Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2014 | 10:30
Matt Kuchar tekur fjölskylduna með

Bandaríski kylfingurinn Matt Kuchar er nr. 8 á heimslistanum. „Líf hans er eitt allsherjar ferðalag,“ segir vinur Matt Kuchar, Gary Woodland, en Guði sé lof er hann ekki einn á því ferðalagi. Með honum í för, hvert sem hann fer eru eiginkona hans Sybi og synir hans Cameron, 6 ára og Carson, 4 ára. Saman hafa þau ferðast í ystu kima veraldarinnar, allsstaðar þangað sem mót PGA mótaraðarinnar eru haldin. „Það er gaman að hafa fólk til að deila reynslu sinni með,“ sagði Kuchar. „Ef maður vinnur golfmót, þá vill maður hafa konuna sína og krakkana hlaupandi á flötina til þess að samfagna. Það væri fúll endir á sunnudeginum að fá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2014 | 10:00
Sólskinstúrinn: Fyrstu suður-afrísku tvíburarnir í golfatvinnumennsku

Ef Louis Taylor og tvíburabróðir hans Eddie komast báðir í gegnum úrtökumót, sem fram fer þessa viku, til þess að spila á Sólskinstúrnum, en úrtökumótið fer fram í Bloemfontein golfklúbbnum og Schoeman Park golfklúbbnum, þá munu þeir verða fyrstu suður-afrísku tvíburnarnir í golfatvinnumennsku. Louis hefir þegar vakið athygli á sér en hann hlaut Freddie Tait Cup fyrir að vera efstur áhugamanna í Opna suður-afríska meistaramótinu (ens. South African Open Championship) s.l. nóvember og var þá eini áhugamaðurinn til þess að ná niðurskurði. Hann lék á samtals 1 yfir pari, 289 höggum og var með lokahring upp á 78; en í mótinu vann Daninn Morten Örum Madsen „Ég er svo þakklátur að suður-afríska golfsambandið veitti mér tækifæri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2014 | 09:30
Clarke dregur sig úr Qatar Masters

Darren Clarke tilkynnti í dag að hann muni ekki taka þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum: Qatar Masters. Það eru meiðsl fyrir bringu og í brjósti sem urðu til þess að Darren Clarke dró sig úr Qatar Masters, en hann meiddist við æfingu á æfingasvæði Doha golfklúbbsins, eftir Pro-Am hluta mótsins í gær. Clarke kom á æfingasvæðið á mótsstað í morgun og sló nokkra bolti en tilkynnti fljótlega um að hann gæti ekki tekið þátt í mótinu. Heiðra átti Clarke í dag en hann er 25. kylfingurinn á Evróputúrnum, sem spilað hefir í 500 mótum – Þetta varð endasleppt; Clarke fór bara aftur upp á hótel og flaug síðan heim Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 22. 2014 | 07:00
Golfútbúnaður: Tvöfaldur sigur Stóru Berthu!

Phil Mickelson og Pablo Larrazábal voru báðir með „Stóru Berthu“ þ.e. Callaway Big Bertha Alpha dræverinn í pokum sínum s.l. helgi, en þeir urðu í 1. og 2. sæti á móti s.l. helgi: Abu Dhabi Golf Championship Rifja má upp kynningu Golf 1 á þessari stóru undraspýtu með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 21:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jack Nicklaus —— 21. janúar 2014

Það er golfgoðsögnin og Íslandsvinurinn Jack Nicklaus sem á 74 ára afmæli í dag, en Jack er fæddur 21. janúar 1940. Golf 1 birti í fyrra 12 greinar til kynningar á þessum einum besta kylfingi allra tíma og má sjá þær með því að smella hér: Jack Nicklaus 1; Jack Nicklaus 2; Jack Nicklaus 3; Jack Nicklaus 4; Jack Nicklaus 5; Jack Nicklaus 6; Jack Nicklaus 7; Jack Nicklaus 8; Jack Nicklaus 9; Jack Nicklaus 10; Jack Nicklaus 11; Jack Nicklaus 12 Já, Jack William Nicklaus er 74 ára í dag en hann fæddist í Columbus, Ohio 21. janúar 1940. Jack Nicklaus hefir á ferli sínum sigrað 115 sinnum og er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 20:30
Paul McGinley: „Ég er fyrirliði Ryder Cup en ekki Guð!“

Fyrirliði liðs Evrópu í Ryder Cup, Paul McGinley, skriftaði að hann væri ekki Guð og ekki væri hægt að ætlast til af honum að hann andi stöðugt ofan í hálsmálið á Rory McIlroy og öðrum þvílíkum, sem reyna að komast í lið hans á Gleneagles. Þó Rory hafi ekki unnið í Abu Dhabi, þá hefir hann ekki sést jafnhátt á skortöflu mestallt árið 2013. Rory er nú nr. 7 á heimslistanum eftir T-2 árangur sinn í Abu Dhabi og sá árangur hefir orðið til þess að hann er í 7. sæti á stigatöflu þeirra sem komast í evrópska Ryder Cup liðið. Og meðan McGinley er auðvitað ánægður með að Rory Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 19:30
Ólafur Björn á 4 yfir pari eftir 1. dag í Flórída

Ólafur Björn Loftsson, NK, lék 1. hring sinn á úrtökumótinu fyrir Latino América NEC Series í dag. Hann átti vægast sagt erfiðan hring á Deere Run golfvelli Sun N´ Lake Golf Club í Sebring, Flórída. Ólafur Björn spilaði á 4 yfir pari, 76 höggum. Hann fékk fugl, 3 skolla og skramba. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag úrtökumótsins í Sebring SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 18:00
Þórður Rafn á 3 yfir pari eftir 1. dag í Tyrklandi

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tekur um þessar mundir þátt í Sueno Dunes Classic mótinu, sem fram fer í Tyrklandi, en mótið er hluti af þýsku Pro Golf mótarðinni. Þórður spilaði 1. hring á 3 yfir pari, 72 höggum og deilir 49. sæti ásamt 10 öðrum, en 90 þátttakendur eru í mótinu. Á hringnum fékk Þórður Rafn 2 fugla, 3 skolla og 1 skramba. Til þess að sjá stöðuna á Sueno Dunes Classic eftir 1.dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 15:00
Karlsson hittir í mark

Robert Karlsson sýndi að hann geti enn hitt á skotmörkin ….. í þetta sinn var hann að skjóta leirdúfur í Doha til að hita upp fyrir mót vikunnar á Evrópumótaröðinni, Commercial Bank Qatar Masters, sem hefst nú á miðvikudaginn (keppnin stendur til laugardags). Karlsson, sem sigraði í mótinu í Doha Golf Club árð 2010, sýndi mikla nákvæmni með rifflinum en hinn 11-faldi sigurvegari á Evrópumótaröðinni hitti misjafnlega uppsett skotmörk á leirdúfudkotæfingum. „Mér finnst gaman að skjóta. Pabbi kenndi mér það þegar ég var lítill en ég varð aðeins meira hikandi þegar ég varð eldri. Síðan var ég í hernum og lærði almennilega á vopn þar,“ sagði hinn 44 ára Karlson. Karlson, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 13:00
GK: Þorrablót Keilis 24. janúar nk.

Þorrablót Keilis verður haldið föstudaginn 24. janúar n.k. (bóndadaginn) í Golfskála Keilis. Húsið verður opnað kl. 19:30. Að venju verður boðið upp á hákarl og brennivín í startið. Borðhald hefst kl. 20:00 og á boðstólum verða þorramatur og glæsileg skemmtiatriði. Keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti en aðeins verða seldir 65 miðar. Miðaverð er kr. 4.500,- Skráning á keilir@keilir.is
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

