Hver er kylfingurinn: Tommy Fleetwood?
Eftir Ryder bikars keppnina 2018 veit hver maður, sem eitthvað fylgist með golfi, hver enski kylfingurinn Tommy Fleetwood er. En fyrir þá sem hafa gaman að vita öll smáatriði fer hér svarið við spurningunni í fyrirsögn þessarar greinar þ.e. svarið við spurningunni um hver kylfingurinn Tommy Fleetwood sé. Thomas Paul Fleetwood fæddist í Southport í Englandi 19. janúar 1991 og er því 27 ára. Hann hefir, eftir að hann gerðist atvinnumaður aðallega spilað á Evróputúrnum og sigrað 4 sinnum þar og samtals í 7 mótum á alþjóðlegum vettvangi. Hann var nýliði á nýafstöðnu Ryder móti 2018 og átti stóran þátt í sigri liðsins þar sem hann sigraði í 4 af Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Þórdís Geirsdóttir – 1. október 2018
Það er Þórdís Geirsdóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Þórdís er fædd í Reykjavík 1. október 1965. Þórdís er gift Guðbrandi Sigurbergssyni og á 3 syni: Sigurberg, Geir og Þráinn. Guðbrandur og Sigurberg eru líkt og Þórdís í GK og spila golf. Þórdís var aðeins 11 ára þegar hún byrjaði í golfi og strax 1976 gekk hún í Golfklúbbinn Keili í Hafnarfirði, sem hún hefir síðan verið í alla tíð. Þórdís segist hafa elt bræður sína, Lúðvík og Hörð út á golfvöll og ekki leið á löngu þar til hún hnuplaði kylfum frá þeim og fór að æfa sig. Það var stór og skemmtilegur hópur krakka í Keili á þessum Lesa meira
Ryder Cup 2018: Erica Herman
Nú þegar Ryderinn er að baki er vert að rifja upp nokkur eftirminnileg augnablik frá þessari keppni allra keppna, sem fram fer 2. hvert ár. Ein var sú af WAGs-unum, sem vakti verulega athygli á þessu Ryder móti en það var Erica Herman, kærasta Tiger Woods. Hún hefir þótt frekar lítil, rýr og óásjáleg miðað við ýmsar af þeim glæsiskvísum, sem Tiger hefir verið að deita. Erica þótti hins vegar einkar glæsileg þegar hún mætti til opnunarhátíðarinnar (sjá mynd hér að neðan) og eins í Gala Dinnernum, sem fram fer fyrir aðalkeppnina (sjá mynd í aðalmyndaglugga). Þar var hún öllu glæsilegri til fara en hún hefir hingað til virtst vera, Lesa meira
Ryder Cup 2018: Molinari í sögubækurnar!
Ítalski kylfingurinn Francesco Molinari skráði nafn sitt í golfsögubækurnar eftir að sigra alla 5 leiki sína í 2018 Ryder bikars keppninni, með liði Evrópu. Hann er fyrsti liðsmaður Evrópu í sögu Rydersins til þess að sigra ALLA 5 leiki sína í einu Ryders bikars móti! Molinari vann mikilvægan sigur ásamt félaga sínum, nýliðanum Tommy Fleetwood í föstudagsfjórboltanum fyrir hádegi á 1. keppnisdegi, en keppnin byrjaði á afturfótunum fyrir lið Evrópu þar sem „Moliwood“ eins og þeir Francesco Molinari og Tommy Fleetwood hafa verið kallaðir, eftir frækilega frammistöðu sína, unnu eina stig Evrópu; Staðan 3-1 fyrir Bandaríkin eftir fyrstu 4 leikina! Svo sem öllum er kunnugt sneri lið Evrópu svo sannarlega Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Sigurlaug Rún og félagar luku keppni í 5. sæti í Iowa
Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu Drake tóku þátt í Diane Thomason Invitational. Mótið fór fram dagana 29.-30. september 2018 á Finkbine golfvellinum í Iowa City í Iowa. Þátttakendur 54 frá 9 háskólum. Sigurlaug Rún spilaði á samtals 243 höggum (79 83 81) og varð T-36 í einstaklingskeppninni en Drake hafnaði í 5. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Diane Thomason Invitational SMELLIÐ HÉR: Næsta mót Sigurlaugar Rún og Drake verður 1. október í Omaha, Nebraska.
