Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 21:00
Afmæliskylfingur dagsins: Þórir Einarsson Long – 7. mars 2014

Það er Þórir Einarsson Long, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann er fæddur 7. mars 1989 og á því 25 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Þórir Einarsson Long (Innilega til hamingju með afmælið!) F. 7. mars 1989 (25 ára) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Homero Blancas, 7. mars 1938 (76 ára); Tom Lehman, 7. mars 1959 (55 ára); Vilhjálmur Steinar Einarsson, GSG, 7. mars 1961 (53 ára) Jesper Parnevik, 7. mars 1965 (49 ára); Þorbjörn Guðjónsson, GR, 7. mars 1965 (49 ára); Alena Sharp, 7. mars 1981 (33 ára) ….. og ….. Hlín Einarsdóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 18:30
WGC Cadillac: Partrick Reed leiðir e. 1. mótsdag í Doral á 68 höggum

Það er Patrick Reed frá Texas sem er í efsta sæti eftir að tókst að ljúka 1. mótdegi á Cadillac heimsmótinu í Doral, Miami, nú fyrr í dag. Hann lék hið breytta Bláa Skrímsli á 4 undir pari, 68 höggum! Á hringnum fékk Reed 7 fugla og 3 skolla. Aðeins 1 höggi á eftir honum á 69 höggum eru aðrir 6 kylfingar: Harris English, Jason Dufner, Dustin Johnson, Matt Kuchar, Hunter Mahan og eini evrópski kylfingurinn í topp-7 Francesco Molinari frá Ítalíu. Rory McIlroy lék á 70 höggum líkt og 5 aðrir kylfingar sem deila 8.-13. sætinu. Nr. 1 og 2 á heimslistanum; Tiger og Adam Scott gekk ekkert vel Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 12:45
Dýr á golfvöllum: Poulter og Iguana eðlan

Leik var frestað í gær á Cadillac heimsmótinu, sem fram fer á Bláa Skrímslinu í Miami vegna þrumuveðurs og eldingahættu, en Miami er sú borg í heiminum þar sem eldingar eru hvað tíðastar. Ian Poulter rakst á þessa Iguana eðlu á leið sinni í klúbbhúsið og smellti mynd af henni. Þetta er svokölluð „græn“ Iguana eðla – karldýr – en karldýrin verða appelsínugul á litinn á fengitímanum til þess að laða kvendýrin að sér. Svolítið skemmtilegt er að grænar Iguana eðlur eru oft ekki grænar þó þær séu nefndar svo; Þær finnast í ýmsum litaafbrigðum á stöðum heitari en í Flórída þ.e. í Suður-Ameríku t.a.m. bleikar, bláar (Perú), rauðar (Costa Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 12:00
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn hefur leik í Suður-Karólínu í dag

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest hefja leik á Darius Rucker háskólamótinu í dag. Mótið stendur dagana 7.-9. mars 2014 og þátttakendur eru 90 frá 17 háskólum. Leikið er á golfvelli Long Cove golfklúbbsins á Hilton Head Island í Suður-Karólínu. Ólafía Þórunn á rástíma kl. 8:09 að staðartíma (kl. 13:09 að okkar tíma hér heima á Íslandi) og fer hún út af 10. teig. Fylgjast má með gengi Ólafíu Þórunnar með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 11:30
LET: Pettersen leiðir í hálfleik í Kína

Suzann Pettersen er efst eftir 2. dag World Ladies Championship sem hófust í gær á Mission Hills golfvellinum í Haikou, Kína. Suzann er búin að leika á samtals 11 undir pari, 135 höggum (67 68). Fimm kylfingar deila 2. sætinu, en allar eru þær búnar að leika á samtals 9 undir pari hver, þ.e. eru 2 höggum á eftir Suzann. Þetta er þær: Valentine Derrey frá Frakklandi, Ye Na Chung og So Yeon Ryu frá Suður-Kóreu, Trish Johnson frá Englandi og hin ástralska Nikki Campbell. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag World Ladies Championship SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 08:00
Áhugaverð grein um klaka á golfvöllum

Hér er tengill inn á áhugaverða grein um klaka á golfvöllum. Hún er að vísu á ensku en við setjum hana hér inn engu að síður. Greinina getur þú nálgast með því að SMELLA HÉR: Heimild: gagolf.is
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 07:15
WGC Cadillac: Sjank Stenson – Myndskeið

Sextíu og átta bestu kylfingar heims eru í Miami nú um helgina og taka þátt í WGC Cadillac meistaramótinu – voru 69 en Jason Day búinn að draga sig úr mótinu vegna meidds þumals. Þannig að áhorfendur hvort heldur er á Bláa Skrímslinu í Doral eða fyrir framan sjónvarpsskjáina víðsvegar um heim búast við að sjá snilldartakta, ekki satt? Sænski kylfingurinn Henrik Stenson átti högg sem ekki sæmdi nr. 3 á heimslistanum á 2. holu Doral. Af 138 yarda (126 metra) færi sjankaði hann boltann og sendi hann beinustu leið út í tré og runna, sem umvefja fallegar brautir Bláa Skrímslisins. Þetta er eitthvað sem maður býst við að sjá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2014 | 07:00
GF: Góugleði 22. mars n.k.!

Laugardaginn 22. mars n.k. verður Góugleði GF haldin í golfskálanum. Þema kvöldsins er svart-hvítt. Húsið opnar kl. 19.00 og borðhald hefst kl. 20.00. Kaffi-Sel galdrar fram ljúffengar veitingar og á matseðlinum er eftirfarandi: Purusteik – Kjúklingaréttur ættaður frá Spáni – Hrísgrjón – Kartöflugratín – Ferskt salat – Gular baunir – Smjörsteiktir Flúðasveppir – Heimabakað brauð – Eftirrétturinn er marengs terta að hætti hússins! Karl Hallgrímsson tónlistarmaður sér um undirleik við borðhald og um dansfjörið er líða tekur á kvöldið! Skemmtiatriðin verða heimatilbúin þar sem góðlátlegt grín verður gert að golfurum, því maður er manns gaman. Þema kvöldsins er „Svart og Hvítt“ sem á að endurspeglast í klæðnaði gesta og veitt verða verðlaun fyrir bestu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2014 | 22:00
WGC Cadillac: Day dró sig úr mótinu

Í dag hófst á breyttu Bláa Skrímslinu í Doral, Flórída, Cadillac heimsmótið. Keppendur voru upphaflega 69 bestu kylfingar heims, en eru nú aðeins 68, vegna þess að nr. 4 á heimslistanum dró sig úr mótinu. M.ö.o. Jason Day dró sig úr mótinu vegna meidds þumalputta; hann fór í röntgen og myndirnar voru þannig að læknir ráðlagði hvíld. Nr. 4 mun því vera frá í einhvern tíma, en hann gaf ekkert út á hvenær hann myndi mæta aftur til keppni. Hér má fylgjast með skorinu á Cadillac heimsmótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 6. 2014 | 17:30
Indíánahöfðinginn

Í gær, 5. mars 2014, var Öskudagur og brugðu margir kylfingar undir sig betri fætinum og klæddust skemmtilegum Öskudagsbúningum, m.a. í púttmótum víðs vegar um landið. Hér birtist mynd af kunnuglegum indíánahöfðingja ásamt indíánastelpunum sínum. Þarna er kominn Örn Ævar Hjartarson, GS, einn besti kylfingur landsins, ásamt samstarfskonum sínum í Grunnskóla Sandgerðis.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

