Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2013 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Einarsdóttir – 3. september 2013

Það er Hólmfríður Einarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hólmfríður er fædd 3. september 1972.  Hún er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og jafnframt klúbbmeistari Golfklúbbs Úthlíðar í kvennaflokki, tvö ár í röð, 2012 og 2013. Reyndar urðu þau mæðgin, þ.e. Hólmfríður og sonur hennar, afrekskylfingurinn Emil Þór Ragnarsson, klúbbmeistarar Úthlíðar 2013.  Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Hólmfríði með því að SMELLA HÉR: 

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hólmfríði til lukku með daginn hér að neðan:

Hólmfríður Einarsdottir, GKG & GÚ (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Robert Karlsson, 3. september 1969 (44 ára ) …… og …….

 

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is