Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2018 | 20:00

Axel, Birgir, Ólafía og Valdís keppa fyrir Ísland á EM atvinnukylfinga

Fjórir íslenskir atvinnukylfingar verða á meðal keppenda á Evrópumóti í liðakeppni atvinnukylfinga sem fram fer á Gleneagles vellinum í Skotlandi dagana 8.-12. ágúst. Á sama tíma verður keppt um Evrópumeistaratitla í fjölmörgum íþróttagreinum í Glasgow og er golfmótið hluti af þeirri keppni. EM í hjólreiðum, fimleikum, róðri og þríþraut fer fram í Glasgow á þessum tíma einnig. Á sama tíma fer fram EM í frjálsíþróttum í Berlín. Nánar má sjá um mótið með því að SMELLA HÉR:  Verðlaunaféð skiptist jafnt niður í karla- og kvennaflokki. Keppt er í liðakeppni í karla – og kvennaflokki og einnig verður leikin 18 holu keppni með blönduðum liðum. Alls eru 16 þjóðir sem taka Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2018 | 18:00

6 valdir í piltalandsliðið

Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, hefur valið sex kylfinga í piltalandslið Íslands á sem keppir á Evrópumótinu 2018. Piltalandsliðið leikur í 2. deild EM dagana 18.-23. september og fer keppnin fram á Pannonia vellinum í Búdapest í Ungverjalandi. Þrír kylfingar eru úr Golfklúbbi Reykjavíkur, tveir eru úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og einn úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Liðið er þannig skipað: Ingvar Andri Magnússon (GKG) Viktor Ingi Einarsson, GR Sverrir Haraldsson (GM) Kristófer Karl Karlsson (GM) Dagbjartur Sigurbrandsson (GR) Sigurður Bjarki Blumenstein (GR) Fyrirliði og sjúkraþjálfari: Baldur Gunnbjörnsson Þjálfari: Jussi Pitkänen Texti og mynd: GSÍ

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Andri Páll Ásgeirsson – 7. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Andri Páll Ásgeirsson. Andri Páll er fæddur 7. ágúst 1998 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Andri Páll er í Golfklúbbnum Keili (GK). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Andri Páll Ásgeirsson · (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kolbrún Sævarsdóttir, 7. ágúst 1964 (54 ára); Jodi Figley, 7. ágúst 1969 (49 ára – spilaði á LPGA); Esther Choe, 7. ágúst 1989 (29 ára – bandarísk spilar á LET) ….. og ….. Rósirnar Heilsurækt Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og ððrum kylfingum sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 7. 2018 | 09:00

Næsta golfstjarna Skota?

Anthony Finnie er bara 5 ára, en hann er í dag sá yngsti sem nokkru sinni hefir tekið þátt í Junior European Open. Anthony byrjaði í golfi í fyrra en fékk að fara á Carnoustie að fylgjast með stjörnunum á Opna breska. Þar hitti hann m.a. sigurvegarann í ár Francesco Molinari og Rory McIlroy áritaði bolta fyrir hann og eins fékk hann gjöf frá Darren Clarke. Það er svo óendanlega mikilvægt að golfstjörnur. sem upp til hópa eru egócentrískir sjálfselskupúkar, séu góðar fyrirmyndir og góðir við börn, sem líta upp til þeirra. A.m.k. var reynsla Anthony Finnie af Carnoustie heimsókninni svo góð að nú vill hann ekki gera neitt annað Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 22:00

GA: Úrslit úr Hatta- og pilsamóti 2018

Þann 28. júlí s.l. var hið árlega Hatta- og pilsamót GA kvenna haldið hátíðlegt. Stelpurnar mættu glæsilega klæddar og spiluðu frábært golf þar sem fyrirkomulagið var texas scramble. Mikil gleði var á vellinum og eftir hringinn sá Vídalín um ljúffengar veitingar. Þáttakan í ár var alveg frábær en alls mættu 44 konur og voru allskonar glæsileg verðlaun í boði. Hér að neðan má sjá verðlaunahafa: Texas scramble – Höggleikur með forgjöf (9 holur) 1. sæti – 33 högg með forgjöf Unnur Elva Hallsdóttir og Ólína Aðalbjörnsdóttir 2. sæti – 36 högg með forgjöf (eftir að hafa talið til baka) Guðrún Sigríður Steinsdóttir og Elín Guðmundsdóttir 3. sæti – 36 högg Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 22:00

