Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 12:10
Brot af samtali Rory og Tiger í einvíginu í Kína

Rory McIlroy hefir útskýrt hvers vegna hann ætlar að taka upp fasta búsetu í Bandaríkjunum á næsta ári og gera $10.9 milljóna heimili sitt í Palm Beach Gardens, Flórida, að lögheimili sínu. Hann lét líka nokkur orð falla um nýjan dræver sem koma mun honum í sigurgírinn aftur á golfvellinum og hann talaði líka um vandræði sín með fleygjárnin og púttin. Allt þetta og fleira var það sem Rory sagði við Tiger þegar þeir áttust við í einvíginu við Jinsha vatn á Hainan eyju í Haíkou, Kína s.l. mánudag, en þessu einvígi var sjónvarpað um allt Kína og m.a. líka hvaða orðaskipti áttu sér stað á milli stórstjarnanna, nokkuð sem sjaldnast Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 12:00
Afmæliskylfingur dagsins: Mayumi Hirase – 30. október 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Mayumi Hirase frá Japan (jap: 平瀬真由美). Hún fæddist í dag fyrir 44 árum, þ.e. 30. október 1969, í Kumamoto, í Japan. Mayumi er atvinnumaður í golfi, sem m.a. hefir sigrað 18 sinnum á japanska LPGA. Sigra sína í Japan vann hún á árunum 1989-2000. Mayumi hefir jafnframt sigrað 1 sinni á bandaríska LPGA; það var 1996 á Toray Japan Queens Cup. Mayumi Hirase 1995 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Samskipti Ehf Guðjón Smári Guðmundsson (52 ára) Sesselja Björnsdóttir (56 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 10:45
Lindsey hjá Letterman – fór holu í höggi á 1. 18 holu hring sínum

Í fyrradag, 28. október 2013, kom kæresta Tiger, Lindsey Vonn fram í skemmti og viðtalsþætti David Letterman. Þar var m.a. talað um slys Lindsey í Schladming í Austurríki. Og aðspurð sagði Lindsey ekkert hlakka til Ólympíuleikanna! ha ha ha 🙂 Svona á alvarlegri nótunum þá þakkaði hún móður sinni, sem var með henni í þættinum allt sem hún hefði gert fyrir sig og sagði að flestir íþróttamenn væru ekki þar sem þeir væru án mæðra sinna!!! Annað áhugavert sem Lindsey sagði frá var að hún hefði farið holu í höggi í fysta sinn sem hún hefði spilað 18 holur!!! Hún er sem sagt frambærilegur kylfingur og var í framhaldinu spurð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 09:45
Þjálfari Man City settur á biðlista í golfklúbb

Þjálfari enska fótboltaliðsins Manchester City, Manuel Pellegrini hefir verið settur á biðlista í golfklúbbi þar sem hann og kona hans sóttu um félagsaðild, þ.e. Hale Golf Club. Sagt er að Pellegrini hafi þegar farið að leita sér að hentugum golfklúbb eftir að hann kom til Manchester og féll fyrir 9 holu golfvelli Hale, ásamt konu sinni, sem líka er æstur kylfingur. Chile-maðurinn Pellegrini hefir tekið nokkra hringi ásamt konu sinni í Hale og búist var við að þau yrðu tekin inn sem félagar þá þegar vegna þess hve þekktur Pellegrini er, sem og því að hann átti ekki í nokkrum vandræðum með að greiða inntökugjald £1,245 (eitthvað um 200.000 íslenskar krónur) og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 09:00
Bandaríska háskólagolfið: Hrafn, Sigurður Gunnar og félagar luku leik í 1. sæti!!!

Hrafn Guðlaugsson, klúbbmeistari GSE 2012 og Sigurður Gunnar Björgvinsson, GK og golflið Faulkner luku leik í gær í Red Hawk Classic mótinu, sem fram fór í Lawrenceburg, Tennessee dagana 28.-29. október 2013. Það er skemmst frá því að segja að golflið Faulkner lauk keppni í 1. sæti og Hrafn var á besta skori liðs síns, auk þess em Hrafn lauk keppni í 2. sæti í einstaklingskeppninni!!!! Stórglæsilegt hjá Hrafni!!!! Hrafn lék á samtals 2 undir pari, 140 höggum (69 71). Sigurður Gunnar bætti sig seinni daginn, fór úr 13. sætinu sem hann var í, í einstaklingskeppninni fyrri daginn, í 11. sætið. Sigurður lék á samtals 5 yfir pari, 147 höggum (74 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 08:45
Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og The Royals luku leik í 9. sæti

Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og golflið Queens háskólans, The Royals luku í gær leik á 2013 Rock Barn Intercollegiate. Mótið var tveggja daga og fór fram 28.-29. október 2013. Það var í boði Lenoir-Rhyne háskólans í Conover , Norður-Karólínu. Þátttakendur voru 75 frá 14 háskólum. Íris Katla og The Royals luku leik í 9. sæti í liðakeppninni og þar taldi skor Írisar Kötlu sem var á 2. besta skori liðs síns. Í einstaklingskeppninni lauk Íris Katla keppni í 43. sætinu, á samtals 163 höggum (82 81). Næsta mót Írisar Kötlu og The Royals er á afmælisdegi hennar 10. febrúar í Jacksonville, Flórída á næsta ári, 2014. Til að sjá lokastöðuna á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 08:30
Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már lauk leik í 9. sæti í Flórída

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese luku í gær keppni í Quail Valley Collegiate Invitational, en mótið fór fram í Quail Valley golfklúbbnum á Vero Beach í Flórída. Það var háskóli Ragnars, McNeese, sem var gestgjafi í mótinu, þó það væri haldið 900 mílur í suður frá skólanum, í Flórída, en mótið var síðasta mót skólans fyrir jól. Ragnar Már lék samtals á 1 yfir pari, 217 höggum (72 68 77). Hann var á 3. besta skori McNeese, liðs síns, sem varð í 2. sæti í liðakeppninni!!! Nú taka við próf hjá Ragnari Má í McNeese og vonandi golf inn á milli!!! Til þess að sjá lokastöðuna í Quail Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 30. 2013 | 08:00
Ko fær undanþágu á LPGA

Hinn 16 ára nýsjálenski kylfingur Lydia Ko hlaut náð fyrir augum bandaríska LPGA þann 28. október s.l. til þess að fá að spila á bandarísku LPGA mótaröðinni, sem er sterkasta kvenmótaröð heims. Þá vantar næstum 1/2 ár upp á dag að Ko verði 17 ára. Ko var búin að sækja um undanþágu á grundvelli þess að hún hefir þegar sigrað tvívegis á LPGA þ.e. á Canadian Open 2012 og svo tókst henni að verja titil sinn í ár. Ko er þegar búin að skrifa sig í sögubækur LPGA, en hún er bæði yngsti kylfingurinn til að vinna mót á mótaröðinni og yngst til að verja titil á mótaröðinni. Þegar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 20:00
GK: Glæsilegt kynningarmyndskeið Keilis

Golfklúbburinn Keilir hefir látið gera glæsilegt kynningarmyndskeið á ensku, sem ætlað er að laða erlenda ferðamenn á Hvaleyrina. Meðal þeirra sem fram koma í myndskeiðinu er meistari Opna bandaríska í ár, Justin Rose, sem spilað hefir Hvaleyrina og segir hana algerlega einstæða, sem hún svo sannarlega er. Það var Nordic Video sem sá um gerð myndskeiðsins. Til þess að sjá kynningarmyndskeiðið um Hvaleyrina og Gollfklúbbinn Keili í Hafnarfirði SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 29. 2013 | 13:00
Afmæliskylfingur dagsins: James Alexander Barclay – 29. október 2013

James Alexander Barclay fæddist 29. október 1923 í Glasgow og hefði orðið 90 ára í dag en hann lést 3. desember 2011, 88 ára að aldri. Barclay var rannsóknarmaður og forstjóri í kanadíska olíubransanum, en einnig kylfingur og höfundur 626 bls. golfbókar, sem nefnist: Golf in Canada – A history, sem er yfirgripsmesta verk, um golf sem gefið hefir verið út í Kanada. Barclay hóf feril sinn með því að spila með járnum með valhnotu (hickory) sköftum í Skotlandi. Hann útskrifaðist í efnafræði frá Glasgow háskóla og vann stærstan part ævinnar í olíubransanum og náði hæst að verða varaforstjóri olíufyrirtækis. Hann fluttist til Kanada 1968, en settist í helgan stein 1983 Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

