Kylfingurinn David Toms í nærmynd
David Toms leiðir eftir 1. hring á Humana Classic mótinu, sem fram fer nú um helgina 19.-22. janúar 2012 á PGA West, í La Quinta í Kaliforniu. En hver er kylfingurinn? David Wayne Toms fæddist 4. janúar 1967 í Monroe, í Ouachita, í Louisiana og er því nýrorðinn 45 ára. Í dag er hann í 31. sæti á heimslistanum yfir bestu kylfinga heims, en var í 175 vikur meðal topp 10 á árunum 2001-2006 og náði m.a. hæst að komast í 5. sæti listans, árin 2002 og 2003. Toms býr í Shreveport, Caddo Parish, í norðvesturhluta Louisiana. David er sonur Thomas E. „Buster“ Toms (f. 1946) frá Minden, Webster Parish, í Lesa meira
PGA: Myndskeið af hápunktum 1. dags – Camilo Villegas og David Toms leiða eftir 1. hring Humana Challenge
Í nótt var spilaður 1. hringur á Humana Challege, en einn helsti styrktaraðili mótsins er Bill Clinton fv.Bandaríkjaforseti. Mótið hét áður Bob Hope Classic og fer fram á PGA West í La Quinta í Kaliforníu. Eftir 1. hring eru það Camilo Villegas frá Kólombíu og Bandaríkjamaðurinn David Toms, sem leiða. Báðir spiluðu 1. hring á -9 undir pari, þ.e. 63 höggum. Camilo Villegas spilaði skollafrítt golf var með 9 fugla og rétt missti pútt fyrir 10. fuglinum á 18. holu. Sömu sögu er að segja af David Toms, sem líka var skollafrír með 9 fugla, fékk 4 í röð á fyrri 9 (á 5.-8. holu) og síðan 5 fugla á Lesa meira
GKJ: Kristján Þór Einarsson íþróttamaður Mosfellsbæjar… í 3.sinn – Glæsilegt!
Í gærkvöldi, fimmtudaginn 19. janúar 2012. kl. 20 var haldið hóf í Íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem lýst var kjöri íþróttakarls- og konu Mosfellsbæjar árið 2011. Kristján Þór Einasson, GKJ, sem er við nám í sálfræði við Nicholls State í Louisiana og leikur með liði skólans í bandaríska háskólagolfinu hlaut heiðurstitilinn í 3. sinn. Áður hefur hann hlotið titilinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2008 og 2009. Faðir Kristjáns, Einar Páll Einarsson, tók við viðurkenningunni fyrir hönd sonar síns (sjá mynd hér að neðan). Innilega til hamingju, Kristján Þór, með titilinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2011! Af hálfu GKJ var Heiða Guðnadóttir, afrekskylfingur í GKJ, einnig tilnefnd til titilsins íþróttakona Mosfellsbæjar, en hún hlaut hann Lesa meira
Viðtalið: Sunna Víðisdóttir, GR, efnilegasti kylfingur Íslands 2011.
Viðtalið í kvöld er við Sunnu Víðisdóttur, GR, en hún ásamt Bjarka Péturssyni, GB, eru efnilegustu kylfingar Íslands 2011. Sunna var ein 4 kylfinga (áamt Bjarka, GB, Ragnari Má, GKG og Guðrúnu Brá, GK) til að taka þátt í European Young Masters, sem haldið var í Royal Balaton Golf Club, Balatonudvari, Ungverjalandi dagana 22.-24. júlí 2010. Sunna varð m.a. Íslandsmeistari með kvennasveit GR í sveitakeppni GSÍ og tók í kjölfarið þátt í Evrópumóti klúbba (European Ladies Club Trophy) í Grikklandi s.l. haust. Eins sigraði Sunna á síðasta móti Eimskipsmótaraðarinnar á Urriðavelli 2011, Chevrolet mótinu á samtals 217 höggum (74 70 73). Nú í haust hlaut Sunna háttvísibikar GR og nú nýverið var Lesa meira
EPD: Stefán Már og Þórður Rafn luku ekki 1. hring vegna frosts í Tyrklandi
Stefán Már Stefánsson, GR og Þórður Rafn Gissurarson, GR spiluðu nú í dag 1. hring á Gloria New Course Classic mótinu á EDP-mótaröðinni þýsku, en það fer fram í í Belek, í Tyrklandi. Miklar tafir urðu í morgun vegna frosts og náðu hvorki Stefán Már né Þórður Rafn að ljúka hringjum sínum Stefán Már náði að spila 4 holur og er á pari Þórður Rafn, hins vegar, er búinn að spila 7 holur og er á +1 yfir pari. Golf 1 óskar þeim Stefáni Má og Þórði Rafni góðs gengis á morgun. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. hring á Gloria mótinu smellið HÉR:
GK: Viðhorfskönnun meðal félagsmanna Golfklúbbsins Keilis
Í tengslum við aðalfund Keilis var ákveðið að setja í gang viðhorfskönnun á meðal félagsmanna Keilis. Spurt var út í ýmislegt sem kemur að starfi golfklúbbsins og tóku fjölmargir, sem skráðir eru á netfangalista klúbbsins, þátt. Í könnuninni kom ýmislegt fróðlegt í ljós t.d. að flestir (53%) skrá sig á rástíma eftir hentugleik en einnig er um 1/3 þátttakenda (30 %) könnunarinnar sem spila í föstum spilahópum. Stórt hlutfall (17%) eru með forgjöf undir 10 en flestir með forgjöf á bilinu 10-20 (46%). Um 72% félagsmanna spila Hvaleyrina oftar en 2 í viku, almenn ánægja er með starfsfólk, veitingasölu og aðkomu að velinum o.fl. o.fl. kom fram. Til þess að Lesa meira
Evróputúrinn: Nicholas Colsaerts efstur á Volvo Golf Champions – Spilaði á 64 höggum!
Það er ekki á hverjum degi sem Belgar eiga kylfing í efsta sæti golfmóta. Svo er þó staðan í augnablikinu, en belgíski kylfingurinn Nicholas Colsaerts er að gera góða hluti á Volvo Golf Champions, sem hófst í dag í Suður-Afríku. Colsaerts fékk 3 fugla og 1 skolla á fyrri 9 og á seinni 9 fékk hann 7 fugla. Samtals gerir þetta 10 fugla og 1 skolla þ.e. -9 undir pari, 64 högg á par-73 Fancourt linksaranum, þar sem mótið fer fram. Það verður að teljast ólíklegt að nokkur hinna 34 þátttakenda í mótinu nái að jafna frábært skor Belgans í dag. Til þess að sjá stöðuna á 1. degi Volvo Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Elías Björgvin Sigurðsson – 19. janúar 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Elías Björgvin Sigurðsson, GKG. Hann fæddist 19. janúar 1997 og er því 15 ára í dag. Elías Björgvin sigraði m.a. í golfmóti ULM í flokki 11-13 ára stráka á Unglingalandsmóti UMFÍ, fyrir 2 árum, 2010. Hann stóð sig líka vel í ýmsum opnum mótum það ár á móti sér mun eldri mönnum, náði t.a.m. 5. sætinu á HK Open, en spilað var í Leirdalnum. S.l. sumar stóð Elías Björgvin sig m.a. vel í Unglingamótaröð GKG. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum innilega til hamingju með afmælið í dag! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Mary Mills 19. janúar 1940 (72 ára); Adele Peterson, 19. janúar Lesa meira
Golfútbúnaður: Cleveland Classic dræver
Cleveland Classic dræverinn, en hugmynd að honum má rekja til persimmontrjá drævera, er sameinar stíl og góða frammistöðu í einum og sama títaníum drævernum. Með einstaka hönnun á sóla og litaval sem á rætur að rekja til drævera horfinna daga þá er Classic dræverinn með dýpsta og stærsta kylfuandlit sem framleitt hefir verið af hálfu Cleveland til dagsins í dag. Hefðbundni perulaga prófíllinn sem sameinaður er MaxCOR2 tæknis kylfuandlitinu veitir hámarks lengd þegar ekki er hitt í miðju kylfunnar. Ultralite tækni Cleveland hjálpar kylfingnum að ná aukinni lengd og kylfuhausshraða með sama sveifluátakinu. Cleveland Classic dræverinn kemur í 3 mismunandi tegundum þökk sé Right Weight fitting hjá Cleveland. Sérhvert módel Lesa meira
Sandra Gal er „heitari“ en Rickie Fowler
Þýska W-7 módelið og leikmaður LPGA, Sandra Gal, sigraði í keppni Golf Digest um „heitasta kylfinginn“ (ens.: „Hottest Golfer“). Valið stóð að lokum milli hennar og PGA kylfingsins Rickie Fowler og hafði Sandra betur með 99,61% atkvæði. Þeir sem héldu með Rickie og voru tapsárir töldu einfaldlega að þau 80.000 atkvæði sem Sandra hlaut hefðu að meginstefnu verið því að þakka því að fleiri karlar en konur kusu. Sandra var að vonum ánægð með kjörið. Hún skrifaði á Twitter: „Þetta var fallegt skjall. Stórt TAKK til ykkar allra kjósendur Golf Digest. En heit eða ekki þá verð ég samt að hitta kúluna:)“ Sem auðvitað hljómar mun betur á ensku:






