Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 15:55
Jón Þorsteinn nýr golfkennari GSS

Golfklúbbur Sauðárkróks (GSS) hefur ráðið til sín Jón Þorstein Hjartarson PGA golfkennara til að sjá um þjálfun hjá klúbbnum þetta sumarið. Jón Þorsteinn hefur mikla reynslu af þjálfun sem og barna-og unglingastarfi. Hann útskrifaðist úr Golfkennaraskóla Íslands vorið 2009. Hann var aðalkennari hjá GHR á Hellu 2008-2010, golfkennari hjá GF Flúðum 2008-2010. Umsjón með barna og unglingastarfi hjá báðum þessum klúbbum ásamt almennri kennslu. Undanfarin 4 ár hefur hann starfað hjá Golfklúbbi Reykjavíkur við afreksstarf barna og unglinga. Hann hefur störf hjá klúbbnum 1.júní n.k. Jón Þorsteinn kemur til með að hafa yfirumsjón með öllu barna-og unglingastarfi hjá klúbbnum sem og afreksstarfi. Þá verður hann einnig með námskeið fyrir byrjendur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 13:15
Hjón með ása á sömu holu!

Hjón frá Michigan segja að þau hafi bæði fengið ás á sömu holu á sama hring! Tony og Janet Blundy sögðu frá því í Lansing State Journal að þau hefðu bæði fengið ása þegar þau voru í golfi s.l. sunnudag á Ledge Meadows golfvellinum í Grand Ledge, Michigan. Þau segja að Tony, sem sló af gulum hafi fyrst fengið ás og síðan hafi Janet ekki getað verið minni maður og hitti beint ofan í holu af rauðum. Tveir kylfingar sem ekki þekktu hjónin urðu vitni að atburðinum. Skv. bandaríska Einherjaklúbbnum eru líkurnar á að áhugakylfingum takist þetta 26 milljónir á móti 1 (26.000.000:1) Blundy-hjónin segjast spila a.m.k. 18 holur á viku. Hér má Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 12:00
Evróputúrinn: Fylgist m. Opna írska!

Opna írska sem heitir fullu nafni Dubai Duty Free Irish Open hosted by the Rory Foundation hófst í morgun á Royal County Down golfvellinum fræga á Írlandi. Mótið stendur 28.-31. maí 2015. Margir þekktir kylfingar taka þátt í mótinu; helstu írsku kylfingarnir eins og nr. 1 á heimslistanum Rory McIlroy, Graeme McDowell og risamótssigurvegarinn Padraig Harrington og þekktar stjörnur eins og Rickie Fowler, Sergio Garcia, Martin Kaymer, Lee Westwood, Matteo Manassero, Miguel Ángel Jiménez og Francesco Molinari, og margir aðrir. Til þess að fylgjast með stöðunni á Opna írska SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 11:00
6 við keppni á US Kids í Skotlandi

Sex íslenskir kylfingar eru nú við keppni á US Kids móti í Skotlandi. Það eru þau Ólöf María Einarsdóttir GHD, Arnór Snær Guðmundsson GHD, Sigurður Arnar Garðarsson,GKG Elísabet Ágústsdóttir,GKG Kristófer Karl Karlsson GM og Kjartan Óskar Guðmundsson NK. Leiknir verða þrír hringir og ráðast úrslit í dag, en mótið er haldið 26.-28. maí 2015. Eftir 2 leikna hringi er Ólöf María efst í flokki 15-18 ára stúlkna og Elísabet í 2. sæti í þeim flokki. Arnór Snær er í 4. sæti í piltaflokki 15-18 ára. Kristófer Karl Karlsson er T-18 eftir 2 hringi í flokki 13 ára stráka; Sigurður Arnar í 20. sæti og Kjartan Óskar T-46 í sama flokki. Fylgjast má með keppendum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 10:00
Rory gefur til góðgerðarmála – Myndskeið

Rory McIlroy tekur þátt í Opna írska sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Hann hefir m.a. tekið þátt í skipulagningu mótsins og haft frumkvæði að því að fá þekkta kylfinga til þess að taka þátt til þess að auka aðsóknina og áhugann á mótinu. M.a. hefir hann fengið vin sinn Rickie Fowler til að taka þátt en þeir Rickie öttu kappi hvor við annan á Royal County Down í Walker Cup á sínum tíma. En nr. 1 á heimslistanum (Rory) gefur líka tilbaka. Sjá má myndskeið þar sem Rory segir að hluti af vinningsfé því sem hann vinnur sér inn á Opna írska muni renna til sjóðs sem hann stofnaði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 09:00
Ian Poulter meiddur

