
GR: Sigríður og Svanhildur efstar eftir 5. púttmótið
Kvennanefnd GR greindu svofellt frá 5. púttmóti GR kvenna, sem fram fór í gær, miðvikudaginn 12. febrúar 2014:
„Það var frábær stemmning á fimmta púttkvöldi GR kvenna þennan veturinn. Rúmlega 100 konur mættar til leiks og allar í banastuði. Mikið hlegið og skrafað að ekki sé talað um púttað. Flott skor og hart er barist á toppnum.
Það er gaman að segja frá því að þær stöllur Svanhildur og Sigríður, sem hafa skipst á að vera á toppnum síðustu vikurnar eru nú jafnar í fyrsta sæti á 118 höggum eftir fimm hringi. Allt getur gerst því fast að þeim koma margir góðir pútterar sem geta auðveldlega slegist í toppbaráttuna. Enn er möguleiki á að ná draumahringnum sem slær öllu öðru út 🙂
Meðfylgjandi er staðan að loknum fimm púttkvöldum hér að neðan undir „Skjöl“.
Minnum á skoðanakönnunina sem við sendum ykkur í netpósti. Það er okkur mikilvægt að heyra ykkar álit til að geta betur komið til móts við þarfir og vilja félagskvenna.
Hlökkum til að sjá ykkur næsta miðvikudag“
Hér má síðan sjá stöðuna eftir 5. púttmót GR-kvenna:
- júní. 30. 2022 | 14:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Guðmundur Ágúst lék á +2 á Italian Challenge Open á 1. degi
- júní. 29. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Egill Ragnar Gunnarsson – 29. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Freyja Benediktsdóttir – 28. júní 2022
- júní. 28. 2022 | 12:00 GK: Þórdís Geirs fékk ás í Bergvíkinni!!!
- júní. 27. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: David Leadbetter – 27. júní 2022
- júní. 27. 2022 | 06:00 PGA: Schauffele sigurvegari Travelers
- júní. 26. 2022 | 23:30 Evróputúrinn: Haotong Li sigurvegari BMW International Open e. bráðabana v/Pieters
- júní. 26. 2022 | 23:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun sigraði!!!
- júní. 26. 2022 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Benedikt Árni Harðarsson – 26. júní 2022
- júní. 25. 2022 | 22:00 KPMG PGA Women’s Championship: In Gee Chun leiðir f. lokahringinn
- júní. 25. 2022 | 22:00 Evróputúrinn: Li Haotong leiðir f. lokahring BMW International
- júní. 25. 2022 | 21:00 Áskorendamótaröð Evrópu: Andri Þór og Guðmundur Ágúst náðu ekki niðurskurði á Blot Open de Bretagne
- júní. 25. 2022 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (26/2022)
- júní. 25. 2022 | 18:00 NGL: Aron Snær varð T-13 á UNICHEF meistaramótinu
- júní. 25. 2022 | 17:00 LET: Guðrún Brá og Ólafía Þórunn úr leik í Tékklandi