Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 20:27
Golfgrín á laugardegi

Undragolfboltinn Kylfingur er að spila golfhring einn síns liðs og er við það að slá af teig þegar slepjulegur lítill sölumaður hleypur upp að honum og hrópar: „Bíddu!!! Áður en þú slærð er ég með svolítð flott, sem ég verð að sýna þér. Kylingurinn er frekar pirraður en heldur stillingu sinni og segir: „Hvað er það.“ „Það er undragolfbolti,“ sagði sölumaðurinn. „Þú getur aldrei týnt honum!“ „Hvað meinarðu?“ spyr kylfingurinn. „Hvernig er aldrei hægt að týna honum? Hvað ef hann er sleginn í vatn?“ „Ekki málið,“ segir sölumaðurinn. „Hann flýtur, skynjar hvar best er að komast upp úr vatnshindruninni og spinnast þangað.“ „Nú, hvað ef maður slær út í trén?“ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Peter Lawrie —— 22. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Írinn Peter Lawrie, en hann er fæddur í Dublin 22. mars 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Hann vann Irish Amateur Closed Championship 1996 og gerðist atvinnumaður í kjölfarið árið 1997. Það tók hann nokkur ár að komast á Evróputúrinn en 4. sætið á Challenge Tour stigalistanum 2002 og þ.á.m sigur í Challenge Tour Grand Final varð til þess að hann fékk loks kortið. Lawrie þakkar sveifluþjálfa sínum Brendan McDaid árangurinn. Lawrie varð fyrsti Írinn til þess að verða Sir Henry Cotton nýliði ársins á Evróputúrnum. Hann hefðir síðan þá verið meðal 100 efstu á Order of Merit, en besti árangur hans er 36. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 19:30
Upphaf The Masters (1/2)

Nú er örstutt í að eitt vinsælasta risamót golfsins hefjist: The Masters. En hvernig hófst þetta allt saman? Fyrir 80 árum voru valdhafar heimsins uppteknir líkt og í dag – fyrirsagnir dagblaða vorið 1934 voru uppfull af „stórum nöfnum“ sögunnar í dag. Roosevelt Bandaríkjaforseti var að reyna að koma í veg fyrir verkfall meðal starfsmanna í bílaframleiðslugeiranum. Adolf Hitler var að reyna að öðlast meiri vinsældir í Þýskalandi. Clark Gable fór á Óskarinn en Katherine Hepburn og Charles Laughton neituðu að mæta. Á forsíðum íþróttafréttamiðla í Bandaríkjunum var greint frá að Babe Ruth og Lou Gehrig væru að æfa sig í að ná „home run“ í bandaríska hafnarboltanum fyrir New York Yankees. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 17:00
GK: SNAG vinsælt hjá yngstu kylfingunum í Keili

Undanfarnar vikur hafa golfkennarar Keilis kennt yngstu iðkendum golf á svokölluðum SNAG æfingum í Hraunkoti. Æfingarnar eru miðaðar við aldursflokkinn 5-10 ára og hefur þátttaka farið fram úr björtustu vonum, einkum hjá þeim yngstu. Þrátt fyrir að æfingar hefjist rétt rúmlega 9 á laugardögum hefur áhuginn ekki látið á sér standa bæði hjá börnum sem og foreldrum. Yngstu iðkendur hafa verið í fylgd með foreldrum á æfingum en þeir hafa tekið að sér hlutverk aðstoðarmanna en einnig fengið að taka þátt í sumum þrautum. SNAG stendur fyrir Starting New At Golf. SNAG búnaðurinn og kennslukerfið er viðurkennt kerfi sem gerir golfkennslu skemmtilega, aðgengilega, auðvelda og örugga. SNAG hentar báðum kynjum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 16:45
Ný vefsíða Sharmilu Nicolett

Hér að neðan fylgir tengill á nýja heimasíðu indverska kylfingsins Sharmilu Nicolett. Þar má finna allar upplýsingar um hana og auk þess eru þar margar myndir af þokkadísinni indversku, m.a. af henni ásamt Tiger Woods, en þau spiluðu saman nokkrar holur á Páfuglavellinum dásamlega í Delhi. Sjá má nýja heimasíðu Sharmilu Nicollet með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 16:30
PGA: Scott öruggur í 1. sæti í hálfleik Arnold Palmer Inv. – Hápunktar 2. dags