Ian Poulter, 39 ára, sem aðeins í síðustu viku náði fyrsta topp-5 árangri sínum í 5 mánuði ætlaði að taka þátt í Irving en mun ekki tía upp fyrr en í næsta mánuði á Opna bandaríska í Chambers bay. „Ég ætla ekki að keppa þessa viku í Texas, ég tognaði í ræktinni mánudaginn s.l., þannig að ég hef varann á og ætla ekki að taka neinar áhættur,“ sagði „einn ofmetnasti kylfingur á PGA“ (Poulter). „Ég var farinn að hlakka til að spila golf í tvær vikur, að spila gott golf, þannig að þetta eru vonbrigði. Næsta mót verður @usopengolf,“ sagði Poulter á Twitter. Það góða í þessu er að ef Poulter Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 07:15
Eimskipsmótaröðin 2015: Rástímar f. Securitasmótið í Eyjum

Leiknar verða 36 holur á fyrsta keppnisdeginum á Securitasmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem hefst á föstudaginn 29. maí í Vestmannaeyjum. Stefnt er að því að þriðji hringurinn verði leikinn laugardaginn 30. maí og verður ræst út frá kl. 6.00 þann dag. Þetta er gert vegna óhagstæðrar veðurspár fyrir laugardaginn. Lokaákvörðun um framvindu mótsins verður tekin þegar veðurspár skýrast enn frekar. Rástímana á fyrsta keppnisdeginum má sjá með því að SMELLA HÉR: Föstudagur: 1. hringur. Rástímar: 07:30 – 12:00, ræst út á 1. og 10. teig. Föstudagur: 2. hringur. Rástímar: 13:30 – 18:00, ræst út á 1. og 10. teig. Laugardagur / Sunnudagur: 3. hringur. Rástímar frá kl. 06:00. Ræst út frá á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2015 | 07:00
Toyota: Bíll í verðlaun f. ás!!!

Í dag, 28. maí 2015, fer fram skemmtilegur leikur í verslun ZO-ON í Kringlunni. Þeir sem eru með 5 eða hærra í forgjöf geta keppt í 4 forgjafarflokkum: Flokkur 1: 5-10; Flokkur 2: 10-15; Flokkur 3: 15-20 og Flokkur 4 20 og yfir. Þeir fjórir sem verða efstir í hverjum flokk komast áfram í aðalkeppnina og eiga þá möguleika á að vinna Toyota Aygo Xplay að verðmæti 2.230.000,- Aðalkeppnin fer síðan fram á Sæbrautinni 30. maí kl. 10-14. Keppendur munu slá út á sjó á 200 m braut. Sá fyrsti sem fer holu í höggi verður eigandi nýrrar Toyota Aygo Xplay. Einnig verður opin 150 m braut fyrir gesti og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2015 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sveinn Ísleifsson – 27. maí 2015

Það er Sveinn Ísleifsson sem er afmæliskylfingar dagsins. Sveinn er fæddur 27. maí 1990 og á því kvart úr aldar afmæli í dag. Sveinn Ísleifsson (25 ára merkisafmæli – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Sam Snead f. 27. maí 1912 (hefði orðið 103 ára) d. 23. maí 2002; Alda Steinunn Ólafsdóttir, 27. maí 1944 (71 árs); Vaughan Somers, 27. maí 1951 (64 ára); Sveinn Reynir Sveinsson 27. maí 1960 (55 ára); Guðjón Heiðar Ólafsson, GK, 27. maí 1997 (18 ára) …. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 27. 2015 | 18:00
GVS: Styrktarmót fyrir sveitir GVS n.k. laugardag

Laugardaginn 30 mai mun verða stórskemmtilegt styrktarmót fyrir sveitir GVS. Við höfum fengið til liðs við okkur frábær fyrirtæki sem hafa lagt okkur lið. Vinningar verða veittir fyrir fyrstu 3 sætin í höggleik. Fyrstu 3 sætin í punktakeppni auk þess verða veitt verðlaun fyrir flesta punkta í þremur efstu sætunum í kvennaflokki. Nándarverðlaun á 3 og 8 holu sem og verðlaun fyrir þá sem hafna í 9 og 12 sætinu. Púttkeppni verður í boði og verðlaun veitt fyrir fyrsta sætið. Ekki er hægt að vinna til verðlauna bæði fyrir punkta og höggleik. Verðlaun fyrir höggleik 1. Gisting og golf á Hamri Borgarnesi 2. Flugger málning + gjafabréf í bauhaus 3. Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

