
Solheim Cup: Evrópa vann Bandaríkin 15:13
Það fór svo að Solheim bikarinn er kominn aftur til Evrópu, vannst í Killeen Castle, Dunsany í Meath héraði á Írlandi núna síðdegis í tvímenningsleikjunum tólf.
Eftir leiki gærdagsins var allt jafnt og í járnum 8:8. Evrópa fékk hins vegar 7 vinninga eftir hádegi í dag en Bandaríkin aðeins 5. Staðan 15:13 því staðreynd.
Niðurstöður í tvímenningsleikjum dagsins í dag voru eftirfarandi:
1. Hins skoska Catriona Matthews vann glæstan sigur 6&5 á einum erfiðasta andstæðingi Evrópu, Paulu Creamer, en Bleiki Pardusinn var búinn að standa sig ótrúlega vel í keppninni.
2. Hin ótrúlega Sophie Gustafsson vann Stacy Lewis í liði Bandaríkjanna með 2 up.
3. Hin bandaríska Morgan Pressel vann Önnu Nordqvist frá Svíþjóð 2&1.
4 .Allt var jafnt hjá gömlu kempunum Juli Inkster og Laura Davies.
5. Hin bandaríska Vicky Hurst vann Mel Reid frá Evrópu með 2 up.
6. Hin hollenska Christel Boeljon vann Brittany Lincicome með 2 up.
7. W-7 módelið þýska Sandra Gal tapaði stórt fyrir bandarísku stúlkunni Brittany Lang 6&5.
8. Bandaríski stuðboltinn Cristina Kim sigraði hina sænsku Maríu Hjorth 4&2
9 .Nr. 2 á Rolex-heimslista kvenna Suzann Pettersen vann Michelle Wie með minnsta mun.
10. Nýliðarnir Caroline Hedwall og Ryann O´Toole skildu jafnar.
11. Hin spænska Azahara Muñoz sigraði Angelu Stanford með minnsta mun.
12. Loks vann hin breska Karen Stupples, fyrrverandi nr. 1 í heimi, Cristie Kerr fremur auðveldlega 10&8.
Þetta er í 4. sinn af 12 skiptum, frá árinu 1990, sem Evrópa sigrar. Næsta Solheim Cup keppni fer fram í Colorado Golf Club 2013.
Sjá má myndasafn frá Solheim Cup 2011 HÉR:
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída
- janúar. 27. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Bryce Moulder og Mike Hill – 27. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Karine Icher —— 26. janúar 2021
- janúar. 26. 2021 | 07:30 PGA Championship fer fram í Southern Hills 2022 í stað Trump Bedminster
- janúar. 26. 2021 | 06:00 Þjálfarinn Claude Harmon III segir aðskilnaðinn við fv. nemanda sinn Brooks Koepka „hrikalegan“
- janúar. 25. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020
- janúar. 25. 2021 | 05:00 Hvað var í sigurpoka Kim?