PGA: Snedeker sigraði á Wyndham!
Það var Brandt Snedeker sem sigraði nú fyrir stuttu á Wyndham Championship. Snedeker hefir verið í forystu allt mótið, en hann varð sá 10. í sögu PGA mótaraðarinnar til þess að spila undir 60 í PGA Tour móti! Erlendir golffjölmiðlar eru farnir að kalla Snedeker „Mr. 59″ þ.e. „Herra 59!“ Snedeker lék samtals á 21 undir pari, 259 höggum (59 67 68 65). Í 2. sæti urðu bandaríski kylfingurinn Webb Simpson og CT Pan frá Tapei, en þeir léku á samtals 18 undir pari, hvor. Til þess að sjá lokastöðuna á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. hrings á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR: (verður sett inn Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Guðjón Steingrímsson – 19. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Guðjón Steingrímsson. Guðjón er fæddur 19. ágúst 1967 og á því 51 árs afmæli í dag!!! Guðjón var í hinum frábæra ´67 árgangi í Víðisstaðaskóla og er í Golfklúbbnum Keili (GK) í Hafnarfirði. Hann á soninn Arnór og dótturina Elísu. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Gudjon Steingrimsson · Innilega til hamingju með 51 árs afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Björn Friðþjófsson, 19. ágúst 1942 (76 ára), GR (fgj. 13.8); Christy O’ Connor Jr, 19. ágúst 1948 (70 ára STÓRAFMÆLI!!!); Gordon Brand Jr., f. 19. ágúst 1958 – d. 1. Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur varð T-68 á Nordea Masters
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, lauk keppni í dag á Nordea Masters. Hann lék á samtals 3 yfir pari, 283 höggum (67 70 75 71) og varð jafn 3 öðrum í 68 sæti þ.e. T-68. Meðal þeirra sem deildu 68. sætinu með Birgi Leif var Edoardo Molinari, bróðir sigurvegara Opna breska í ár, Francesco Molinari! Englendingurinn Paul Waring sigraði eftir 1 holu bráðabana við Thomas Aiken frá S-Afríku, þar sem par-5 18. hola golfvallar Hills golfklúbbsins var spiluð aftur og Waring fékk par meðan Aiken tapaði á skolla. Til þess að sjá lokastöðuna á Norda Masters SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Stefán Guðmundur Þorleifsson – 18. ágúst 2018
Það er Stefán Guðmundur Þorleifsson, sem á afmæli í dag. Hann er fæddur 18. ágúst 1916 og er því 102 ára í dag. Stefán er í Golfklúbbi Neskaupsstaðar, (GN). Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Reykjavík Reykvíkingur (94 ára); Egill Egilsson, GMS, 18. ágúst 1956 (62 ára); Anna Kr. Jakobsdottir (62 ára); Grasagarður Reykjavíkur (57 ára); Thorey Vilhjalmsdottir (46 ára) Joachim B. Hansen, 18. ágúst 1990 (28 ára) danskur á Áskorendamótaröðinni ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
Kaymer segist ekki verðskulda að vera í Ryder bikars liði Evrópu
Tvöfaldur risamótameistari Martin Kaymer býst ekki við að vera með í Ryder bikars liði Evrópu í Frakklandi nú í haust. Kaymer, 33 ára, sem hefir sigrað á PGA Championship 2010 og Opna bandaríska 2014, sem og Players Championship, hefir átt erfitt í ár. Hann hóf keppni á Nordea Masters í 127. sæti heimslistans og hefir ekki komist í gegnum niðurskurð þrívegis á sl. 4 mótum, sem hann hefir tekið þátt í. Eftir 2 hringi á Nordea Masters er Kaymer hins vegar T-7 á 6 undir pari. En hann telur það ekki nægilegt til þess að komast í Ryder liðið. „Finnst ykkur ég eiga skilið að vera með eftir það hvernig Lesa meira
PGA: Sjáið örn Johnson Wagner!
Johnson Wagner ÞURFTI að fá fugl á síðustu holu Wyndham Championship til þess að komast í gegnum niðurskurð og til þess að halda í von um að komast í FedExCup umspilið. Hann gerði gott betur – Frábært aðhögg hans …. fór beint ofan í holu – ÖRN!!! Við höggið góða notaði Wagner 9-járn og fjarlægðin frá holu var 140 metra. Sveifla hans þótti hins vegar nokkuð sérstök, svo ekki sé meira sagt. Sjá má arnarhögg Johnson Wagner með því að SMELLA HÉR:
PGA: Snedeker efstur e. 2. dag
Brandt Snedeker er enn í forystu á Wyndham Championship eftir stórglæsilegan 1. hring þar sem hann braut 60, þ.e. spilaði á 59 höggum. Snedeker er búinn að spila á 14 undir pari, 126 höggum (59 67) og leiðir enn þrátt fyrir 8 högga sveiflu. DA Points hefir tekist að saxa all verulega á forskot Snedeker en aðeins munar 2 höggum á þeim núna eftir að Points átti frábæran annan hring upp á 64 högg í dag og er samtals á 12 undir pari, 128 höggum (64 64). Í 3. sæti er CT Pan frá Tapei á 11 undir pari 129 höggum (65 64). Sjá má stöðuna á Wyndham Championship með Lesa meira
LET Access: Guðrún Brá varð T-27 á Bossey Ladies mótinu!
Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Berglind Björnsdóttir, GR tóku þátt á móti vikunnar á LET Access, Bossey Ladies Championship 2018. Mótið fór fram í Association du Golf & Country Club de Bossey, í Bossey, Frakklandi. Guðrún Brá lék á samtals 2 yfir pari, 215 höggum (70 70 75) og varð T-27, þ.e. deildi 27. sætinu með 7 öðrum kylfingum. Berglind lék á 11 yfir pari, 153 höggum (75 78) og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð, sem var miðaður við 5 yfir pari eða betra. Sigurvegari í mótinu varð Elia Folch frá Spáni, en hún lék á samtals 10 undir pari, 203 höggum (66 Lesa meira
Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-13 á Holtsmark Open
Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur í GR tók þátt í Holtsmark Open. Mótið fór fram í Holtsmark golfklúbbnum í Danmörku. Guðmundur Ágúst lék samtals á 6 undir pari, 210 höggum (70 70 70). Hann hafnaði jafn öðrum í 13. sæti, sem er frábær árangur!!! Sigurvegari mótsins varð Svíinn Jacob Glennemo en hann lék á samtals 15 undir pari (64 69 68). Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ali Gibb fékk 3 ása í sama móti!!!
Ali Gibb er 51 árs kylfingur frá Surrey í Englandi, sem náði því einstæða afreka að fá 3 ása á 36 holu móti. Líkurnar á að fara holu í höggi eru 1 á móti 2500. Líkindin á að fá ás tvisvar í sama móti eru margfalt fleiri en þrjá? Fyrir mótið hafði Gibb þrívegis farið holu í höggi en tvöfaldaði skiptin á einum degi … á innan við 5 klukkustundum! …. og náði þar að auki að verja klúbbmeistaratitil sinn í Croham Hurst golfklúbbnum í Surrey á Englandi. Í fyrsta sinn náði Gibb ási á Atlantic Beach Golf Estate í Suður-Afríku. CNN hefir fjallað um Gibb og afrek hennar og má lesa Lesa meira










