WGC: Poulter leiðir e. 1. dag á Bridgestone – Á 62!
Það er Ian Poulter, sem leiðir á Bridgestone heimsmótinu eftir fyrsta dag. Hann átti frábæran 1. hring, lék á 8 undir pari, 62 höggum!!! Í 2. sæti eru Rickie Fowler og Kyle Stanley á 7 undir pari, 63 höggum!!! Tiger lék, s.s. fram kemur í annarri grein hér á síðunni, á 66 höggum og er T-14. Sjá má stöðuna á Bridgestone með því að SMELLA HÉR: Sjá má hápunkta 1. dags á Bridgestone með því að SMELLA HÉR:
LPGA: Lee leiðir á Opna breska
Það er ástralski kylfingurinn Minjee Lee, sem leiðir á Opna breska kvenrisamótinu, sem fram fer í Lancashire. Lee lék 1. hring á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum. Í 2. sæti er japanska stúlkan Mamiko Higa, sem er 2 höggum á eftir á 5 undir pari, 67 höggum. Fimm kylfingar deila síðan 3. sætinu þ.á.m. enski kylfingurinn Georgia Hall, sem er til alls líklega. Íslenski atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir er meðal keppenda og er T-61 eftir 1. hring, s.s. áður er komið fram hér á Golf1.is Til þess að sjá stöðuna á Opna breska SMELLIÐ HÉR:
PGA: Tiger í góðu formi en ekkert ánægður m/1. hring á Bridgestone!
Tiger Woods var á 4 undir pari, 66 höggum á 1. hring WGC Bridgestone, í Akron. Hann var með hreint kort (þ.e. skollalaust) þar til hann fékk skolla á síðustu. Tiger hitti aðeins 1 braut af síðustu 9 á hring sínum, hann setti ekki niður fugla í fuglafærum, sem hann hefði aldrei látið ónýtt á hátindi ferils síns og slátturinn var bara miðlungs …. en hann lék samt sem áður á 66! … og það á velli sem hann hefir ekki spilað á frá árinu 2014. Hann kom jafnvel ekki til Akron fyrr en á miðvikudagsmorgni og hafði því ótrúlega lítinn tíma til æfinga, eftir frí sem hann tók sér Lesa meira
Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á 73 og Birgir á 74 e. 1. dag í Svíþjóð
Nýkrýndur Íslandsmeistari í höggleik 2018 Axel Bóasson, GK og Birgir Leifur Hafþórsson, GKG taka þátt í móti vikunar á Áskorendamótaröð Evrópu, Swedish Challenge. Mótsstaður er Katrineholms GK í Jättorp í Katrineholm, Svíþjóð. Axel lék 1. hring á 1 yfir pari, 73 höggum og er í hópi 23 kylfinga, sem deila 98. sætinu í mótinu. Birgir Leifur lék á 2 yfir pari, 74 höggum og er í hópi 10 kylfinga í 121. sæti mótsins. Báðir verða að gefa í til þess að ná niðurskurði!!! Í efsta sæti eftir 1. dag er spænski kylfingurinn Adri Arnaus, en hann lék á 8 undir pari, 64 höggum. Sjá má stöðuna á Swedish Challenge með því að Lesa meira
LET: Valdís Þóra T-61 e. 1. dag á Opna breska!!!
Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr GL tekur þátt í 4. risamóti kvennagolfsins í ár, Ricoh Women´s British Open, sem fram fer dagana 2.-5. ágúst 2018 og hófst í dag í Lancashire í Englandi. Eftir 1. dag er Valdís Þóra jöfn 21 kylfingi í 61. sæti, sem allar hafa spilað á 1 yfir pari, 73 höggum. Meðal þeirra er m.a. golfdrottningin og frægðarhallarkylfingurinn Dame Laura Davies og Solheim Cup kylfingurinn sænski Caroline Hedwall. Sem stendur er niðurskurður einnig miðaður við 73 högg eða betur og verður Valdís Þóra því að eiga góðan hring á morgun til þess að fylgja eftir fínum árangri sínum í dag og ná niðurskurði. Á hringnum í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Þórunn Andrésdóttir – 2. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Þórunn Andrésdóttir. Þórunn er fædd 2. ágúst 1970 og á því 48 ára afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins, til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Þórunn Andrésdóttir (48 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Fay Crocker, (f. 2. ágúst 1914 – d. 1983 – frá Úrúgvæ, lék á LPGA); Eyþór Árnason, 2. ágúst 1954 (64 ára); Bill Murchison Jr., 2. ágúst 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Caroline Pierce, 2. ágúst 1963 (55 ára), Jeff Bloom, 2. ágúst 1963 (55 ára); Þórunn Andrésdóttir, 2. ágúst 1970 (48 ára); Jonathan Andrew Lesa meira
Nordic Golf League: Allir 3 Íslendingarnir fóru g. niðurskurð í Esbjerg! – Guðmundur Ágúst bestur af þeim!
