Afmæliskylfingur dagsins: Bert Yancey og Jeff Barlow – 6. ágúst 2018
Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Bert Yancey og Jeff Barlow. Bert Yancey fæddist í Chipley, Flórída 6. ágúst 1938 og hefði orðið 80 ára í dag, en hann lést 26. ágúst 1994, nýorðinn 56 ára. Yancy þjáðist af manío-depressívu alla ævi, en lést um aldur fram úr hjartaslagi í golfvellinum. Hann sigraði m.a. 7 sinnum á PGA Tour. Hann lét eftir sig eiginkonu sína Cheryl og dóttur þeirra Andreu, en auk þess átti Bert 4 börn úr fyrra hjónabandi, dótturina Tracy og 3 syni: Charles, Scott og Jeffrey, og tvö barnabörn. Jeff Barlow hins vegar fæddist 6. ágúst 1968 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Barlow var m.a. í bandaríska háskólagolfinu og Lesa meira
Einvígið á Nesinu fer fram í dag
Hið árlega góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu (shoot-out) fer fram í 22. sinn á Nesvellinum í dag, mánudaginn 6. ágúst 2018 Venju samkvæmt er 10 af bestu kylfingum landsins fyrr og síðar boðið til leiks og munu þau í ár leika í þágu „Barnaspítala Hringsins“. Á Barnaspítalanum er veitt sérhæfð, fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta fyrir börn og unglinga að 18 ára aldri þar sem í allri þjónustu er áhersla lögð á að greina þarfir og auka vellíðan skjólstæðinga Mótið verður er með hefðbundnu sniði, þ.e. klukkan 10.00 hófu keppendur 9 holu höggleik og kl. 13.00 hefst Einvigið sjálft (shoot-out) þar sem einn kylfingur dettur út á hverri holu, þar til tveir berjast Lesa meira
Georgia Hall sigraði á Opna breska kvenrisamótinu!!!
Það var enski kylfingurinn Georgia Hall, sem sigraði á Ricoh Women´s British Open, kvenrisamótinu. Mótið fór fram á Royal Lytham & St. Annes. Georgia lék á samtals 17 undir pari, 271 höggi ( 67 68 69 67). Georgia átti 2 högg á þá sem næst kom, Pornanong Phatlum frá Thaílandi sem lék á samtals 15 undir pari. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tók þátt í mótinu en komst ekki í gegnum niðurskurð og munaði þar 5 höggum. Sjá má lokastöðuna á Opna breska kvenrisamótinu með því að SMELLA HÉR:
WGC: Justin Thomas sigraði á Bridgestone – Hápunktar 4. dags
Það var Justin Thomas, sem stóð uppi sem sigurvegari á Bridgestone heimsmótinu í golfi. Thomas lék á 15 undir pari, 265 höggum (65 64 67 69) og átti 4 högg á þann, sem næstur kom. Í 2. sæti varð Kyle Stanley á 11 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Bridgestone heimsmótinu í golfi SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta lokahrings Bridgestone heimsmótsins SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Ólafur Gylfason —— 5. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Ólafur Gylfason. Ólafur er fæddur 5. ágúst 1968 og á því 50 ára stórafmæli í dag!!! Ólafur er PGA golfkennari, sem stundaði nám í PGA golfkennaraskólanum. Ólafur er kvæntur Öldu Stefánsdóttur. Ólafur Gylfason – Innilega til hamingju með 50 ára stórafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Silla Ólafsdóttir, 5. ágúst 1949 (69 ára); Katsunari Takahashi, 5. ágúst 1950 (68 ára); Ásdís Lilja Emilsdóttir, 5. ágúst 1956 (62 ára); Gylfi Rútsson, 5. ágúst 1962 (56 ára); Ólafur Gylfason, golfkennari GA, 5. ágúst 1968 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ragnheiður Stephensen, 5. ágúst 1970 (48 ára); Gauja Hálfdanardóttir, 5. ágúst 1973 (45 ára); Jón Karl Björnsson, GK, Lesa meira
Golfgrín á laugardegi 2018 (15)
A man and his wife are playing the 5th hole at their club when he slices his drive so far to the right it rolls into an equipment barn. He finds the ball and plans to take a drop when she says, “Let me go down to the other end of the barn and hold the door open. Then you can hit your ball through the door and back to the fairway.” He thinks this is a good idea, so she holds the door. He takes a big swing, but rather than flying through the door, the ball hits her in the head and kills her. A year later, the Lesa meira
LET: Valdís Þóra úr leik á Opna breska
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, er úr leik á Opna breska kvenrisamótinu. Valdís Þóra lék samtals á +6 (73-77) og var hún fimm höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Sjá má stöðuna á Opna breska kvenrisamótinu með því að SMELLA HÉR:
Áskorendamótaröð Evrópu: Axel og Birgir Leifur komust ekki g. niðurskurð!
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG og Axel Bóasson nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik úr Keili, léku á Áskorendamótaröðinni. Mótið fer fram á Katrineholms vellinum í Svíþjóð og er hinn þekkti atvinnukylfingur Robert Karlsson gestgjafi mótsins. Niðurskurður var miðaður við samtals 2 undir pari eða betra. Birgir Leifur lék á 74-69 og var á -1 samtals. Hann var því einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Axel lék á 73-72 og var á +1 samtals. Hann var því þremur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn. Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR: Þetta var áttunda mótið á Áskorendamótaröðinni hjá Birgi á keppnistímabilinu. Hann hefur komist í Lesa meira
Nordic Golf League: Andri Þór og Guðmundur Ágúst luku keppni T-13 í Danmörku
Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson, úr GR, enduðu í 13. sæti á á Made in Denmark úrtökumótinu sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni Haraldur Franklín Magnús, GR, komst einnig í gegnum niðurskurðinn og endaði hann í 48. sæti. Mótið fór fram í Esbjerg golfklub, dagana 1.-3. ágúst 2018 og lauk því í gær Það var að miklu að keppa á þessu móti, þrír efstu keppendurnir, komust inn á Made in Denmark mótið sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Það mót fer fram í lok ágúst og byrjun september. Einnig komust þrír efstu af stigalista Nordic Golf League inn á það mót. Sjá má lokastöðuna í úrtökumótinu fyrir Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Hjörtur Þór Unnarsson – 4. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Hjörtur Þór Unnarsson. Hjörtur fæddist 4. ágúst 1966 og á því 52 ára afmæli í dag! Hann er í Golfklúbbi Reykjavík. Sjá má nýlegt viðtal Golf 1 við Hjört með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Hjartar til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Hjörtur Þór Unnarsson (52 ára– Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Janet Coles, 4. ágúst 1954 (64 ára); Deedee Lasker, (spilaði hér áður fyrr á LPGA) 4. ágúst 1959 (59 ára); Þorgeir Sæberg, 4. ágúst 1961 (57 ára); Nico Geyger (frá Chile – spilar á Evróputúrnum), 4. Lesa meira










