Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 21. 2018 | 08:00

Beit af fingur kylfings!

Deila milli tveggja kylfinga í golfklúbbi í Massachusetts endaði blóðugt þegar annar þeirra beit af fingur hins, segir í frétt frá Fox News. Lögregla var kölluð á vettvang í Southers Marsh golfklúbbinn í Plymouth um kl 6:30 s.l. laugardag vegna slagsmála tveggja kylfinga, sagði yfirlögreglustjóri  Plymouth lögreglunnar, Michael Botieri skv. Boston25 News. Þegar komið var á staðinn fundu þeir annan kylfinginn sem var með „bitsár á annarri hendi.“ Það var 47 ára maður, sem engin nánari deili voru gefin á, sem var handtekinn og ákærður fyrir líkamsárás. Slökkviliðið kom á staðinn og komst að því að þumarputti brotaþola hafði verið bitinn af niður að hnúa, skv. WCVB. „Skv. nýjustu fréttum lögreglunnar voru Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 18:00

GHH: Guðrún og Óli Kristján klúbbmeistarar 2018

Sem fyrr er það Golfklúbbur Hafnar í Hornafirði (GHH), sem heldur uppi heiðri golfklúbba á Austurlandi, en GHH er eini klúbburinn á Austurlandi, sem staðið hefir fyrir meistaramóti, það sem af er árs. Meistaramót GHH fór fram á Silfurnesvelli dagana 10.-12. ágúst 2018. Í ár voru þátttakendur 18 – 12 karl- og í fyrsta skipti í langan tíma 6 kvenkylfingar!!! FRÁBÆRT!!! Reyndar er golfstarfið blómlegt á Höfn því í allt sumar hefir Nettómótaröðin verið leikin! Klúbbmeistarar GHH 2018 eru Guðrún Ingólfsdóttir og Óli Kristján Benediktsson. Meistaraflokkur: 1 Óli Kristján Benediktsson GHH 4 F 41 44 85 15 87 87 85 259 49 2 Jón Guðni Sigurðsson GHH 11 F 41 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Garrett Philips —— 20. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Garrett Whitney Phillips. Hún fæddist í Houston, Texas 20. ágúst 1986 og á því 32 ára afmæli í dag. Garrett hefir spilað bæði á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour) og LPGA Futures Tour (nú Symetra Tour). Hún gerðist atvinnumaður í golfi eftir að hún útskrifaðist frá University of Georgia, þar sem hún spilaði golf með háskólaliðinu. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ólafur Bjarnason Sh, 20. ágúst 1973 (45 ára); Álsey Ve, 20. ágúst 1987 (31 árs) og Góðir Landsmenn Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 13:45

GKS: Fjölgun iðkenda hjá Golfklúbbi Siglufjarðar

Með tilkomu hins nýja og glæsilega golfvallar á Siglufirði, Sigló golf, sem opnaði 11. júní 2018, hefir færst aukinn kraftur í golfíþróttina á Siglufirði og hefir iðkendum Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS) fjölgað jafnt og þétt. Margir kylfingar hafa komið til Siglufjarðar til að prófa nýja völlinn og hafa þeir verið sérlega ánægðir með hann. GKS stóð fyrir Rauðkumótaröðinni í sumar og var leikið á miðvikudagskvöldum. Þátttakendur í hverju móti hafa verið milli 20 til 30 og hefir þar m.a. mátt sjá nokkur ný andlit. Þegar hafa verið haldin 10 mót; það síðasta 15. ágúst sl. Ljóst er að nýi völlurinn hefir hleypt auknu lífi í golfíþróttina á Siglufirði. Sem flestir ættu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 13:30

LPGA: Ólafía Þórunn hefur keppni í Kanada n.k. fimmtudag

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir hefur leik á fimmtudaginn á CP-meistaramótinu á LPGA mótaröðinni sem fram fer í Kanada. Mótið hefst 23. ágúst og stendur fram til 26. ágúst. Leikið er á Wascana vellinum í Regina. Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn á síðasta móti sem fram fór í Indianapolis, en þar lék hún á -1 samtals (71-72). Þeir sem léku á -4 eða betur komust í gegnum niðurskurðinn. Eins og staðan er núna þá er Ólafía í sæti nr. 139 á peningalista LPGA mótaraðarinnar. Ólafía þarf að vera á meðal hundrað efstu til að halda keppn­is­rétt­in­um á næsta tíma­bili, en verði hún í sæt­um 101-125 í lok tíma­bils­ins, fær hún Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 12:00