Adam Scott situr sem fastast í 1. sæti Arnold Palmer Invitational á Bay Hill í Flórída, í hálfleik, þar sem hann hefir góða 7 högga forystu á næstu keppinauta sína. Samtals er Scott búinn að spila á 14 undir pari (62 68). Þeir sem næstir koma eru þeir Chesson Hadley, JB. Holmes og Francesco Molinari allir, sem segir á 7 undir pari, 137 höggum. Tekst Scott að sigra og koma Tiger úr toppsæti heimslistans? Til þess að sjá stöðuna á Arnold Palmer Invitational SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Arnold Palmer Invitational SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 22. 2014 | 16:00
LPGA: Besti hringur Ko sem atvinnumanns dugði ekki til að koma henni í efsta sætið á 2. degi JTBC Founders Cup

Hin unga 16 ára nýsjálenska nr. 4 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko, lék í gær besta hring á ferli sínum, sem atvinnumaður, á LPGA móti vikunnar, JTBC Founder Cup, en það dugði ekki til þess að koma henni í efsta sætið. Og reyndar er mjótt á mununum milli efstu stúlkna. Gærdagurinn var dagur lágs skors á JTBC … og þó Ko hafi átt lægsta skor ferilsins sem atvinnumanns, upp á 6 undir pari, 66 högg dugði það ekki til þess að koma henni í efsta sætið. Hún fékk 1 örn, 5 fugla og 1 skolla á glæsihring sínum. Samtals er Ko á 133 höggum (67 66) og er nú 2 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 18:00
OGA: Ólafur Björn sigraði á Ridgewood Lakes mótinu – með 11 einpútt

Atvinnumaðurinn Ólafur Björn Loftsson, sigraði í 1 hrings móti sem fram fór á Ridgewood Lakes, í Orlando, Flórída, í gær 20. mars 2014, þar sem keppendur voru 10. Ólafur Björn lék á 5 undir pari, 67 höggum. Á facebook síðu sinni ritaði Ólafur Björn: „Fyrsti sigurinn á þessu ári kominn í hús. Lék á 67 (-5) höggum í móti á OGA mótaröðinni á Ridgewood Lakes í Orlando og vann með 5 högga mun. Ég datt í gírinn um miðbik hringsins og fékk 6 fugla á 8 holum. Það vantaði svolítið upp á sveifluna í gær en stutta spilið var alveg magnað. Ég náði að vippa og einpútta í öllum mínum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sören Hansen —- 21. mars 2014

Það er danski kylfingurinn Sören Hansen, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann fæddist í Kaupmannahöfn 21. mars 1974 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Sören varð Danmerkurmeistari í höggleik áhugamanna 1997 og gerðist atvinnumaður seinna það ár. Hann á að baki 3 sigra á atvinnumannferli sínum: 2 á Evrópumótaröðinni (hefir verið á Evrópumótaröðinni frá árinu 1999) vann fyrsta sigurinn á Murpy´s Irish Open 2002 og síðan Mercedes-Benz Championship 2007 og 1 á Challenge Tour: þ.e. á Navision Open Golf Championship 1998. Árið 2007 komst hann á topp-50 listann á heimslistanum og var efsti Daninn á listanum. Sören Hansen var í Ryder Cup liði Evrópu 2008 en vann ekki einn einasta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 07:45
Æfið fleyghöggin með húllahopp hringjum

Það er alltaf gott og það verður stöðugt að vinna í stutta spilinu. Ein af bestu æfingunum þegar æfa á fleyghögg hvort heldur er innanhúss eða utan er með notkun húllahopp hringja. Hljómar vel ekki satt? Notkun hringjanna gefur virkilega góða tilfinningu fyrir lengdarstjórnun og árangurinn skilar sér áþreifanlega næsta vor/sumar þegar þið spilið úti á golfvelli og náið fleiri fuglum og bjargið fleiri pörum. Þetta er ansi auðvelt – setjið 3-4 húllahopp hringi á æfingasvæðið ykkar í 10, 20 og 30 (og 40) metra frá ykkur. Reynið að hitta 10 bolta í hvern hring (það eina sem þarf er að hafa nóg af æfingaboltum). Þið munið fljótt sjá hvaða Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