Allir 3 íslensku kylfingarnir sem þátt taka í úrtökumótinu fyrir Made in Denmark mótið á Evróputúrnum komust í gegnum niðurskurð. Af Íslendingunum er Guðmundur Ágúst búinn að standa sig best er T-4, þ.e. jafn tveimur öðrum keppendum í 4. sæti, en hann er búinn að spila hringina tvo á samtals 3 undir pari, 139 höggum (72 67). Guðmundur Ágúst átti stórglæsilegan hring upp á 4 undir pari í dag, 67 högg; hring þar sem skilaði „hreinu“ skorkorti með 4 fuglum og 14 pörum. Stórglæsilegt!!! Andri Þór er T-10, hefir spilað á samtals 1 undir pari, 141 höggi (71 70). Alltaf jafn glæsilegur!!! Haraldur Franklín er síðan T-54, bætti leik sinn Lesa meira
Rose ekki með á WGC Bridgestone
Enski kylfingurinn Justin Rose hefir dregið sig úr Bridgestone heimsmótinu. Ástæðan eru bakmeiðsl eða svokallaðir skyndilegir og ósjálfráðir vöðvasamdrættir (spasms) í baki. Nr. 2 á heimslistanum (Rose) er annar kylfingurinn til þess að draga sig úr Bridgestone heimsmótinu, því áður var kanadíski kylfingurinn Adam Hadwin búinn að draga sig úr mótinu vegna mjaðmameiðsla. Rose var talinn meðal líklegra sigurvegara á WGC-Bridgestone Invitational, en hann varð í 2. sæti á Opna breska, sem fram fór í ár s.s. flestir vita á Carnoustie linksaranum í Skotlandi og eins hefir Rose verið 5 sinnum meðal efstu 5 á Bridgestone mótinu í Akron, á ferli sínum. Rose hefir átt í vandræðum með bakið á sig Lesa meira
Evróputúrinn: 4 efstir eftir 1. hring Fiji Int.
Í dag hófst á Fiji eyjum, Fiji International mótið sem styrkt er af Fiji Airways, en mótið er hluti af Evróputúrnum. Mótið fer fram á golfvelli Natadola Bay golfklúbbsins. Fjórir kylfingar deila efsta sætinu: Ben Campell, Nick Cullen, Jarryd Felton og Andrew Dodt, allir frá Ástralíu. Allir léku þeir 1. hring á 5 undir pari, 67 höggum. Sjá má stöðuna á Fiji International með því að SMELLA HÉR:
Nordic Golf League: Andri Þór bestur af íslensku kylfingunum e. 1. dag í Esbjerg
Atvinnukylfingarnir úr GR Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús hófu leik í dag á Made in Denmark Qualifier – by EnergiMetropol Esbjerg. Mótið er úrtökumót fyrir Made in Denmark mótið, sem er hluti af Evróputúrnum. Það fer fram á velli Esbjerg Golfklub. Andri Þór lék best íslensku keppendanna var á sléttu pari, 71 höggi á hring þar sem hann fékk 4 fugla, 2 skolla og 1 örn. Hann er T-17 eftir 1. dag þ.e. deilir 17. sætinu með öðrum kylfingum. Næstbest lék Guðmundur Ágúst en hann kom í hús á 1 yfir pari, 72 höggum og er T-32. Haraldur Franklín átti ekki sinn besta dag en Lesa meira










