Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2013 | 10:00
3 ára golfgutti – Myndskeið

Hinn 3 ára Michael Patton frá Dublin á Írlandi er alveg ótrúlega góður að chippa ofan í þvottakörfu, sem komið hefir verið upp í stofunni á heimili hans. „Þetta byrjaði allt saman þegar honum var í sífellu að takast að slá plastkúlur inn um þak á leikfangahúsi sínu, „sagði pabbi Michaels litla, Rob Patton. „Þess vegna var þvottakörfunni komið upp. Þegar hann sló í hana ítrekað tókum við fram upptökutækið og tókum höggin hans upp!“ Til þess að sjá Michael litla chippa í þvottakörfuna í stofunni heima hjá sér SMELLIÐ HÉR: Það fer síðan ekkert framhjá neinum í lok myndskeiðsins hver er uppáhaldskylfingur Michaels Patton….. Rory McIlroy. Patton þykir svipa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2013 | 09:15
Couples fyrirliði USA í Ryder Cup 2016?

Hafi komið á óvart að Tom Watson var valinn fyrirliði Bandaríkjanna í Ryder Cup, þá virðist á hinn bóginn augljóst hver leiðir bandaríska Ryder Cup liðið 2016 skv. Phil Casey á Irish Examiner. Fred Couples hefir 5 sinnum tekið þátt í Ryder Cup, sem leikmaður, hann var tvívegis í vinnisngsliði, tvívegis í tapliði og var í liði Bandaríkjamanna þegar liðin skyldu jöfn á Belfry árið 1989. Hann hefir líka sigrað 4 sinnum í röð í heimsbikarnum ásamt Davis Love frá árinu 1992. Nú var Couples fyrirliði Bandaríkjanna í sigri liðsins gegn Alþjóðaliðinu í Forsetabikarnum í Muirfield Village, Ohio um s.l. helgi. Þetta er í 3. sinn í röð sem liðið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 10. 2013 | 08:55
LPGA: Lee leiðir eftir 1. hring í Malasíu

Ilhee Lee frá Suður-Kóreu leiðir eftir 1. hring í móti vikunnar á LPGA, þ.e. LPGA Malaysia. Leikið er í Kuala Lumpur CC. Nr. 39 á Rolex-heimslistanum (Lee) var á 64 höggum og hefir 1 höggs forystu á Brittany Lang frá Bandaríkjunum. Lee fékk 4 fugla á seinni 9 og síðn aðra 3 á fyrri 9. Lee sagði m.a. eftir hringinn góða„það var bara allt sem gekk upp í dag, dræverinn, 6-járnið, pútterinn… það gekk vel með öllu.“ Fjórir kylfingar: Beatriz Recari, Paula Creamer, Jodi Ewart Shadoff and Eun-Hee Ji – eru í 3. sæti eftir hringi upp á 66 högg. Nr. 1 á Rolex-heimslistanum, sú sem á titil að verja, Inbee Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 19:00
Golfvellir í Sviss: Verbier völlur með húsdýri!

Margir íslenskir kylfingar eru ekki kunnugir golfvöllum í Sviss, en líkt og í svissneskum ostum, þá eru líka holur í golfvöllum í Sviss!!! 🙂 Í svissneska bænum Verbier eru tveir golfvellir. Annar er staðsettur nálægt miðbæ Verbier og heitir „les Moulins“. Þetta er frábær par-3 pitch og pútt-völlur. Hann er allur upp í móti, reyndar ansi bratt og flatirnar eru örsmáar frímerkjaflatir, sem þarf mikla nákvæmni að hitta á. Það kostar um 30 svissneska franka (u.þ.b. 4000 íslenskar krónur) að spila hring á les Moulins – og verður seint sagt að hlutir í Sviss séu ódýrir og gildir það um golf sem annað. Hinn golfvöllurinn í Verbier er „les Esserts.“ Hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Annika Sörenstam – 9. október 2013

Annika Sörenstam fæddist í Bro í Svíþjóð 9. október 1970 og er því 43 ára í dag. Annika byrjaði ung að spila golf ásamt Charlottu systur sinni, en þær tvær eru einu systurnar sem hafa unnið sér inn yfir $ 1.000.000 bandaríkjadala í verðlaunafé á LPGA. Alls eru sigrar Anniku frá því hún gerðist atvinnumaður í golfi, árið 1992, 93 talsins, þ.á.m. 72 skráðir sigrar á LPGA, en þar af eru 10 sigrar á risamótum. Annika hefir jafnframt sigrað í 18 alþjóðlegum mótum. Hún er sá kvenkylfingur sem hefir unnið sér inn mesta verðlaunaféð yfir $22 milljónir bandaríkjadala og munar $ 8 milljónum á henni og þeirri sem kemur næst Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 16:30
Kvenstripplingurinn:„Maður er aðeins ungur einu sinni!“

