Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2013 | 07:30

PGA: GMac sigraði á RBC Heritage

Það var Norður-Írinn, Graeme McDowell sem stóð uppi sem sigurvegari á RBC Heritage mótinu í Suður-Karólínu í gær.  GMac eins og Graeme er oft nefndur lék samtals á 9 undir pari,  275 höggum (71 67 68 69) líkt og nr. 18 á heimslistanum, Webb Simpson (68 71 65 71) og varð því að koma til bráðabana milli þeirra. Í honum sigraði GMac þegar á fyrstu holu þegar hann fékk par! Í 3. sæti urðu Luke Donald og Kevin Streelman, en þeir spiluð á  samtals 7 undir pari, 277 höggum; Donald (69 68 71 69) og Streelman (66 70 69 72). Næstir komu 4 Bandaríkjamenn: Jerry Kelly varð í 5. sæti; Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 20:00

Viðtalið: Bjarni Ákason, GK

Í kvöld er það framkvæmdastjóri Epli á Íslandi sem er í viðtali hjá Golf1.is. Hann er nýkominn frá Las Colinas á Costa Blanca á Spáni, þar sem hann tók þátt í hinu árlega Costa Blanca Open og hafnaði ásamt meðspilara sínum Valdimar Grímssyni í 2. sæti! Árið 2011 sigrðuðu þeir félagar á sama móti sem þá bar nafnið Icelandic Open!!! Sjá má myndir frá Icelandic Open 2011 á Costa Blanca með því að SMELLA HÉR:  Fullt nafn: Bjarni Ákason Klúbbur:  Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði. Hvar og hvenær fæddistu? Reykjavík 30. desember 1961 (Bjarni á sama afmælisdag og Tiger!) Hvar ertu alinn upp?   Í Háaleitishverfinu í Reykjavík. Hvenær byrjaðir þú í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 19:45

Evróputúrinn: Raphaël Jacquelin sigraði á Open de España

Það var Frakkinn Raphaël Jacquelin sem sigraði á Open de España í dag! Jacquelin lék á samtals 5 undir pari, 283 höggum, alveg eins og þeir Felipe Aguilar frá Chile og Maximilian Kiefer frá Þýskalandi og varð því að koma til bráðabana milli þeirra þriggja. Felipe Aguilar datt út á 3. holu bráðabanans en þýska stálið Max Kiefer var ekki á því að gefa sig.  Það var ekki fyrr en að 18. holan á Parador de El Saler hafði verið spiluð 9. sinnum að Jacquelin fékk fugl en Kiefer par og varð að játa sig sigraðan. Fjórir kylfingar deildu 4. sætinu á 4 undir pari, 284 höggum, þ.e. þeir Magnus A Carlsson Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 14:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hafliði Már Brynjarsson – 21. apríl 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Hafliði Már Brynjarsson, GS. Hann er fæddur 21. apríl og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Hafliði Már er í Golfklúbbi Suðurnesja (GS). Hann byrjaði í golfi 12 ára vegna þess að Helga frænka hans vantaði meðspilara en var síðan kominn á fullt í golfið ári síðar. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Michael Jonzon, 21. apríl 1972 (41 árs afmæli!!!);  Virada Nirapathpongporn, 21. apríl 1982 (31 árs);  Beatriz Recari, 21. apríl 1987 (26 ára) ….. og …… Lúðvík Geirsson   Bogi Ísak Bogason, GR (18 ára) Gassi Olafsson (36 ára) Holmar Freyr Christiansson (30 ára stórafmæli!!!) Róbert Þór Guðmundsson (33 ára) lögreglumaður.   Golf 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 12:00

