Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2013 | 01:30
PGA: Tiger höggi á eftir Garcia

Þegar The Players er hálfnað er spænski kylfingurinn Sergio Garcia í forystu á samtals 11 undir pari, samtals 133 höggum (68 65) og Tiger Woods aðeins 1 höggi á eftir á samtals 10 undir pari, samtals 134 höggum (67 67). Þrír deila 3. sætinu á samtals 9 undir pari hver: Bandaríkjamaðurinn Kevin Chappell, Lee Westwood og Henrik Stenson. Í 6. sæti á samtals 8 undir pari eru einnig 3 kylfingar: Svíinn David Lingmerth, Casey Wittenberg og Ryan Palmer. Það er ekki fyrr en í 9. sæti sem við finnum ástralska sigurvegara the Masters í ár, Adam Scott en hann deilir 9. sætinu með Matt Kuchar, Zach Johnson og Hunter Mahan Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 22:10
Afmæliskylfingur dagsins: Tómas Freyr Aðalsteinsson – 10. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Tómas Freyr Aðalsteinsson. Tómas Freyr er fæddur 10. maí 1983 og á því 30 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins, til þess að óska honum til hamingju hér fyrir neðan Tómas Freyr Aðalsteinsson · 30 ára Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jimmy Demaret, f. 10. maí 1910 – d. 28. desember 1983); Mike Souchak, 10. maí 1927-10. júlí 2008); Jarmo Sakari Sandelin, 10. maí 1967 (46 ára); Darry Lloyd, Sólskinstúr, 10. maí 1989 (24 ára); Sandra Changkija, LPGA nýliði 10. maí 1989 (24 ára) ……… og ………… Gunnar Johannsson F. 10. maí 1982 (31 árs) Þórhallur Arnar Vilbergsson F. 10. maí 1994 (19 ára) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 22:00
GKJ: Rafn Stefán Rafnsson var á besta skorinu á Opna maí II mótinu

Í gær fór fram í sumarblíðu Opna maí mótið II á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ. Þátttakendur voru 145 og 143 luku keppni. Rafn Stefán Rafnsson, GB, sigraði í höggleikshluta mótsins á 2 undir pari, 70 höggum. Hann fékk m.a. 3 fugla í röð á seinni 9. Í 2. sæti urðu Páll Ólafsson, GK; Guðjón Reyr Þorsteinsson, GKJ og Jón Hilmar Kristjánsson, GKJ á 75 höggum, hver. Páll Ólafsson, GK, sigraði í punktakeppnishluta mótsins; var með 39 glæsipunkta. Sighvatur Dýri Guðmundsson, GKG varð í 2. sæti á 38 punktum og í þriðja sæti urðu Þórhallur G. Kristvinsson, GKJ og Rafn Stefán Rafnsson, GB á 37 punktum. Sjá má úrslitin í höggleikshluta mótsins hér Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 21:30
GOS: Andri Páll með 48 punkta!

Klukkan 14:00 í gær, 9. maí 2013 var Svarfhólsvöllur á Selfossi formlega opnaður með Vallaropnunarmótinu. Andri Páll Ásgeirsson fór hreinlega á kostum og spilaði á 2 undir pari, 68 höggum og fékk 48 punkta fyrir vikið!! Stórkostleg spilamennska hjá þessum mjög svo efnilega kylfingi. Andri var með 11.1 í forgjöf fyrir mótið og fór niður í 8,7 eftir hringinn. Andri Páll er partur af Framtíðarhópi GOS og er ný kominn úr æfingarferð hópsins til Spánar. Andri hefur verið mjög duglegur að æfa síðustu árin og má segja að hann búi á vellinum. Úrslit mótsins: 1. Andri Páll Ásgeirsson, 48 punktar. 2. Sigursteinn Sumarliðason, 41 punktur einn besti hestamaður landins og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 11:55
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á besta skori Wake Forest á NCAA svæðamótinu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest taka þátt í NCAA Central svæðamótinu, sem fram fer í Jimmie Austin OU Golf Club, í Austin, Oklahoma dagana 9.-11. maí 2013. Þátttakendur eru 126 frá 24 háskólum. Fyrsti hringurinn var leikinn í gær. Eftir 1. daginn er Ólafía Þórunn á besta skori Wake Forest, sléttu pari, 72 höggum en hún fékk 2 fugla, 14 pör og 2 skolla á hringnum í gær. Í einstaklingskeppninni er Ólafía Þórunn í 26. sæti. Golflið Wake Forest er í 17. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á NCAA Central svæðamótinu og fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar í kvöld SMELLIÐ HÉR
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 11:30
LET: Carlota Ciganda leiðir Turkish Airlines Ladies Open eftir 1. dag