GKG: Úrslit eftir 4. Mix mótið

Þann 2. ágúst s.l. lauk fjórða mótinu af fimm í Mix mótaröð byrjenda hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Flott þátttaka var en yfir 40 luku keppni. Verðlaunasæti eru hér fyrir neðan, en úrslit allra eru á golf.is í mótaskrá. Það voru margir sem lækkuðu forgjöfina! Næsta mót, sem er jafnframt það seinasta verður haldið 23. ágúst n.k. Mix mót nr. 4 2.ágúst Strákar 10-12 ára Punktar 1 Arnar Geir Ómarsson * GKG 24 2 Daníel Pétur Gunnþórsson GKG 23 3 Thomas Ásgeir Johnstone * GKG 21 Drengir 13-16 ára Punktar 1 Ragnar Már Halldórsson * GKG 21 2 Jakob Dagur Einarsson GKG 18 3 Daníel Orri Þorsteinsson * GKG 15 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 21:00

GR: Böðvar Bragi og Gerða Hammer sigruðu á Opna FJ

Opna FJ 2018 fór fram á Grafarholtsvelli í dag í sól og sumaryl. Ræst var út frá kl.8:00 og var þátttakan glæsileg enda um flott mót að ræða. Keppt var bæði í höggleik og punktakeppni í mótinu ásamt því sem frábær aukaverðlaun eru veitt þeim sem næstir voru holu á öllum par 3 og lengsta upphafshöggi á 3. Braut. Ásdís Valtýsdóttir gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 2.braut, glæsilega gert. Böðvar Bragi Pálsson spilaði á einu höggi undir pari, 70 högg og nældi sér í fyrsta sætið í höggleik. Í punktakeppni var það Gerða Kristín Hammer sem lenti í fyrsta sæti með 42 punkta. Úrslitin úr Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 20:00

Ásdís Valtýsdóttir fékk ás!

Ásdís Valtýsdóttir tók þátt í Opna FJ á Grafarholtsvellinum í dag. Ásdís er í GR og því öllum hnútum kunn á heimavellinum. Í mótinu vann Ásdís nándarverðlaunin á 2. holunni, þar sem hún fór glæsilega holu í höggi einmitt á þeirri holu. Önnur brautin er 121 metri af rauðum teigum og þykir ekki auðveldasti par-þristurinn í Grafarholtinu! Golf 1 óskar Ásdísi innilega til hamingju með ásinn!!!

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 20:00

12 epísk mistök í golfi – Myndskeið

Golf Magic hefir tekið saman það sem að þeirra mati eru 12 mest epísku mistökin í golfi. Sjá má myndskeið Golf Magic með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 6. 2018 | 18:00

Ragga Sig sigraði í Einvíginu á Nesinu

Einvígið á Nesinu (Shoot out) góðgerðarmótið fór fram á Nesvellinum í sólríku en nokkuð vindasömu veðri í dag. Þetta var í 22. skiptið sem mótið var haldið og eins og ávallt var það haldið til styrktar góðu málefni tengt börnum, nú Barnaspítala Hringsins. Sigurvegari mótsins var klúbbmeistari GR 2018 og svo mörg undanfarin ár, Ragnhildur Sigurðardóttir eftir æsispennandi spil á lokaholunni þar sem hún atti kappi við Alfreð Brynjar Kristinsson. Að móti loknu var verðlaunaafhending og keppendum afhendur þakklætisvottur fyrir sitt framlag til málefnisins. Mótið er eins og áður sagði fyrst og fremst góðgerðarmót og Kristinn Ólafsson formaður Neskúbbsins afhenti að lokum Þránni Rósmundssyni frá Barnaspítala Hringsins ávísun frá Nesklúbbnum að upphæð Lesa meira