Bandaríska háskólagolfið: Arna Rún varð í 18. sæti á Annual Gilda´s Club Lakers Fall Inv.!
Arna Rún Kristjánsdóttir, GM og lið hennar í bandaríska háskólagolfinu, Grand Valley State University (GVSU) tóku þátt í 10th Annual Gilda´s Club Lakers Fall Invite. Mótið fór fram 29.-30. september 2018 í Meadows golfklúbbnum í Allandale, Michigan og voru þátttakendur 77 frá 13 háskólum. Arna Rún lék á samtals 17 yfir pari, 161 höggi (84 77) og landaði 18. sætinu í einstaklingskeppninni, en Arna Rún spilaði sem einstaklingur. Lið Örnu Rún, (GVSU), varð í 2. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á 10th Annual Gilda´s Club Lakers Fall Invite SMELLIÐ HÉR: Næsta mót GVSU verður 7. október n.k.
Ryder Cup 2018: Evrópa sigraði 17 1/2 – 10 1/2!!!
Lið Evrópu í Ryder bikars keppninni sigraði með 17 1/2 vinningi gegn 10 1/2 vinningi liðs Bandaríkjanna. Yfirburðirnir voru algerir, næstum allan tímann frá degi 1. Staðan var 10-6 fyrir úrslitaviðureignirnar 12 í tvímenningsleikjum dagsins í dag, sunnudagsins 30. september 2018, þar sem 12 stig voru í pottinum. Lið Evrópu þurfti 4 1/2 stig til þess að ná bikarnum aftur til Evrópu, en vann með miklum yfirburðum, tryggði sér 7 1/2 stig í dag. Tvímenningsleikir 3. dags keppninnar í dag, sunnudagsins 30. september 2018 fóru með eftirfarandi hætti: Justin Thomas vann Rory McIlroy 1 up – Staðan orðin 10 – 7 Evrópu í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Anna Einarsdóttir – 30. september 2018
Það er Anna Einarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Anna er fædd 30. september 1964 og á því 54 ára afmæli í dag. Anna er í Golfklúbbi Akureyrar. Sjá má eldra viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebooksíðu Önnu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Anna Einarsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Magnús M Norðdahl 30. september 1956 (62 ára); Kim Bauer, 30. september 1959 (59 ára); Nadine Handford, 30. september 1967 (51 árs) ástralskur kylfingur frá Adelaide (1993 T77 Alpine Aust Ladies); Ragnheiður Elín Árnadóttir, 30. september 1967 (51 árs); Lesa meira
Ryder Cup 2018: Evrópsku WAG´s-in
Það er auðvitað verið að sletta svolítið í fyrirsögn þessarar greinar, en með „Evrópsku WAGs-unum“ er átt við eiginkonur og kærustur keppenda í liði Evrópu á Ryder bikars mótinu. Og þær eru fallegur hópur en tekin var hópmynd af þeim fyrir keppnina. Þær voru allar með gulan borða í barminum til minningar og heiðurs spænska kylfingsins Celiu Barquin Arozamena, sem var myrt 22 ára á golfvelli við háskóla sem hún stundaði nám í, í Iowa. Leikmenn liðs Evrópu eru allir með samskonar borða i barminum til minningar Arozamena. Á hópmyndinni voru m.a. Erica Stoll, eiginkona Rory McIlroy sem stillti sér upp við hlið Emmu Lofgren, eiginkonu Henrik Stenson. (5. (Stoll) og Lesa meira
Guðrún Brá lauk keppni T-4 á Nøtterøy Open
Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, tók þátt í móti á sænsku mótaröðinni, Nøtterøy Open, sem fram fór dagana 27.-29. september 2018 í Noregi og lauk í gær. Guðrún Brá lék á samtals 1 undir pari, 215 höggum (72 70 73) og deildi 4. sætinu með 3 öðrum keppendum, My Leander frá Svíþjóð og þeim Celine Borge og Mariell Bruun frá Noregi (Sjá eldri kynningu Golf1.is á Borge með því að SMELLA HÉR Sigurvegari í mótinu varð sænska stúlkan Sarah Nilsson, sem lék á samtals 6 undir pari, 210 höggum (69 69 72) (Sjá eldri kynningu Golf1.is á Söruh Nilsson með því að SMELLA HÉR: ). Til þess að sjá lokastöðuna á Nøtterøy Open Lesa meira