Það er spænski kylfingurinn Carlota Ciganda, sem leiðir eftir 1. hring Turkish Airlines Ladies Open. Hún kom í hús í gær á 4 undir pari, 69 höggum; fékk 5 fugla og 1 skolla. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir Ciganda, þ.e. á 3 undir pari, 70 höggum, voru 4 kylfingar: Sarah Kemp, Cecilie Lundgreen, Lee-Anne Pace og Carmen Alonso. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag og fylgjast með 2. hring, sem er þegar byrjaður SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 09:30
Hver er kylfingurinn: Roberto Castro?

Bandaríski PGA Tour kylfingurinn Roberto Castro leiðir óvænt á The Players mótinu, eftir 1. hring, en mótið hófst í gær. Castro fæddist í Houston, Texas, 23. júní 1985 og er því 27 ára. Pabbi hans er frá Perú og mamma frá Costa Rica. Áhugamannsferill Castro spilaði í bandaríska háskólagolfinu með liði Georgia Tech. Meðan hann var við nám í Georgia Tech var hann útnefndur first-team All-American árið 2005, second-team All-American árið 2007 og honorable mention All-American árin 2004 og 2006. Hann var valinn í All-Atlantic Coast Conference (ACC) liðið á hverju hinna 4 ára sem hann var í Georgia Tech og var valinn ACC nýliði ársins 2004. Hann vann einu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 07:00
Vijay Sing í mál við PGA… en spilar eftir sem áður á The Players

Flestir sem unna golfi voru slegnir þegar fréttist að ein af fyrirmyndunum golfsins, Vijay Singh frá Fidji-eyjum hefði notað ólögleg efni, sem væru á bannlista PGA Tour, en hér er átt við hreindýrahornsspreyið margnefnda. Í kjölfarið var Singh dreginn niður í svaðið og upp úr háði sbr. t.d. meðfylgjandi mynd af kappanum: Veltu menn fyrir sér framhaldinu og hvaða refsingu Vijay myndi fá í kjölfarið. Í síðasta mánuði kom síðan niðurstaðan frá PGA Tour að Vijay Singh hefði ekki gerst brotlegur við vímuvarnaráætlun mótaraðarinnar. Nú hefir Vijay höfðað mál fyrir dómi í NY gegn PGA Tour, vegna ærumeiðinga í sinn garð og vanhæfni PGA mótaraðarinnar að taka á máli sínu. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 05:30
PGA: Castro efstur – jafnaði vallarmetið á TPC Sawgrass – hápunktar og högg 1. dags

Bandaríski kylfingurinn Roberto Castro leiðir eftir 1. dag The Players mótsins í Flórída, sem hófst í gær. Hann jafnaði vallarmetið á TPC Sawgrass, kom í hús á 9 undir pari, 63 glæsihöggum. Skorkortið var einkar glæsilegt en hann skilaði því „hreinu“ þ.e. fékk 1 örn, 7 fugla og 10 pör, m.ö.o. ekkert verra en par. Í 2. sæti, heilum 3 höggum á eftir Castro eru Rory McIlroy og Zach Johnson á 6 undir pari, 66 höggum. Hópur 6 kylfinga deilir síðan með sér 4. sætinu, en þeirra á meðal eru nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods og Steve Stricker. Þeir hafa allir spilað á 5 undir pari, 67 höggum, þ.e. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 10. 2013 | 05:00
Ólafur Björn komst ekki í gegnum úrtökumót fyrir Opna bandaríska

Ólafur Björn Loftsson, NK, tók í gær þátt í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska risamótið, sem að þessu sinni fer fram á Austurvelli Merion í Ardmore, Pennsylvaníu. Úrtökumótið sem Ólafur Björn valdi sér að taka þátt í var haldið í Edgemont Country Club, í Sissionville í Vestur-Virginíu í Bandaríkjunum. Ólafur Björn var 2 höggum frá því að komast á næsta stig úrtökumótsins, spilaði á 72 höggum en efstu 5 komust áfram á næsta stig. Þeir sem efstir voru og komust áfram voru: Bryan Pierce frá Kaliforníu (67); Drew Ernst frá Suður-Karólínu (69); Lawrence Largent, frá Tennessee (70); Paul Saad, Kentucky (70) og Lanto Griffin frá Virginíu (70). Á facebook síðu sína Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