Kimberly Webster, kvenstripplingurinn á Forsetabikarnum vonar að fólk sé ekki of sjokkerað á henni. Hin 23 ára Webster er heldur betur að slá í gegn og golffjölmiðlar sem aðrir fjölmiðlar keppast við að fá viðtöl við hana. Yahoo í Kanada, Yahoo í Ástralíu, Go Wild á Nýja-Sjálandi og fleiri slíkar miðlar berjast um viðtöl og stripplið er farið að margborga sig fyrir hana. Kimberley hljóp næsta nakin niður 18. braut á Muirfield Village Golf Club á Forsetabikarnum s.l. sunnudag. „Það var gaman og er enn. Ég hef alltaf verið hálf villt,“ sagði Webster í einu viðtalanna í morgun. „Mér þykir leitt ef ég hef gengið fram af fólki. En maður er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 15:45
GK: Björgvin snýr sér aftur að golfkennslu
Björgvin Sigurbergsson fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi fyrir Keili hefur verið ráðinn yfirgolfkennari/Íþróttastjóri Keilis. Björgvin snýr aftur til starfa fyrir klúbbinn eftir að hafa tekið sér ársleyfi frá störfum. Það er mikill fengur í reynslubolta einsog Björgvini sem þekkir alla innviði klúbbsins og það starf sem hann stendur fyrir. Samningurinn gildir til loka 2016 og mun Björgvin á næstu vikum kynna fleiri kennara til starfa hjá Keili sem koma til með að mynda kennarateymi klúbbsins.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 15:00
GK: Styrktarmót fyrir karlasveitina

Sunnudaginn 13. október fer fram á Hvaleyrarvelli styrktarmót fyrir karlasveit Keilis sem heldur á Evrópumót klúbbliða í Portúgal. Síðasta mót gekk frábærlega og komust færri að enn vildu, veðurspáin fyrir sunnudaginn er hreint út sagt glæsileg engin vindur og um 10 stiga hiti. Keilisvöllurinn er í frábæru ástandi ennþá og spilast eins og í júlí mánuði hraðar flatir og gæðin framúrskarandi. Keilismenn vonast til að sjá sem flesta, keppt verður með Texas Scramble fyrirkomulagi þar sem deilt er með 5 í samanlagða forgjöf. Athugið að ef samanlögð forgjöf er hærri enn lægri forgjöfin er sú lægri látin gilda. Skráning er hafin…. ….. en það má skrá sig í mótið með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 14:00
Ko efst áhugakvenkylfinga í 3. sinn!

Ný-sjálenski kylfingurinn Lydia Ko hefir tekið við McCormack medalinunni, sem efsti kvenkylfingur á stigalista áhugakvennkylfinga, 3. árið í röð. Ko hlaut medalíuna í dag með viðhöfn úr hendi the Royal & Ancient og United States Golf Association (bandaríska golfsambandinu). Hin 16 ára Ko tókst að verja titil sinn á Canadian Women’s Open á LPGA mótaröðinni og var síðan í 2. sæti á Evian Championship, sem var 5. og síðasta risamót í kvennagolfinu í ár. Þess mætti geta að Ko er nú í 5. sæti Rolex-heimslistans. Aðrir hápunktar á ferli hennar í ár eru 3. sætið á Australian Women’s Open og T-17 árangur á LPGA Championship risamótinu! Geri aðrar 16 ára telpur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2013 | 13:30
Heimslistinn: Harrington í 99. sæti

Þrefaldur risamótsmeistarinn írski Pádraig Harrington er nú fallinn ofan í 99. sæti á heimslistanum. Þetta er það lægsta sem hann hefir verið á listanum í yfir 14 ár. Harrington komst fyrst meðal efstu 100 í heimi í fyrstu viku október 1996 þegar hann fór úr 104. sæti í 95. sæti eftir að landa 8. sætinu í Linde German Masters mótinu. En hann féll síðan aftur af topp-100 12. júlí 1998 og var á tímabili utan topp-100 þ.e. til 25. apríl 1999 og allt síðan þá hefir Harrington verið innan topp-100 á heimslistanum og hefir komist hæst í 3. sætið í febrúar 2009. Líkt og Tiger hefir Harrington ekki sigrað í Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

