Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 07:15

GKG 20 ára 24. mars n.k. – viljayfirlýsing um byggingu íþróttamiðstöðvar GKG

Á heimasíðu GKG er að finna eftirfarandi frétt: „Næstkomandi sunnudag, 23. mars munum við halda upp á þann merka áfanga að félagið okkar GKG verður 20 ára. Við höldum upp á daginn deginum fyrr en GKG var stofnað 24. mars 1994. Að því tilefni munum við efna til afmælisfagnaðar í klúbbhúsinu okkar og er dagskráin eftirfarandi: 15:00 formleg dagskrá hefst Bæjarstjórar Garðabæjar og Kópavogs þeir Ármann Kr. Ólafsson og Gunnar Einarsson ásamt formanninum okkar Guðmundi Oddsyni munu skrifa undir viljayfirlýsingu um byggingu Íþróttamiðstöðvar GKG. GKG hefur undanfarið ár unnið að þarfagreiningu á klúbbhúsi fyrir GKG. Í ljósi þess að barna- unglinga og afreksstarf félagsins er með þeim hætti sem er, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 07:00

Bakmeiðsli hrjáðu Ishikawa

Eitt af undrabörnunum í golfinu er aðeins 22 ára. Ryo Ishikawa minnti okkur á að hann er svo sannarlega eitt af undrabörnum golfsins þegar hann var á 7 undir pari, 65 höggum og er aðeins 3 höggum á eftir forystumanninum, Adam Scott,  á  Arnold Palmer Invitational. Ishikawa hefir sigrað 10 sinnum á japanska PGA, en hefir ekkert gengið eins vel á PGA Tour í Bandaríkjunum. Arnold Palmer Invitational er eiginlega spilað á „heimavelli“ Ishikawa en hann býr aðeins í 5 mínútna akstur frá Bay Hill og æfir oft þar.  Ishikawa er líka með „heimili að heiman“ í Las Vegas þar sem hann býr þegar hann spilar á Vesturströnd Bandaríkjanna. Fyrir 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 21. 2014 | 01:00

LPGA: Mirim Lee efst á JTCB e. 1. dag

Það er fremur óþekktur kvenkylfingur frá Suður-Kóreu, Mirim Lee,  sem tekið hefir forystu á JTCB Founders Cup.  Lee lék á samtas 8 undir pari, 64 höggum. Hún fékk 9 fugla og 1 skolla á hringnum.  Mirim er sem stendur nr. 92 á Rolex-heimslistanum.  Hún er fædd 25. október 1990 og á þvi sama afmælisdag og kínverski undradrengurinn Guan Tian-lang. Mirim er 23 ára. JTCB Founders Cup. fer fram í Wildfire golfklúbbnum í Phoenix, Arizona. Í 2. sæti er Morgan Pressel einu höggi á eftir Mirim, á 7 undir pari, 65 höggum. Hvorki fleiri né færri en 8 kylfingar eru síðan jafnar í 3. sæti þ.á.m. nr. 1 á Rolex-heimslistanum Inbee Park, fyrrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 21:54

PGA: Bubba með ofnæmi – dró sig úr mótinu á Bay Hill eftir hring upp á 83 högg!

Bubba Watson dró sig úr Arnold Palmer Invitational presented by MasterCard, í dag, 1. mótsdag og bar fyrir sig ofnæmi. Hann var með hring upp á 83 högg þ.á.m. með 11 högg á einni holu. Þetta er hæsta skor hans á PGA Tour frá árinu 2008, á 2. hring á Memorial Tournament. Bubba var með fugl, 3 skolla og þrefaldan skolla og bætti síðan við fimmföldum skolla á par-5 6. holunni. Bubba er ein af sleggjum PGA Tour og ótrúlegt að hann skuli hafa verið með 11 högg á par-5u! Bubba hefir engu að síður gengið vel að undanförnu þannig varð hann í 2. sæti á World Golf Championships-Cadillac Championship fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 21:30

Adam Scott heppinn – Myndskeið af 12 metra arnarpúttinu á Bay Hill

Að vori 2001 gekk hinn 20 ára ástralski Adam Scott af 1. teig Bay Hill Club and Logde og rakst á eigandann, sem sat í golfbíl þar rétt hjá og fylgdist með honum. „Adam, það er frábært að hafa þig hér,“ brosti geislandi golfgoðsögnin, Arnold Palmer, en Adam segist hafa brugðið  að Arnie skyldi þekkja hann með nafni og þeir tókust í hendur. Nú 13 árum síðar,  orðinn „aðeins“ frægari, var Adam á 10 undir pari, 62 glæsihöggum á 1. mótsdegi Arnold Palmer Invitational, á golfsstað Arnie og jafnaði þar með lægsta skor sitt og lægsta skorið sem nokkru sinni hefir náðst á Bay Hill! „Ég get ekki kvartað, verð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 16:00

