Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 21:00

Golfsvipmynd dagsins: Æft í íslenska vorinu!

Þessi mynd var sett á facebook af  Golfklúbbi Reykjavíkur Unglingum. Hún sýnir ungan GR-ing við æfingar, jafnvel þegar veðrið er ekki upp á sitt besta. Það er hvergi slegið slöku við og æft af hörku!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 20:30

GB: Glæsilegri inniaðstöðu komið upp!

Það er verið að koma upp glæsilegri inniaðstöðu fyrir kylfinga í Borgarnesi. Nýja æfingaaðstaðan er 300 fm og er staðsett að Brákarey. Þar er að finna allt sem prýða þarf fyrsta flokks æfingaaðstöðu innanhúss: stórt púttæfingasvæði, vippæfingasvæði og 4 æfingabásar. Meðfylgjandi myndir birti framkvæmdastjóri GB af uppbyggingu nýju æfingaraðstöðunnar á facebook:


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Alfredo Garcia Heredia – 19. desember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er spænski kylfingurinn Alfredo Garcia Heredia. Hann er fæddur 19. desember 1981 og á því 32 ára afmæli í dag.  Hann komst í gegnum Q-school Evrópumótaraðarinnar 2010 og spilaði því á Evrópumótaröðinni 2011. Hann reyndi haustið 2011 við 2. stig Q-school PGA, en líkt og Birgir Leifur Hafþórsson, komst hann ekki í gegn – en þeir öttu m.a. kappi hvor við annan þá. Árið 2012  reyndi Alfredo m.a. fyrir sér á 1. stigi úrtökumóts fyrir PGA Tour í Pine Mountain, Georgíu en dró sig úr mótinu síðasta daginn. Árið 2012 hefir verið ansi dapurt en Alfredo fékk aðeins að leika í 3 mótum á Áskorendamótaröð Evrópu og besti árangurinn í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 15:00

Sterkir þáttakendur í Volvo China Open

The Volvo China Open fer fram 24.-27. apríl 2014  í Genzon Golf Club, Shenzhen, í Suður-Kína. Nokkrir af sterkustu kylfingum heims hafa boðað þátttöku sína þar og nægir þar að nefna: Henrik Stenson, Jason Dufner og Ian Poulter. Þetta er í 82. Volvo mótið á Evrópumótaröðinni.  Sigurlaunin eru ekki af verri endanum eða $ 3.3. milljónir. Volvo sér um skipulagningu mótsins ásamt kínverska golfsambandinu og Evrópumótaröðinni og OneAsia mótaröðinni.    


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 13:00

Um grein Michael Kelly: „Góðar ástæður fyrir golfklúbbum þar sem körlum er einum veitt félagsaðild“ (1/5)

Michael Kelly skrifar grein í The Scotsman, sem á frummálinu heitir „Good reasons for male-only clubs.“  Lesa má greinina með því að SMELLA HÉR:  Þar dregur Kelly fram ýmis rök til stuðnings tilverurétti golfklúbba þar sem aðeins karlmenn mega eiga félagsaðild að. Rökin eru hefðbundin þar týnir Kelly fyrst til venjuna, sbr. („It takes a powerful argument to overcome that length of tradition and none has so far been found to overwhelm the preferences that these clubs express.“ – Lausleg þýðing: Það þarf sterk rök til þess að fella burt svo langa venju og að svo komnu hafa engin (rök) fundist, sem eru sterkari en sá framdregni valkostur, sem þessir klúbbar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 12:00

Moe Norman – Einn besti kylfingur heims í nákvæmum höggum – (7/8)

