Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 15:00
Golfsvipmynd dagsins: Frá Ásatúni

Þessi mynd var tekin á síðasta degi ársins 2013 á Ásatúnsvelli á Suðurlandi – velli sem margir eiga eftir óspilaðan og ættu endilega að drífa sig í að leika hann, nú með sumrinu 2014. Ásatúnsvöllur er gríðarlega skemmtilegur 9 holu völlur rétt hjá Golfklúbbi Flúða og þar fer árlega fram Topp-mótið. Það var sjálfur formaður Ásatúns og eigandi bifreiðaverkstæðisins Topps, Sigurjón Harðarson, sem var að æfa sveifluna í Ásatúni. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Sigurjón með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 13:45
Ernie Els skiptir yfir í Adams

Suður-afríski kylfingurinn Ernie Els hefir ritað undir golfútbúnaðarsamning til fjölda ára við framleiðandann Adams Golf. Skv. samningnum mun 4-faldi risamótsmeistarinn (Els) m.a. nota golfútbúnað Adams og vera með lógó fyrirtækisins á deri sínu og poka. „Sem leikmaður þá eru margir þættir sem skipta máli varðandi útbúnaðinn. Allt varðandi Adams heillar mig, allt frá ákafa og orku framámanna fyrirtækisins til rannsóknar- og þróunardeildar þeirra, sem og sterkra golfvara þeirra,“ sagði Els m.a. eftir undirritun samningsins. „Ég hef gengið til liðs við fyrirtæki þar sem nýjunargirni er hjartansmál í öllu sem þeir gera, þar sem gengið er langt fram til þess að koma í framkvæmd nýjum hugmyndum sem að lokum hjálpa leikmönnum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 13:00
Nýju stúkurnar á LET 2014: Nina Muehl (7/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 23. sætinu (voru jafnar í 23.-26. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 yfir pari, 361 höggi: Hannah Ralph, Lucy Andre, Nina Muehl og Karolin Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 10:00
NÝTT!!! Fréttir frá Champions Tour og EST

Það er mikið ánægjuefni að tilkynna nýjustu viðbót við fréttaefni Golf 1 á nýja árinu 2014 – en það er umfjöllun frá mótum bandarísku Champions Tour þ.e. öldungamótaröð PGA. Þrír efstu á peningalistanum 2013 á Champions Tour voru þeir Kenny Perry, Bernhard Langer og Fred Couples og verður sérlega gaman að fylgjast með þeim köppum og öðrum stórkylfingum, á næstu mánuðum, m.a. mönnum á borð við Sir Nick Faldo. Næsta mót á Champions Tour fer fram í Hawaii, en það er Mitsubishi Electric Championship á Hualalai golfvellinum í Ka’upulehu-Kona, þ.e. 17. janúar n.k. Jafnframt verður Golf 1 með umfjöllun um European Seniors Tour (skammst. EST), sem er hliðstæða Champions Tour. Á þeirri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 08:00
GSS: Arnar og Nína sigruðu í jólamótinu

Arnar Geir Hjartarsson og Nína Þóra Rafnsdóttir urðu hlutskörpust í jólamótinu í golfherminum á Sauðárkróki. Arnar gerði sér lítið fyrir og spilaði Castle Pines völlinn á 66 höggum eða 60 höggum þegar forgjöf hefur verið reiknuð inn í málið. Arnar sigraði án forgjafar. Í öðru sæti varð Ingvi Þór Óskarsson á 69 höggum og þriðji Guðmundur Ragnarsson á 76 höggum. Með forgjöf sigraði Nína Þóra Rafnsdóttir á 57 höggum. Arnar Geir varð annar á 60 höggum. Þau Nína og Arnar hlutu í verðlaun glæsilega ostakörfu í boði Hlíðarkaups.
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 07:48
GA: Samherji styrkir barna- og unglingastarf

