Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2013 | 12:30

Afmæliskylfingur dagsins: Alison Whitaker – 23. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er ástralski kylfingurinn Alison Whitaker. Alison er fædd 23. nóvember 1985 og er þvi 28 ára í dag. Hún spilaði m.a. í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Duke University en útskrifaðist 2010 með gráðu í sálfræði. Nú spilar hún á Symetra Tour. Sjá má nýlegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: 

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Gary Rusnak, f. 23. nóvember 1962 (52 árs); Jerry Kelly, f. 23. nóvember 1966 (47 ára); Paul Penny, f. 23. nóvember 1972 (41 árs)

…… og …..

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is