Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 9. 2015 | 12:00

GÍ: Ísinn golfmót laugard. 13. júní nk!

Ísinn golfmót verður haldið hjá Golfklúbbi Ísafjarðar, laugardaginn 13. júní 2015 og hefst kl.09:00. Mótsgjald 2.500 kr. Ísinn ísverksmiðja er flott fyrirtæki sem þjónustar Sjávarútveginn á norðanverðum Vestfjörðum, fyrirtækið lætur ekki mikið yfir sér en er vel rekið fyritæki í eigu einstaklinga og fyrirtækja á svæðinu. Ísinn hefur um árabil styrkt GÍ með því að sjá um verðlaun á móti sem haldið er á Sjómannadagshelginni ár hvert. Það er vel við hæfi að svo sé. Auk þess að gefa verðlaun til mótsins, fær GÍ ákveðna upphæð frá Ísnum í takt við árangur kylfinga inni á vellinum, þ.e. greidd er ákveðin upphæð fyrir hvern punkt sem kylfingur fær. Ísinn greiðir GÍ Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 23:50

Íslandsbankamótaröðin (2): Andrea Ýr Íslandsmeistari í holukeppni í stelpuflokki 2015!

Það var Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar, sem varð Íslandsmeistari í holukeppni í stelpuflokki. Andrea Ýr vann Kingu Korpak úr Golfklúbbi Suðurnesja 1&0 í 4 manna undanúrslitakeppninni. Á sama tíma sigraði Alma Rún Ragnarsdóttir, GKG, Huldu Clöru Gestsdóttur klúbbsystur sína 4&3. Það voru því Andrea Ýr og Alma Rún sem kepptu til úrslita um Íslandsmeistaratitlinn. Það var Andrea Ýr sem vann 2&0.  Hér má sjá dræv Íslandsmeistarans í stelpuflokk Andreu Ýr á 18. braut, brautinni sem Íslandsmeistaratitlinum var landað á: Kinga og Hulda Clara kepptu síðan um 3. sætið á Íslandsmóti unglinga í holukeppni í stelpuflokki og þar vann Kinga sigur. ******************************************* Íslandsmeistarinn okkar í stelpuflokki Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 22:15

Íslandsbankamótaröðin (2): Sigurður Arnar Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki 2015!

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, varð í gær Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki. Sigurður Arnar sigraði Jón Gunnarsson, klúbbfélaga sinn á 21. holu í 4 manna undanúrslitunum en þetta var hörkuviðureign hjá þeim strákum. Viðureign Andra Más Guðmundssonar, GM og  Kristófer Karls Karlssonar klúbbfélaga hans lauk líka á 21. holu með því að Andri Már hafði betur. Það voru því Sigurður Arnar og Andri Már sem börðust til úrslita og þar sigraði Sigurður Arnar 3&1. Í keppninni um 3. sætið vann Kristófer Karl, Jón Gunnarsson 5&3. ************************************** Sigurður Arnar er fæddur 26. febrúar 2002 og varð því 13 ára í febrúar. Sigurður Arnar er þrátt fyrir ungan aldur með mikla keppnisreynslu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 22:00

Íslandsbankamótaröðin (2): Zuzanna Íslandsmeistari telpna í holukeppni 2015!

Það var Zuzanna Korpak frá Golfklúbbi Suðurnesja (GS) sem varð Íslandsmeistari í holukeppni telpna 2015! Zuzanna sigraði Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur GOS í 4 manna undanúrslitum 6&4. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir GR, vann Ólafíu Maríu Einarsdóttur GHD, 2&0. Það voru því Zuzanna og Gerður Hrönn sem kepptu til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.  Þeirri viðureign lauk svo að Zuzanna sigraði 4&3. Ólöf María vann síðan viðureignina um 3. sætið við Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur. ***************************************** Zuzanna, Íslandsmeistari telpna í holukeppni er í tveimur orðum sagt: frábær kylfingur. Hún er fædd 9. nóvember 2000 og verður því 15 ára næstkomandi haust.  


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 16:45

Áskorendamótaröð Íslandsbanka (2) – 6. júní 2015 hjá GOS – Myndasería

Vegna fjölda áskoranna hefir verið ákveðið að birta myndir frá móti Áskorendamótaraðar Íslandsbankar að nýju í fréttaglugga, svo allir finni nú myndir af keppendunum sínum! 🙂 Sjá má myndir frá 2. móti Áskorendamótaraðar Íslandsbanka, sem fram fór á Svarfhólsvelli á Selfossi,  laugardaginn 6. júní 2015, með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 16:30

Íslandsbankamótaröðin (2): Kristján Benedikt Íslandsmeistari drengja í holukeppni 2015!

