Þórður Rafn Gissurarson, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 21. 2014 | 18:00

Þórður Rafn á 3 yfir pari eftir 1. dag í Tyrklandi

Þórður Rafn Gissurarson, GR, tekur um þessar mundir þátt í Sueno Dunes Classic mótinu, sem fram fer í Tyrklandi, en mótið er hluti af þýsku Pro Golf mótarðinni.

Þórður spilaði 1. hring á 3 yfir pari, 72 höggum og deilir 49. sæti ásamt 10 öðrum, en 90 þátttakendur eru í mótinu.

Á hringnum fékk Þórður Rafn 2 fugla, 3 skolla og 1 skramba.

Til þess að sjá stöðuna á Sueno Dunes Classic eftir 1.dag  SMELLIÐ HÉR: