Áskorendamótaröð Evrópu: Axel náði ekki niðurskurði
Axel Bóasson, GK, náði ekki niðurskurði á móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu, Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open. Mótið fer fram í Galgorm, í Ballymena á N-Írlandi. Axel lék á samtals 10 yfir pari 152 höggum (78 74) Hann bætti sig um 4 högg frá fyrri hring, en það dugði ekki til; Axel náði ekki niðurskurði, en hann var miðaður við samtals parið eða betra. Sjá má stöðuna á Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open með því að SMELLA HÉR:
Evróputúrinn: Birgir Leifur T-29 e. 2. dag Nordea Masters
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, Nordea Masters. Mótið fer fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Gautaborg, Svíþjóð. Birgir Leifur lék 2. hring á sléttu pari, 70 höggum; fékk 3 fugla og 3 skolla. Samtals hefir Birgir Leifur spilað á 3 undir pari 137 höggum (67 70) og er T-29 – flaug í gegnum niðurskurð, sem miðaður var við parið eða betra. Efstir í hálfleik eru Scott Jamieson frá Skotlandi og Englendingurinn Paul Waring – en báðir hafa spilað á 11 undir pari, hvor. Sjá má stöðuna á Nordea Masters með því að SMELLA HÉR:
LPGA: Ólafía Þórunn úr leik á Indy Tech
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir lék 2. hring á Indy Women in Tech mótinu á 72 höggum. Samtals lék Ólafía á 1 undir pari, 143 höggum (71 72). Hún er úr leik en niðurskurður er miðaður við 3 undir pari eða betra. Óveður þ.e. miklar rigningar hafa orðið til þess að fresta hefir þurft 2. hring ítrekað og eiga því nokkrar eftir að ljúka leik en nánast öruggt er að Ólafía komist ekki í gegnum nðurskurð – skorin eru einfadlega of lág í mótinu. Til þess að fylgjast með stöðunni á Indy in Tech mótinu SMELLIÐ HÉR:
Tiger: „Ég er hættur ég spila ekki golf meira“
Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Alex Perry hjá NCG skýra frá því skipti sem Tiger Woods er sagður hafa sagst vera hættur í golfi. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Þröstur Ársælsson- 17. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Þröstur Ársælsson. Þröstur er fæddur 17. ágúst 1967 og á því 51 árs afmæli í dag!!! Þröstur er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska Þresti til hamingju með stórafmælið….. Þröstur Ársælsson (51 árs – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hugh John Baiocchi 17. ágúst 1946 (72 ára); Dottie Pepper, aðstoðarfyrirliði Meg Malone í Solheim Cup 2013, 17. ágúst 1965 (53 ára); Peter Gustafson, 17. ágúst 1976 (42 ára), Högna Kristbjörg Knútsdóttir, GK, 17. ágúst 1994 (24 ára) ….. og …. Songlist Song Og Leiklistarskoli Golf 1 Lesa meira
17 atriði sem þið vissuð ekki um Ian Poulter
Hér á eftir fara 17 atriði, þann 17. ágúst sem þið vissuð e.t.v. ekki um enska kylfinginn Ian Poulter: 1. Poulter gerðist atvinnumaður með 4 í forgjöf. 2. Fyrsti golfklúbburinn þar sem hann var félagi var Chesfield Downs í Hertfordshire. 3. Hann var aðstoðargolfkennari í Leighton Buzzard og veitti krökkum oft tíma fyrir £1. 4. Hann vann með þjálfaranum Lee Scarborough. 5. Fyrsti sigurinn kom í móti sem var tveggja hringja þ.e. 36 holur. Hann var á skori upp á 66 báða daga og hann vann sér inn £1,500, sem var andvirði 2 mánaða vinnu þegar hann var aðstoðargolfkennari. 6. Poulter byrjaði að spila golf þegar hann var 4 ára. 7. Lesa meira
LPGA: Ólafía á 71 á 1. degi Indy Tech
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir úr GR lék 1. hring á Indy Women in Tech Championship á 1 undir pari, 71 höggi. Á 1. hring fékk Ólafía Þórunn 3 fugla og 2 skolla og er T-87, sem stendur. Niðurskurður er miðaður við 2 undir pari eða betra sem stendur og því er Ólafía sem stendur undir niðurskurðarlínunni og verður að bæta aðeins í, í dag. Spennandi að sjá hvort Ólafía komist gegnum niðurskurð!!! Efst í mótinu er hin mexíkansk-bandaríska Lizette Salas, en hún kom í hús á 10 undir pari, 62 höggum!!! Um Lizette sjá eldri grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá stöðuna á Indy Lesa meira
PGA: Snedeker efstur á Wyndham Championship á 59 höggum!!!
Brandt Snedeker er efstur á Wyndham Championship eftir 1. dag. Hann kom í hús á draumaskori flestra kylfinga, 11 undir pari 59 glæsihöggum!!! … og það í móti á PGA. Hann er 10. kylfingurinn til að spila undir 60 á móti PGA Tour. Stórglæsilegur!!! Öðru sætinu deila þeir John Oda og Ryan Moore, báðir á 7 undir pari, 63 höggum. Spilað er á velli Sedgefield Country Club, í N-Karólínu, Bandaríkjunum. Til þess að sjá stöðuna á Wyndham Championship SMELLIÐ HÉR: Í aðalfréttaglugga: Billy Horschel fagnar 59-unni með Brandt Snedeker eftir að sá síðarnefndi setti niður lokapúttið.
LET Access: Guðrún Brá T-11 e. 2. dag í Frakklandi!
Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Berglind Björnsdóttir, GR tóku þátt á móti vikunnar á LET Access, Bossey Ladies Championship 2018. Mótið fer fram í Association du Golf & Country Club de Bossey, í Bossey, Frakklandi. Guðrún Brá hefir spilað glæsilega á samtals 2 undir pari, 140 höggum (70 70) og er T-11, þ.e. deilir 11. sætinu með 2 öðrum kylfingum. Berglind lék á 11 yfir pari, 153 höggum (75 78) og komst því miður ekki í gegnum niðurskurð, sem var miðaður við 5 yfir pari eða betra. Sjá má stöðuna á Bossey Ladies Championship 2018 með því að SMELLA HÉR:
Áskorendamótaröð Evrópu: Erfið byrjun hjá Axel á N-Írlandi
Íslandsmeistarinn í höggleik 2018, Axel Bóasson, GK, er með á móti vikunnar á Áskorendamótaröð Evrópu, Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open. Mótið fer fram í Galgorm, í Ballymena á N-Írlandi. Axel lék 1. hring á 7 yfir pari, 78 höggum og er í einu neðstu sætunum. Það lítur því ekki vel fyrir Axel með það að komast í gegnum niðurskurð að þessu sinni, en 2. hringur verður spilaður á morgun. Efstir í mótinu eftir 1. dag eru Stuart Manley frá Wales og Minkyu Kim frá S-Kóreu, en báðir léku á 7 undir pari, 64 höggum. Sjá má stöðuna á Galgorm Resort & Spa Northern Ireland Open með því að SMELLA Lesa meira