Kanadíski kylfingurinn Murray Irwin Norman alltaf kallaður Moe var e.t.v. einn besti kylfingur heims á sínum tíma í að slá bein högg, Vegna þess hversu bein högg Moe voru var hann uppnefndur „Pipeline Moe.” Moe gerðist atvinnumaður í golfi 1957 og sigraði m.a.  í 55 mótum um ævina, átti 3 hringi upp á 59 högg og nokkra upp á 60, hann á m.a. 34 vallarmet sem mörg hver eru enn í gildi og fór 17 sinnum holu í höggi. Þegar Mo var 5 ára lenti hann í slysi og var talið að hann hefði hlotið heilaskaða. A.m.k. varð Moe aldrei eins og fólk er flest, var einfari, sérvitur, þótti skrítinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 11:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2014: Wade Ormsby (19/27)

Í dag verður fram haldið að kynna þá 4  stráka, sem deildu  8.-11. sæti í Q-school Evrópumótaraðarinnar, sem fram fór á Catalunya golfvellinum, í Girona, á Spáni, 10.-15. nóvember 2013. Þetta voru þeir James Morrison, Stuart Manley, Wade Ormsby og Connor Arendell, en af þeim hafa James Morrisson og Stuart Manley þegar verið kynntir. Allir léku þeir á samtals 12 undir pari, 416 höggum og hlutu € 4.085 í verðlaunafé. Í dag verður Wade Ormsby kynntur en hann varð í 9. sæti í Q-school, lék á (69 67 70 69 70 71). Wade Ormsby er fæddur 31. mars 1980 í Adelaide í Ástralíu og er því 33 ára. Wade býr í Adelaide og golfklúbburinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 10:00

Charley Hull vildi verða njósnari (1/5)

„Já, ég vildi verða njósnari“ segir Charley Hull grafalvarlegri röddu, aðspurð hvað hún vildi verða hefði hún ekki gerst atvinnumaður í golfi. Þessi 17 ára Solheim Cup stjarna, sem nýlega var valin nýliði ársins á LET sagði nú nýlega í viðtali að ef henni hefði ekki verið kennt heima „myndi ég líklega enn vera í skóla. Vinir mínir eru flestir snyrtifræðingar og hárgreiðslukonur og fleira í þeim dúr.  Stráka vinir mínir eru flestir byggingarmenn. Þannig að ég myndi líklegast hafa orðið snyrtifræðingur  …… jafnvel þó ég hefði kosið að verða njósnari.“ Nú á árinu varð Hull fimm sinnum í 2. sæti í fyrstu 6 mótunum sem hún lék í á LET. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 09:00

Stricker heldur sig við takmarkaða mótaskrá

Steve Stricker fækkaði á þessu ári þeim mótum sem hann spilaði í á PGA Tour og það reyndist svo vel að hann ætlar að halda sig við takmarkaða mótaskrá sína á árinu 2014, líka. Hinn 46 ára Stricker viðurkenndi að hann hafi verið að hugsa um að halda sér frá keppni mestallt árið þar sem hann taldi að Tournament of Champions mótið í Maui á Hawaii myndi verða það síðasta sem hann spilaði í. „Hvað ef ég færi til Kapalua til að verja titil minn og spilaði ekkert afganginn af árinu?“ hugsaði Stricker. En hann ákvað loks að pakka kylfunum ekki niður og spilaði í 13 mótum á árinu 2013, þar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 19. 2013 | 07:00

NÝTT!!! Nýju stúlkurnar á LET 2014

Þó Valdís Þóra „okkar“ Jónsdóttir, GL, hafi ekki komist í gegnum Lalla Aicha Tour School LET  að þessu sinni var það 31 kylfingur, sem „útskrifaðist“ úr skólanum þ.e. var á lægsta skorinu eftir 5 hringi á golfvöllum Al Maaden og Samanah Country Club í Marokkó, en lokaúrtökumótinu lauk í gær, 18. desember 2013. Golf 1 verður nú, sem fyrri ár, með kynningu á þessum glæsilegu kylfingum, sem nú eru búnar að tryggja sér kortin sín á Evrópumótaröð kvenna næsta árið, þ.e. keppnistímabilið 2014. Fyrst ber að geta það að það var „norska frænka okkar“ Caroline Martens, sem sigraði í Q-school að þessu sinni eftir glæsilokahring upp á 8 undir pari, 64 högg og Lesa meira