Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 11. 2014 | 12:30

PGA: John Daly nær niðurskurði – en meiddur á olnboga aftur og óvíst hvort hann klárar!

John Daly sneri aftur á  PGA Tour eftir að hafa verið í 6 mánuði frá, en hann gæti þurft að vera enn lengur frá, eftir að meiðsl í olnboga tóku sig upp eftir högg Daly í sandglompu á 3. holu 2. hrings Sony Open.

Daly, sem fór í uppskurð með olnbogann 9. júlí til þess að láta laga rifna sin, virðist hafa rifið upp sárið á 12. holu  Waialae Country Club (3. holu á 2. hring Daly) þar sem hann var að slá úr flatarglompu.

Þá voru 15 holur eftir og leikur Daly eftir það býsna skrautlegur vegna verkjar í olnboganum – hann var m.a. með 2 skramba, 3 skolla, 2 fugla og örn það sem eftir var! …. og rétt náði í gegnum niðurskurð þann fyrsta frá því hann spilaði í  FedEx St. Jude Classic, 2013, þar sem hann varð í 77. sæti.

„Ég gat bara ekki hætt að húkka,“ sagði Daly um hring sinn í gær.  „Guð sé lof púttaði ég vel.“

Daly var með 22 pútt og chippaði eitt sinn beint ofan í þ.e. á 18. holu þegar hann fékk örninn!

Daly hafði ekkert spilað á PGA Tour frá því á Greenbrier Classic á síðasta ári og var að vonast eftir að olnbogameiðslin væru að baki.  Óvíst er hvort hann nái að klára mótið, hann er með olnbogann á ís yfir nótt og bíður bara úrskurðar lækna rétt fyrir 3. hring mótsins.