létta lund kylfinga svolítið.  Það góða er að það er jú kominn þriðjudagur og bara 3 dagar í næstu helgi …. og fullt af skemmtilegum golfmótum í boði fyrir kylfinga þá! Hér er einn gamall og góður:  Læknir, prestur og lögfræðingur spila saman golf og lenda á eftir alveg sérstaklega hægu holli, sem verður til þess að það óvenjulega gerist …. allir þrír missa þolinmætina….. hver á sinn hátt. Lögfræðingurinn (önugur): Hvað er að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 13:00

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State í 2. sæti

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik 2012, Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og golflið Texas State hófu í gær leik í Challenge mótinu í Onion Creek, í Austin, Texas. Mótið fer fram dagana 1.-2. apríl 2013. Þátttakendur eru 68 frá 13 háskólum. Eftir 1. dag og tvo leikna hringi er Texas State í 2. sæti í liðakeppninni. Valdís Þóra er í 34. sæti og því miður á 5. besta skori liðs síns og telur það ekki sem stendur. Valdís Þóra átti hringi upp á samtals 11 yfir pari, 151 högg (77 74) og var fyrri hringurinn sérlega slakur, en þar fékk hún m.a. 3 skramba í röð, sem er óvanalegt hjá Valdísi Þóru.  Engu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 12:10

GK: Orri Bergmann Valtýsson sigraði á Páskapúttmóti Hraunkots

Í gærkvöldi, 1. apríl 2013,  lauk einu glæsilegasta púttmóti sem Hraunkot hefur staðið að. Um 150 manns tóku þátt og spiluðu um 450 hringi. Mikil stemming var í kotinu alla helgina og spiluðu sumir oftar en einu sinni til að reyna slá besta hring sem var 23 högg. Starfsfólk Hraunkots var í páskastuði alla helgina og mörg börn fengu páskaegg fyrir góðan árangur í mótinu. Fólk á öllum aldri kom í heimsókn í Hraunkot og púttaði  í mótinu. Verðlaunin voru einstaklega vegleg að þessu sinni og mótið tókst mjög vel og verður vonandi árlegur viðburður framvegis um Páskana. Vinningshafar urðu eftirfarandi:       1 Orri Bergmann Valtýsson 13 10 23 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Harðardóttir – 2. apríl 2013

Það er Hildur Harðardóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hildur er fædd 2. apríl 1961. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum og staðið sig vel. T.a.m. varð hún í 2. sæti í móti Soroptimista í Oddinum, forgjafarflokki 0-20,  5. júní 2010 og vann það afrek að fara holu í höggi á par-3, 117 metra, 16. brautinni á Hvaleyrinni, 20. júlí 2010. Í FH-mótinu 2008 varð Hildur í 2. sæti af konunum, en fyrir þá sem ekki vita það er Hildur mikill FH-ingur. Árangur Hildar er glæsilegur í ljósi þess að bæði mótin, sem nefnd eru hér í dæmaskyni, Soroptimista og FH eru fjölmenn með hátt annað hundrað þátttakendur. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 11:30

Bandaríska háskólagolfið: Andri Þór á 2. besta skori Nicholls eftir 1. dag ASU mótsins

Andri Þór Björnsson, GR og golflið Nicholls State tekur þátt í ASU Red Wolves Intercollegiate, en mótið fer fram í Ridgepoint, Arkansas, dagana 1.-2. apríl 2013.  Þátttakendur í mótinu eru 112 frá 20 háskólum. Í gær voru spilaðir 2 hringir og var Andri Þór á samtals 9 yfir pari, 151 höggi (74 77).  Hann er á 2. besta skori Nicholls State, sem gengur fremur dapurlega í liðakeppninni deilir 17. sætinu eftir 1. dag. Í einstaklingskeppninni er Andri Þór ofarlega fyrir miðju á skortöflunni eða í 52. sæti. Lokahringurinn verður spilaður í kvöld. Til þess að fylgjast með gengi Andra Þórs og stöðunni á ASU Red Wolves Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 11:00

Ákvarðanir R&A um reglu 6-3 a – (4. grein af 5)