Tiger verður í lagi fyrir Masters

Það verður í lagi með Tiger fyrir Masters risamótið, sem fram fer dagana 10.-13. apríl n.k. fái hann rétta meðferð við verkjakippunum í bakinu segir  (10.-13. apríl) Dr. Alfred O. Bonati, stofnandi Bonati Spine Institute í Hudson, Flórída. „Hann getur alveg örugglega verið með,“ sagði Bonati, sem er sérfræðingur í laseruppskurðum í baki „Ef ég fæ hann milli handanna og sé betur hvað er að honum, kem ég honum í lag fyrir Masters.“ Bæði Bonati og PGA Tour sjúkraþjálfarinn Corey Hug sögðu að bakverkjakippir gætu stafað af  hryggþófaraski (ens. herniated disk) eða pirringi í liðamótum. Báðir sögðu að lengur tæki að ná sér væri um hryggþófarask að ræða og Bonati sagði að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 13:30

Afmæliskylfingur dagsins: Charley Hull ——— 20. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Charley Hull. Charley fæddist 20. mars 1996 og er því 18 ára í dag. Charley er einn efnilegasti kylfingur Bretlands. Hún komst fyrst í fréttirnar fyrir u.þ.b. 2 árum,  þar sem hún fékk ekki að taka þátt í Curtis Cup vegna þess að hún þáði boð um að keppa á Kraft Nabisco risamótinu í lok þessa mánaðar og komst þ.a.l. ekki á æfingu með liði Breta&Íra. Sjá nánar nýlega frétt Golf 1 þar um, smellið HÉR: Charley var yngst í sigurliði Solheim Cup 2013 og lagði þar sitt lóð á vogarskálarnar.  Hún var líka í fréttum nú fyrir nokkrum dögum þegar hún sigraði í fyrsta móti sínu á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 09:00

Happy Gilmore tölvuleikur – Myndskeið

Happy Gilmore er meðal vinsælustu golfkvikmynda. Nú hefir verið búinn til tölvuleikur, sem sagður er byggður að nokkru á kvikmyndinni. Sjá má myndskeið um tölvuleikinn byggðan á Happy Gilmore með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn og félagar í 1. sæti í SCAD Atlanta Inv.

Hrafn Guðlaugsson, GSE og Sigurður Gunnar Björgvinsson, GK tóku þátt í Savanna College of Art and Design (stytt í SCAD) mótinu, sem fram fór Atlanta, Georgia, 16. mars s.l. Þátttakendur voru lið frá 9 háskólum. „The Eagles“, golflið Faulkner háskóla, lið Hrafns og Sigurðar Gunnars sigraði í mótinu.   Hrafn var á 3. besta skori liðsins (70 71) og taldi skor hans, en skor Sigurðar Gunnar taldi ekki vegna erfiðs upphafshringjar upp á 78 högg.  Sigurður náði sér þó vel á strik og lék seinni hringinn á 1 undir pari, 70 höggum. Faulkner spilar næst í  Martin Methodist mótinu, en það mun fara fram í Canebrake golfklúbbnum í  Athens, Alabama.,  7. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 20. 2014 | 07:00

Christina Kim snýr aftur til keppni: „Er loksins verkjalaus“

Christina Kim er óþreyjufull að hafja keppni aftur, en hún hefir verið frá keppnisgolfi í meira en 4 mánuði. Kim hefir ekki spilað í móti frá því í  Mizuno Classic s.l. nóvember, en hún hefir verið að ná sér eftir að sin slitnaði í hægri olnboga hennar og forhandegg. Kim tíar upp í JTBC Founders Cup, sem er mót vikunnar á LPGA. „Ég man ekki eftir að hafa vilja spila svona mikið,“ sagði Kim. „Ég er ákveðin að spila óhrædd.“ Kim er spennt yfir hvernig nýtt form hennar muni reynast henni. „Ég er loksins verkjalaus,“ sagði Kim, sem átti 30 ára stórafmæli fyrir 5 dögum, þ.e. 15. mars.  „Ég er virkilega ánægð Lesa meira