Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 20. 2013 | 15:00

GKG: Góð æfingaaðstaða í Kórnum

Æfingaaðstaða GKG er opin í Kórnum fyrir félagsmenn GKG og nú er um að gera að nýta sér hana og æfa vel í vetur!

Opið er alla daga, nema þegar æfingar barna- og unglingastarfsins eru í gangi.

Mán-fim: 08-14:45; 20:00-22:00

Fös: 08-14:45; 17:00-22:00

Helgar: Allan daginn, nema þegar púttmót eða aðrir viðburðir eru í gangi, en það verður auglýst með fyrirvara.

Við biðjum alla iðkendur um að ganga vel um svæðið og skilja ekki eftir golfbolta á flötinni eða í netunum. Þetta er okkar aðstaða og við berum ábyrgð á að hún sé snyrtileg.

Athugið að golfskór eru ekki leyfðir, af hreinlætisástæðum og til verndar gervigrasinu.

Heimild: GKG

Höfundur: Úlfar Jónsson