Þann  21. mars 2013 fór fram fræðslu- og umræðufundur dómaranefndar GSÍ um hvað gera megi til að bæta leikhraða á golfvöllum. Þórður Ingason, alþjóðadómari ræddi á fundinum um „5 mínútna regluna“ svokölluðu, þ.e. reglu 6-3a í golfreglum R&A. Reglan gengur út á að ef kylfingur mætir allt að 5 mínútum of seint á teig eigi hann ávallt rétt á að hefja leik gegn viðurlögum upp á 2 högg í víti. Mæti hann seinna sætir hann frávísun, þ.e. mæti kylfingur meira en 5 mínútum of seint hlýtur hann frávísunarvíti. Á reglu 6-3 a er undantekning. Þ.e. mótsnefnd (hér nefnd Nefndin) getur ákveðið að ekki skuli koma til þessara 2 högga í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 09:30

Evróputúrinn: Hartø sló buxnalaus

Það er ýmislegt sem gerist í golfmótum og þar eru stærstu mótaraðirnar ekkert undanþegnar. Í Trophée Hassan II mótinu, sem fram fór nú s.l. helgi lenti bolti eins keppandans, danska kylfingsins Andreas Hartø, út í vatni. Hann vildi að sjálfsögðu ekki bleyta sokka sína og skó og ekki heldur golfbuxur sínar, þannig að hann klæddi sig einfaldlega úr þeim og fór síðan út í vatnið og átti þetta líka glæsihögg upp úr. Hann var ekkert að fela nekt læra sinna heldur tipplaði síðan sallarólegur á nærbuxunum yfir grínið til að merkja bolta sinn. Hartø gekk annars alveg bærilega í mótinu, lauk leik á samtals 4 undir pari og T-15. Til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 08:00

Clarke meiddur – óvíst um Mastersþátttöku

Darren Clarke, fyrrum meistari Opna breska dró sig úr Valero Texas Open, móti vikunnar á PGA og bar fyrir sig ótilgreind meiðsli í fæti. Clarke átti að hefja leik í holli með Pádraig Harrington, Rory McIlroy og Shane Lowry í San Antonio nú á fimmtudaginn.  Nú verður ekkert af því og jafnvel gæti svo farið að hann drægi sig úr The Masters risamótinu. Ef Clarke dregur sig úr mótinu er Þjóðverjinn Marcel Siem næsti maður inn … en Clarke hefir enn ekki tilkynnt neitt um úrsögn sína úr móti mótanna (the Masters). Auk Clarke hafa Geoff Ogilvy, George Coetzee, Hank Kuehne, Doug LaBelle, Arron Oberholser og Chris Kirk dregið sig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 2. 2013 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Axel og félagar í 1. sæti eftir 1. dag á Bancorp mótinu

Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State hófu í gær leik á Bancorp South Reunion Intercollegiate í Madison, Mississippi. Spilað er í Reunion Golf Country Club og stendur mótið dagana 1.-2. apríl. Axel er samtals búinn að spila á 5 undir pari, 139 höggum (69 70) og er á næstbesta skori Mississippi State og telur skor hans því í glæsiárangri liðsins, sem er í 1. sæti í liðakeppninni. Axel er í 4. sæti í einstaklingskeppninni!!! Lokahringurinn verður  leikinn í kvöld. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Bancorp South Reunion Intercollegiate  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 1. 2013 | 21:21

GKJ: Kristján Þór spilaði á 6 undir pari í Annars í Páskum mótinu!

Í dag fór fram Opna Annars í Páskum mót Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ.  Þátttaka var að venju góð 163 voru skráðir í mótið og 151 luku keppni þar af 10 konur. Af konunum stóð Camilla Margareta Tvingmark, GKJ, sig best í höggleikshlutanum (spilaði á 100 höggum) og Ágústa V. Sigurðardóttir, GKJ,  hlaut flesta punkta (31 punkt). Veitt voru 3 verðlaun fyrir efstu sætin í punktakeppni og fyrir 3 bestu skorin. Á besta skorinu í mótinu var Kristján Þór Einarsson, lék Hlíðavöll á 6 undir pari, 66 glæsihöggum!!! Á hringnum fékk Kristján Þór 2 erni (á 4. og 6. braut), 3 fugla, 12 pör og 1 skolla!!!! Glæsilegt. Í 2. sæti Lesa meira