RBC Heritage í beinni

Í dag fer fram á Harbour Town Golf Links á Hilton Head í Suður-Karólínu, lokahringur RBC Heritage mótsins, sem er hluti af bandarísku PGA mótaröðinni. Í efsta sæti eftir 3. dag er bandaríski kylfingurinn Charley Hoffman. Margir sterkir kylfingar taka þátt í mótinu m.a. Brandt Snedeker, Webb Simpson, sem er í 2. sæti Luke Donald og Graeme McDowell. Sýningar frá RBC hefjast kl.12:00 Sjá má útsendingu í beinni frá RBC Heritage með því að  SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 11:00

Golfreglur: Bolti hreyfður úr kyrrstöðu

Nú þegar golftímabilið fer að hefjast og kylfingar landsins streyma á golfvellina, sem fara að opna hver á fætur öðrum í næsta mánuði þá er e.t.v. rétt að rifja upp golfreglurnar. Það verður gert hér á Golf1 í raunhæfum dæmum, sem kylfingar geta glímt við en svörin eru jafnframt gefin upp við hverri spurningu. Raunhæft dæmi: Kylfingur tekur æfingasveiflu út á velli og af slysni hreyfir hann boltann sinn með kylfunni. Hvernig dæmist? A. Kylfingurinn hefir tekið högg sem telur og verður að leika boltanum þar sem hann liggur. B. Kylfingurinn hlýtur ekki víti en verður að leggja boltann aftur. C. Kylfingurinn fær eitt högg í víti og verður að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 08:30

Open de España í beinni

Nú fer fram 3. hringur á Open de España á Parador El Saler golfvellinum í Valencia, en mótið er hluti Evrópumótaraðarinnar. Í 1. sæti eftir 3. dag er Skotinn Marc Warren. Bein útsending frá Open de España hófst kl. 6:30. Sjá má útsendingu í beinni frá Open de España með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 02:00

LPGA: Pettersen vann Lotte-mótið

Það var „norska frænka okkar“ Suzann Pettersen sem sigraði nú rétt í þessu á LPGA Lotte Championship mótinu, sem farið hefir fram á Ko Olina golfvellinum á Hawaii undanfarna 4 daga. Eftir hefðbundnar 72 holu spil var allt jafnt milli Pettersen og hinnar mexíkönsk/bandarísku Lizette Salas, sem enn á eftir að krækja sér í fyrsta sigur sinn á LPGA, en hún var nýliði á mótaröðinni í fyrra. Pettersen var búin að spila á samtals 19 undir pari, 269 höggum (65 69 68 67) sem sagt jafnt og gott golf og búin að vera forystu mestallt mótið.  Lizette var sömuleiðis á 19 undir pari, 269 höggum samtals og var því að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 21. 2013 | 01:30

PGA: Hoffman leiðir á RBC

Fyrir lokadag RBC Heritage í Suður-Karólínu er það bandaríski kylfingurinn Charley Hoffman, sem tekið hefir forystuna einn. Hoffman er samtals búinn að spila á 11 undir pari, 202 högggum (66 70 66) og hefir 2 högga forystu á þann sem næstur kemur; Webb Simpson. Í 3. sæti er síðan Kevin Streelman á samtals 8 undir pari og 4. sætinu deila þeir Brendon de Jonge og Graeme McDowell á samtals 7 undir pari, hvor. Í 6. sæti eru 8 kylfingar; allir á samtals 6 undir pari, hver; þ.á.m. eru Camilo Villegas og Ryo Ishikawa og í 14. sæti eru 6 kylfingar allir á samtals 5 undir pari hver en þ.á.m. eru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 20. 2013 | 20:30

Rory í nýrri Nike auglýsingu

Rory McIlroy kemur fram í nýrri auglýsingu frá Nike, ásamt þeim Nick Watney, Paul Casey, Kyle Stanley og Suzann Pettersen. Verið er að auglýsa nýjan Nike golfbolta. Kylfingarnir 5 leika sér að því að halda boltanum á lofti með fleygjárnunum sínum. Til þess að sjá nýju Nike auglýsinguna SMELLIÐ HÉR: