
Afmælisbarn dagsins: St. Nikulás – 6. desember 2011
Í dag er haldið upp á St. Nikulásar-daginn víðs vegar í ríkjum kaþólskra, en St. Nikulás frá Myra er dýrlingur hjá kaþólskum. Dagurinn í dag er dánardægur St. Nikulás en hann dó árið 323, og gjöfuls anda hans minnst.
Margar sögur eru til um kraftaverk St. Nikulás. Ein sagan gengur út á að hann hafi safnað saman öllum verðmætum í strandbæ einum í Tyrklandi og fengið þau sjóræningjum, sem höfðu hneppt börn bæjarins í gíslingu. Sagan á að sýna að börnin eru dýrmætari en allar mannana eigur. Frægust er sagan af því þegar hann forðaðið 3 föngulegum stúlkum frá hórdómi og endurlífgaði 3 drengi sem vondur kjötiðnaðarmaður var búinn að myrða og setja í pækil. St. Nikulás forðaði fólki frá hungursneyð m.a. með því að útdeila hveiti meðal þess, sjófarendum sem skila áttu farminum til eigandans til mikillar áhyggna. Þær reyndust óþarfar því St. Nikulás fyrir tilstilli kraftaverks endurnýjaði birgðir þeirra og rúmlega það.
Í kvöld og næstu tvo daga setja krakkar í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu og víðar um Evrópu skóinn sinn út í gluggann því St. Nikulás gefur öllum börnum gjafir. Eins eru haldin jólaböll honum til dýrðar víðs vegar um Evrópu m.a. á Kuckuck í Köln, í Þýskalandi, þar sem Íslendingar búsettir í Þýskalandi hafa löngum komið saman, 6. desember.
St. Nikulás er fyrirmynd bandaríska jólasveinsins, þess rauðklædda með hvíta skeggið og nafn hans á ensku dregið af þessum dásamlega dýrlingi: St Nikulás, á hollensku: Sinter Claes og loks ensku: Santa Claus.
Óvíst er að St. Nikulás hafi verið kylfingur, en í ljósi þess að hann gerði mörg kraftaverk er næsta víst að hann hefði spilað hring sem scratchari hefðu golfvellirnir í Belek í í Tyrklandi verið komnir á þeim tíma, sem hann var uppi. Og hver veit nema hann hafi haft hönd í bagga með að þeir voru byggðir; St. Nikulás vildi mönnum nefnilega vel og er sérlegur dýrlingur barna og sjómanna, þeirra sem eru með órétti sakaðir um verknaði sem þeir hafa ekki gert, sem og ýmissa annarra.
Afmæliskylfingar dagsins eru: Ásgeir Eiríksson, 6. desember 1947 (64 ára); Arna Garðarsdóttir, 6. desember 1962; Þórir Bergsson, 6. desember 1963 (48 ára); Guðmundur Pétursson, 6. desember Pétur Blöndal, 6. desember 1971 (40 ára); Beth Allen, 6. desember 1981 (bandarísk, spilar á LET); Frederico Colombo, 6. desember 1987 (góður vinur Molinari-bræðranna ítölsku)
- mars. 21. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Stewart Cink ——– 21. mars 2023
- mars. 21. 2023 | 15:00 Next Golf Tour: Sigurður Arnar sigraði á Adare Manor!!!
- mars. 20. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Arjun Atwal ——– 20. mars 2023
- mars. 20. 2023 | 08:45 Champions: Ernie Els sigraði á Hoag Classic
- mars. 20. 2023 | 08:00 LIV: Danny Lee sigraði í LIV Golf – Tucson
- mars. 19. 2023 | 22:30 PGA: Taylor Moore sigraði á Valspar
- mars. 19. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2023
- mars. 19. 2023 | 14:00 PGA: Adam Schenk leiðir f. lokahring Valspar m/Fleetwood og Spieth á hælunum
- mars. 18. 2023 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (11/2023)
- mars. 18. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Bragi Brynjarsson og Marousa Polias – 18. mars 2023
- mars. 18. 2023 | 15:00 LET: Pauline Roussin-Bouchard sigraði í einstaklingskeppni Aramco Team Series – Singapore
- mars. 17. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2023
- mars. 16. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Vincent Tshabalala og Guðný Ævarsdóttir – 16. mars 2023
- mars. 15. 2023 | 18:00 Evróputúrinn: Jorge Campillo sigraði á Magical Kenya Open
- mars. 15. 2023 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Arnarson –—- 15. mars 2023