Það var Kristján Benedikt Sveinsson, GA, sem tryggði sér Íslandsmeistarartitilinn í holukeppni drengja 2015! Kristján Benedikt vann Ragnar Má Ríkharðsson, GM,  í 4 manna undanúrslitum 4&3. Arnór Snær Guðmundsson, GHD vann Magnús F. Helgason, GR, 5&4. Það voru því Kristján Benedikt og Arnór Snær sem mættust í úrslitaleiknum, sem Kristján Benedikt vann 2&1. Keppnin um 3. sætið var æsispennandi milli þeirra Ragnars Más Ríkharðssonar og Magnúsar F. Helgasonar. Hún fór á 20. holu (sem var par-3 11. holan á Strandarvelli þar sem Ragnar Már setti boltann alveg upp við stöng og vann bronsið með glæsifugli! ******************************************************* Kristján Benedikt er fæddur 4. maí 1999 og varð því 16 ára fyrir rúmum mánuði Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 14:15

Íslandsbankamótaröðin (2): Eva Karen Íslands- meistari í holukeppni í stúlknaflokki 2015!

Það var Eva Karen Björnsdóttir, GR, sem varð Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki á Strandarvelli í gær, 7. júní 2015. Í 4 manna undanúrslitum bar Eva Karen sigurorð af Sigurlaugu Rún Jónsdóttur, GK, 4&3. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK, vann sína viðureign gegn Elísabetu Ágústsdóttur, GKG, 4&2. Það voru því Eva Karen og Hafdís Alda sem börðust til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn.   Eva Karen vann úrslitaviðureignina 3&2. Í keppninni um 3. sætið sigraði Eísabet, Sigurlaugu Rún 2&1 ******************************************************** Eva Karen Björnsdóttir er fædd 4. mars 1998 og varð því 17 ára s.l. vor. Hún hefir staðið sig vel í mótum Unglingamótaraðarinnar í öllum aldursflokkum. Í fyrra, þ.e. júní 2014 var Eva Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 13:00

Íslandsbankamótaröðin (2): Tumi Hrafn Kúld Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki 2015

Það var Tumi Hrafn Kúld, GA, sem varði titil sinn frá því í fyrra og er Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki 2. árið í röð. Glæsilegur árangur það!!! Í 4. manna úrslitum fóru leikar svo: Tumi Hrafn Kúld, GA vann Hákon Örn Magnússon, GR 1&0 Hlynur Bergsson, GKG, vann Kristófer Orra Þórðarson, GKG 1&o Það voru því Tumi og Hlynur sem kepptu til úrslita og í þeirri viðureign sigraði Tumi 4&3. Í keppninni um 3. sætið sigraði Kristófer Orri, Hákon Örn, 4&2. *********************************************************** Hinn nýbakaði Íslandsmeistarinn í holukeppni í piltaflokki Tumi Hrafn Kúld varð 18 ára á árinu, þann 17. mars s.l. Hann varð m.a. holukeppnismeistari Akureyrar 2011. Tumi hefir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 12:45

Afmæliskylfingur dagsins: Kathryn Imrie – 8. júní 2015

Afmæliskylfingur dagsins er skoski kylfingurinn Kathryn Christine Marshall, sem tók upp ættarnafnið Imrie þegar hún gifti sig. Hún er fædd 8. júní 1967 og á því 48 ára afmæli í dag. Kathryn átti mjög farsælan áhugamannsferil; árin 1981 og 1985 var hún skoskur skólameistari (ens.: Scottish Schools’ champion); árin 1983-85 var hún skoskur unglingameistari (ens.: Scottish Youth’s champion) og árið 1983 var hún skoskur unglingameistari í holukeppni og meistari í höggleik (ens.: the Scottish Junior Open Strokeplay Champio) árin 1985, 1986 og 1987. Kathryn var hluti af Curtis Cup liðinu 1990. Hún spilaði í bandaríska háskólagolfinu með the University of Arizona, þar sem hún var All-American, 1989. Kathryn gerðist atvinnumaður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 8. 2015 | 12:00

Gísli komst ekki gegnum niðurskurð á St. Andrews

Gísli Sveinbergsson úr Keili endaði í 104. sæti af alls 144 keppendum sem fengu tækifæri til þess að keppa á hinu sögufræga St. Andrews Links Trophy. Eins og nafnið gefur til kynna fer mótið fram á hinum eina sanna St. Andrews í Skotland en leikið var á tveimur völlum, Jubilee og Old Course, þar sem að Opna breska meistaramótið fer fram í sumar. Gísli lék fyrsta hringinn á 76 höggum eða +4 en hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn eftir fyrsta hringinn. Ítalski kylfingurinn Federico Zucchetti stóð uppi sem sigurvegari á -2 samtals, landi hans Filippo Campigli varð annar á -1. Mótið á sér langa sögu en fyrst var keppt Lesa meira