GKJ: Kristján Þór Einarsson íþróttamaður Mosfellsbæjar… í 3.sinn – Glæsilegt!
Í gærkvöldi, fimmtudaginn 19. janúar 2012. kl. 20 var haldið hóf í Íþróttamiðstöðinni að Varmá þar sem lýst var kjöri íþróttakarls- og konu Mosfellsbæjar árið 2011. Kristján Þór Einasson, GKJ, sem er við nám í sálfræði við Nicholls State í Louisiana og leikur með liði skólans í bandaríska háskólagolfinu hlaut heiðurstitilinn í 3. sinn. Áður hefur hann hlotið titilinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2008 og 2009. Faðir Kristjáns, Einar Páll Einarsson, tók við viðurkenningunni fyrir hönd sonar síns (sjá mynd hér að neðan).
Innilega til hamingju, Kristján Þór, með titilinn Íþróttamaður Mosfellsbæjar 2011!

Ingvi Rúnar Gíslason, golfkennari GKJ (t.v.) og faðir Kristjáns Þórs, Einar Páll Einarsson (t.h.) taka á móti viðurkenningunum. Mynd: Af myndasíðu GKJ
Af hálfu GKJ var Heiða Guðnadóttir, afrekskylfingur í GKJ, einnig tilnefnd til titilsins íþróttakona Mosfellsbæjar, en hún hlaut hann ekki að þessu sinni.
Við sama tilefni var þeim einstaklingum sem hafa orðið Íslands- deildar-, bikar- eða landsmótsmeistarar 2011 veittar viðurkenningar ásamt þeim sem hafa tekið þátt í og/eða æft með landsliði á liðnu ári.
Þá fengu efnilegustu kylfingarnir 16 ára og yngri einnig viðurkenningu í gær og þar voru þau Jason Nói Arnarsson og Kristín Sól Guðmundsdóttir talin efnilegust hjá Golfklúbbnum Kili (sjá mynd hér að neðan):
- apríl. 16. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Ingi Rúnar Birgisson – 16. apríl 2021
- apríl. 16. 2021 | 10:00 Tiger fjarlægði golfvöll
- apríl. 7. 2021 | 10:00 Valdís Þóra segir skilið við atvinnumennskuna í golfi
- febrúar. 23. 2021 | 22:00 Tiger lenti í bílslysi í Genesis GV80
- febrúar. 2. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Jenny Sigurðardóttir – 2. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 18:00 PGA: Reed sigraði á Farmers Insurance Open
- febrúar. 1. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Kristín Þorvarðardóttir – 1. febrúar 2021
- febrúar. 1. 2021 | 08:00 Evróputúrinn: Casey sigraði á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 31. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Justin Timberlake – 31. janúar 2021
- janúar. 30. 2021 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (5/2021)
- janúar. 30. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Payne Stewart ——- 30. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Snær Loftsson – 29. janúar 2021
- janúar. 29. 2021 | 14:45 Evróputúrinn: Detry leiðir í hálfleik á Omega Dubai Desert Classic
- janúar. 28. 2021 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Þórður Sigurel Arnfinnsson – 28. janúar 2021
- janúar. 28. 2021 | 12:00 Greg Norman selur „húsið“ sitt í Flórída