GKS: Ólína Þórey og Jóhann Már klúbbmeistarar 2018

Meistaramót Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS) fór fram dagana 10.-12. ágúst 2018. Þátttakendur í ár voru 13, 10 karl- og 3 kvenkylfingar og var spilað var í 3 flokkum á nýjum, glæsilegum golfvelli, sem opnaður var sl. júní og ber nafnið Siglógolf. Klúbbmeistarar GKS 2018 eru Ólína Þórey Guðjónsdóttir og Jóhann Már Sigurbjörnsson, Heildarúrslit í Meistaramóti GKS 2018 eru eftirfarandi: 1. flokkur karla: 1 Jóhann Már Sigurbjörnsson GKS -3 F 32 35 67 -5 68 68 67 203 -13 2 Sævar Örn Kárason GKS 3 F 44 37 81 9 83 82 81 246 30 3 Salmann Héðinn Árnason GÁS 2 F 41 43 84 12 82 86 84 252 36 4 Ingvar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 09:47

Hver er kylfingurinn: Paul Waring?

Enski kylfingurinn Paul Waring sigraði nú um helgina á Nordea Masters, sem var mót vikunnar á Evróputúrnum, eftir bráðabana við Thomas Aiken frá S-Afríku. Waring hafði betur þegar á 1. holu bráðabanans; vann með pari meðan Aiken fékk skolla. Mótið fór fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Svíþjóð. En hver er kylfingurinn Paul Waring …. það hefir ekki beint farið mikið fyrir honum, þó hann hafi stundum verið meðal efstu á mótum Evróputúrsins? Paul James Waring fæddist 2. febrúar 1985 í Birkdale í Englandi og er því 33 ára. Í dag býr Waring í Bebington á Englandi. Hann er 1,8 m á hæð og 79 kg. Hann átti góðan áhugamannaferil Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 20. 2018 | 00:30

GÍ: Golfveisla á Tungudalsvelli – Emil Þór m/nýtt vallarmet!!!

H.G. mótinu í golfi lauk í gær, 19. ágúst 2018 á Tungudalsvelli, á Ísafirði. eftir tveggja daga keppni vestfirskra kylfinga í einmuna blíðu, sunnan þey og sólskini. Með því lýkur Sjávarútvegsmótaröðinni í golfi, sem er samstarfsverkefni Golfklúbba á Vestfjörðum og sjávarútvegsfyrirtækja í fjórðungnum. Haldið var upp á lokin með veislu í Golfskálanum í Tungudal þar sem sigurvegurum í H.G. mótinu og í Sjávarútvegsmótaröðinni var fagnað. Emil Þór Ragnarsson setti nýtt vallarmet á Tungudalsvelli í gær. Sigurvegarar í höggleik í H.G. mótinu voru; í karlaflokki sigraði Emil Þór Ragnarsson, Anna Guðrún Sigurðardóttir sigraði í kvennaflokki og Jón Gunnar Shiransson í unglingaflokki. Með forgjöf sigraði Emil Þór Ragnarson með 38 punkta og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 19. 2018 | 23:35

GK: Keiliskonur Íslandsmeistarar 50+!!!

Íslandsmót golfklúbba 2018  í 1. deild í kvennaflokki 50+ fór fram að Jaðarsvelli á Akureyri. Það voru Keiliskonur sem stóðu uppi sem sigurvegarar í 1. deild á Íslandsmóti golfklúbba 50+ . Það voru sveitir Keilis og Golfklúbbs Reykjavíkur, sem léku til úrslita og vann sveit GK með 3,5 vinningi g. 1,5 vinningi. Keilis sveitina skipuðu þær: Þórdís Geirsdóttir- spilandi liðsstjóri Anna Snædís Sigmarsdóttir Helga Gunnarsdóttir Hulda Soffía Hermansdóttir Kristín Pétursdóttir Kristín Sigurbergsdóttir Margrét Sigmundsdóttir Margrét Berg Theódórsdóttir Sjá má öll úrslit í 1. deild kvenna 50+ með því að SMELLA HÉR:  Innilega til hamingju!!!

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 19. 2018 | 23:00

GR: GR-ingar Íslandsmeistarar í karlaflokki 50+

Íslandsmót eldri kylfinga 50+ fór fram dagana 17.-19. ágúst 2018. Fyrsta deild karla lék á Húsatóftavelli í Grindavík og fór úrslitaviðureignin fram milli sveit GR og GK. GR-ingar höfðu betur og hömpuðu Íslandsmeistarabikarnum. Í Íslandsmeistarasveit GR 50+ 2018 voru eftirfarandi: Árni Páll Hansson Guðmundur Arason Sigurður Pétursson Guðjón Grétar Daníelsson Ellert Magnason Sigurður Hafsteinsson Hörður Sigurðsson Jón Haukur Guðlaugsson Liðsstjóri:Sigurjón Árni Ólafsson Sjá má öll úrslit með því að SMELLA HÉR:  Innilega til hamingju!