Samherji hf. boðaði til móttöku í á dögunum í KA-heimilinu á Akureyri og afhenti við það tækifæri styrki til ýmissa samfélagsverkefna á Eyjafjarðarsvæðinu upp á rúmar 80 milljónir króna. Flestir styrkirnir voru gagngert veittir til að efla barna- og unglingastarf í íþrótta- og æskulýðsfélögum á Eyjafjarðarsvæðinu. Þetta er sjötta árið í röð sem Samherji afhendir slíka styrki. Þátttaka barna og unglinga í íþróttum er ómetanlegur í forvörnum og uppeldi. Samherji vill efla þjálfun og annað starf félaganna og um leið stuðla að því að sem flest börn og unglingar geti stundað þær íþróttagreinar sem hugur þeirra stendur til. Fjármununum skal varið til að lækka æfingagjöld barna og unglinga og/eða til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 07:30
Paul Lawrie svarar fyrir sig

Í gær var afmælisdagur Paul Lawrie, en hann varð 45 ára. Og svona rétt til að gera daginn „skemmtilegri“ fyrir hann birtist grein á CBS Sports.com, nokkrum dögum fyrir afmælið, þar sem fremur óþekktur golffréttamaður, Evan Hilbert listar upp „10 verstu risamótssigurvegarana.“ Listinn var eftirfarandi: 10. sæti Steve Jones (1996 US Open winner), Ian Baker-Finch (1991 Open Championship), Wayne Grady (1990 PGA Championship), Larry Mize (1987 Masters), Todd Hamilton (2004 Open Championship), Michael Campbell (2005 US Open), Rich Beem (2002 PGA Championship), 3. sæti Paul Lawrie (1999 Open Championship), Orville Moody (1969 US Open), Shaun Micheel (2003 PGA Championship). Eftir 3. hring á Opna breska 1999 var Lawrie 10 höggum á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 07:00
Adam Scott tekur ekki þátt í heimsmótinu í holukeppni

Masters meistarinn 2013 Adam Scott tekur þátt í móti vikunnar á PGA Tour, Tournament of Champions, sem hefst á morgun í Hawaii, en eftir það ætlar hann sér að taka 6 vikna frí og tekur þ.a.l. ekki þátt í Accenture heimsmótinu í holukeppni í Arizona. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2002 að Scott sleppir því að taka þátt í heimsmótinu í holukeppni, en honum hefir aldrei gengið neitt sérlega vel í því móti. Scott hefir þannig dottið út í fyrstu umferð s.l. 3 ár og hann hefir ekki komist lengra en í 2. umferð frá árinu 2005, en þá var mótið haldið í La Costa Resort norður við Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 2. 2014 | 00:30
GKG: Kristófer Orri náði frábærum árangri í PARS Junior í Orlando

Þrír af efnilegustu kylfingum GKG eru staddir í jólafríi með fjölskyldum sínum í Orlando og tóku þátt í sterku unglingamóti á PARS Junior mótaröðinni. Mótið fór fram 28.-30. desember og var haldið á Orange County National, sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnur, en íslenski landsliðshópurinn fór nokkur ár þangað í æfingaferðir. Einnig er þar haldið annað hvert ár lokakeppnin í úrtökumótinu um sæti á PGA mótaröðinni. Þeir Bragi Aðalsteinsson, Hlynur Bergsson og Kristófer Orri Þórðarson tóku þátt í mótinu og stóðu sig allir mjög vel og öðluðust góða og mikilvæga reynslu sem nýtist þeim á komandi tímabili. Kristófer náði frábærum árangri og lék hringina þrjá á aðeins 4 höggum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 1. 2014 | 23:30
Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir – 1. janúar 2014

Afmæliskylfingur Nýársdags í ár er Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir. Guðrún Ólöf er fædd 1. janúar 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Guðrún Ólöf Þorbergsdóttir · 50 ára Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mike Sullivan, 1. janúar 1955 (59 ára); Paul Lawrie, 1. janúar 1969 (45 ára)…… og ….. Utadborda Is · 34 ára Emil Thorarensen Portugal Golf Show · 24 ára Tuddi Útgáfa · 24 ára Fjölnir Su · 50 ára Baldvin Njálsson · 26 ára Gaby Golf Campanario · 43 ára Heaton Park · 102 ára Tálknafjörður Myndir · 109 ára Fallegustu Konur Íslands Ísland · 44 Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

