Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 25. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingur dagsins: Jóhann Adolf Oddgeirsson og Art Wall – 25. nóvember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir, Arthur Jonathan Wall, Jr., alltaf kallaður Art Wall og Jóhann Adolf Oddgeirsson.

Art Wall fæddist 25. nóvember 1923 í Honesdale, Pennsylvaníu og hefði því orðið 90 ára í dag hefði hann lifað. Hann stundaði nám við Duke University og útskrifaðist 1949 sem viðskiptafræðingur. Á atvinnumannsferli sínum vann hann 24 sinnum, þar af 14 sinnum á PGA. Af 14 titlum sínum á PGA vann hann 4 árið 1959, en það ár var hann valinn leikmaður ársins á PGA og hlaut Vardon Trophy fyrir lægsta meðaltalsskor. Eins var hann efstur á peningalistanum það ár með verðlaunafé upp á   $53,167.50 sem er eitthvað í kringum  $360.000,- uppreiknað á gengi dagsins í dag.

Art Wall

Hápunktur ferils Arts á PGA var þegar hann sigraði 1959 á Masters. Á lokahringnum fékk hann 5 fugla á síðustu 6 holunum og kom í hús á 66 höggum og sigraði þar með Cary Middlecoff og þann sem átti titil að verja, Arnold Palmer.

Art Wall var í Ryderbikarsliði Bandaríkjanna árin : 1957, 1959, og 1961.

Art Wall er líka þekktur fyrir að hafa 45 sinnum farið holu í höggi (þ.m.t. á æfingahringjum), sem var heimsmet í mörg ár.

Art Wall dó í Scranton, Pennsylvaníu eftir langvarandi veikindi  31. október 2001.

————————

Hinn afmæliskylfingurinn Jóhann Adolf er fæddur 25. nóvember 1973 og á því 40 ára merkisafmæli í dag. Jóhann Adolf er í Golfklúbbi Setbergs. Hann er kvæntur Rut Sig og á tvær dætur og einn son.  Komast má á facebook síðu Jóhanns Adolfs til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan:

Jóhann Adolf Oddgeirsson  (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Amelia Rorer, 25. nóvember 1952 (61 árs); Nolan Jay Henke, 25. nóvember 1964 (49 ára)…. og …..

Golf 1 óskar öllum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is