Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2013 | 11:30

Steve Stricker og Zach Johnson með í Forsetabikarnum

Síðustu tveir sem komust í lið Bandaríkjanna af sjálfdáðum í Forsetabikarnum, sem fram fer í Dublin, Ohio í næsta mánuði eru Zach Johnson og Steve Stricker. Stricker varð í 2. sæti í Deutsche Bank Championship nú um s.l. helgi og Johnson í 27. sæti og þessi árangur tryggði báðum sæti í bandaríska Forsetabikarsliðinu. Steve Stricker var áður búinn að senda Fred Couples, fyrirliða liðs Bandaríkjanna SMS þar sem sagði að ef hann næði ekki inn í liðið sjálfur vildi hann ekki að Couples veldi sig í liðið, en fyrirliðar fá að velja tvo kylfinga og á eftir að tilkynna um þá. Lið Bandaríkjanna skartar nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2013 | 10:00

Stereótýpurnar í golfi – Myndskeið

Hér sjást nokkrar manngerðir í golfi, sem við könnumst öll við af golfvellinum. Það er t.d. gæinn sem virðist vera með glompusegul, gæinn sem aldrei virðist geta talið rétt, gæinn sem er regluvörðurinn í ráshópnum, æðiskastsgæinn, skapsveiflugæinn o.s.frv. Endilega skoðið meðfylgjandi myndskeið af mismunandi manngerðum golfsins SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2013 | 06:50

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn í 1. sæti!!!

Þann 2.-3. september 2013 fór fram Alabama State Golf Classic mótið í Pratville, Alabama. Þátttakendur voru 34 frá 5 háskólum. Meðal þátttakenda voru Hrafn Guðlaugsson, GSE og Sigurður Gunnar Björgvinsson, GK og golflið Faulkner háskóla. Hrafn gerði sér lítið fyrir og varð í 1. sæti í einstaklingskeppninni, en því sæti deild hann með Francis Berthiaume, frá ASU, sem varð í 1. sæti í liðakeppninni. Hrafn spilaði hringina tvo á samtals 2 undir pari 142 höggum (69 73).  Glæsilegur árangur þetta!!! Sigurður Gunnar var hins vegar á 5 yfir pari, 149 höggum  (73 76) og varð í 12. sæti. Lið Faulkner háskóla varð í 2. sæti í liðakeppninni. Leikið var á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 23:30

Sigurpoki Pettersen

Á 11-holu leið á lokahring Safeway Classic notaði sigurvegarinn Suzann Pettersen Nike Mehod Core 3i pútter og fékk 8 fugla. Það sem var í sigurpoka Pettersen var annars eftirfarandi: Dræver: VR_S Covert (9.5°), 3-tré: VR_S Covert  (15°), Blendingur: VR_S hybrid (18 °), Járn: VR Pro Cavity járn (4-5), Járn: VR Pro Combo járn (6-PW) Fleygjárn:  VR Pro wedge-ar (48°, 52° og 59°). Golfbolti: Nike 20XI X golfbolti.


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 21:30

Wake Forest reisir styttu til heiðurs Arnold Palmer

Einn frægasti fyrrverandi nemandi Wake Forest University  er Arnold Palmer, golfgoðsögn í lifanda lífi. Skv. frétt í Winston Salem Journal ætlar útskriftarárgangur Arnold Palmer að reisa styttu til heiðurs kónginum. Palmer hefir verið duglegur að styðja við bakið á karla- og kvenna golfliðum Wake Forest, The Demon Deacons, m.a. með því að styrkja úrbætur á golfaðstöðu við skólann 2010. Auðmjúkur eins og alltaf sagði Palmer um fyrirhugaða styttu af sér: „Það er fallegt af þeim að gera þetta. Ég er ekki viss um að ég eigi það skilið. En samt, ég get ekki beðið eftir að sjá hana og þakka öllum sem komu að þessu.“ Palmer stundaði nám á sínum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 21:00

EPD: Þórður Rafn lauk keppni í 18. sæti í Þýskalandi

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tók þátt í Preis des Hardenberg í Golf Club Hardenberg í Northeim, Þýskalandi. Mótið fór fram 1.-3. september 2013. Þórður Rafn lék á samtals 5 höggum yfir pari, 221 höggum (74 76 71) og lauk keppni í 18. sæti af þeim 46, sem komust í gegnum niðurskurðinn. Glæsilegur árangur þetta! Þórður Rafn fékk um kr. 70.000 íslenskra króna í verðlaunafé. Til þess að sjá úrslitin í Preis des Hardenberg SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 20:45

GK: Ingveldur sigraði á Hellishólum!

Árleg haustferð Keiliskvenna var að þessu sinni farin að Hellishólum á Hvolsvelli og tókst hún afbragðsvel í alla staði. Alls voru 35 konur sem fóru í ferðina og skemmtu sér að sögn hið besta. Að sjálfsögðu var slegið upp golfmóti þar sem 34 luku keppni á Þverárvelli. Leikformið var punktakeppni og sú sem flest stig hlaut og sigraði var Ingveldur Ingvarsdóttir, sem um árabil hefir setið í kvennanefnd Keilis en er nú að víkja úr nefndinni ásamt Þórdísi Geirsdóttur.  Sigurskor Ingveldar voru 33 punktar (13 20) Auglýsa Keiliskonur því eftir nýjum konum til setu í kvennanefnd. Úrslit mótsins í heild voru eftirfarandi:  1 Ingveldur Ingvarsdóttir GK 20 F 13 20 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 20:30

GN: Hefðarmeyjamótið fer fram 5. sept.!

Hið árlega Hefðarmeyjamót GN fer fram fimmtudaginn 5. september n.k. og hefst kl. 17.00. Þema mótsins í ár er köflótt. Mótsstjóri er Stefanía Freysteinsdóttir með síma 862-9982 Skráning hjá Stefaníu og í golfskálanum.


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 20:00

Michael Phelps tekur þátt í Pro-Am fyrir Omega European Masters mótið

Ólympíu-sundstjarnan Michael Phelps er paraður með Richie Ramsay í Pro-Am mótinu á morgun fyrir Omega European Masters mótið, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum og fer fram í Crans-Sur-Sierre golfklúbbnum í Crans Montana, Sviss. Mótið hefst n.k. fimmtudag. Phelps mun þannig spila golf í fyrsta sinn í Sviss, en hann er sérstakur „sendiherra“ fyrir Omega. Ramsay á titil að verja í mótinu. Phelps keppti á Alfred Dunhill Championship í fyrra (2012) og vinnan með golfkennaranum Hank Haney virtist vera að bera ávöxt þá þegar hann setti niður 50 metra pútt á 2. hring mótsins í Kingsbarns. Phelps setti nýtt lengdarmet í púttum í Skotlandi en fyrra metið átti Sir Terry Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Einarsdóttir – 3. september 2013

Það er Hólmfríður Einarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hólmfríður er fædd 3. september 1972.  Hún er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og jafnframt klúbbmeistari Golfklúbbs Úthlíðar í kvennaflokki, tvö ár í röð, 2012 og 2013. Reyndar urðu þau mæðgin, þ.e. Hólmfríður og sonur hennar, afrekskylfingurinn Emil Þór Ragnarsson, klúbbmeistarar Úthlíðar 2013.  Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Hólmfríði með því að SMELLA HÉR:  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hólmfríði til lukku með daginn hér að neðan: Hólmfríður Einarsdottir, GKG & GÚ (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Robert Karlsson, 3. september 1969 (44 ára ) …… og Lesa meira