Áskorendamótaröðin (1) á Nesvelli hjá NK – 19. maí 2012
GKG: Örn Bergmann Úlfarsson sigraði á Atlantsolía Open – myndasería
Í dag fór fram á Leirdalsvelli Opna Atlantsolíumótið. Þetta er fjórða árið sem þetta glæsilega móti er haldið en leikfyrirkomulagið er punktamót með forgjöf. Hámarksforgjöf var 24 hjá körlum og 36 hjá konum. Þátttakendur voru 163 og 148 luku keppni. Sjá má myndaseríu úr mótinu með því að smella hér: ATLANTSOLÍA OPEN 19. MAÍ 2012 Skemmtilegt dýralífið á íslenskum golfvöllum og Leirdalsvöllur engin undantekning en m.a. náðust myndir af rjúpu og íslenska hestinum í þessari myndatöku af mótinu. Eins var skemmtilegt að þegar ljósmyndara Golf 1 bar að 14. braut Leirdalsvallar voru þar að leik þeir Steingrímur Hjörtur Haraldsson og Sigurður Óli Sumarliðason, báðir í GR, sem báðir fengu örn á Lesa meira
Atlantsolía Open hjá GKG – 19. maí 2012
Mesta eftirsjá stórkylfinga: (4. grein af 20) Gary Player
Suður-afríska golfgoðsögnin Gary Player er e.t.v. sá kylfingur sem ferðast hefir mest allra af samtímamönnum sínum þ.e. þeim sem eru/voru atvinnukylfingar. Hann hefir sigrað í 165 mótum á 6 áratugum í 6 heimsálfum. Skyldi hann sjá eftir einhverju á löngum ferli sínum? Gefum Gary Player orðið: „Ég myndi hafa viljað lifa lífi þar sem ég hefði getað varið meiri tíma með börnum mínum og barnabörnum. Ég hef lifað mestallt líf mitt á ferðalagi um heiminn. Líf atvinnukylfings – sértaklega raunverulegs alþjóða kylfings fellur ekki sérlega vel að fjölskyldulífi. Maður er í raun hálfgerður tatari á stöðugu flakki. Það er nokkur eftirsjá bundin því, en ég er ekki viss um að Lesa meira
GOS: Hlynur Geir og Axel Óli sigruðu á Vormóti Golfklúbbs Selfoss
Í dag fór fram Vomót Golfklúbbs Selfoss. Leikfyrirkomulag var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöf. Veitt voru 1 verðlaun fyrir besta skor og verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppninni. Þátttakendur voru 42. Helstu úrslit voru þau að framskvæmdastjórinn, golfkennarinn vinsæli og dómari mótsins Hlynur Geir Hjartarson vann höggleikinn á glæsilegum 73 höggum. Punktakeppnina vann hins vegar Axel Óli Ægisson á ekki síður glæsilegum 41 punkti. Helstu úrslit að öðru leyti voru eftirfarandi: Höggleikur án forgjafar: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 Alls Mismunur 1 Hlynur Geir Hjartarson GOS -3 F 37 36 73 3 73 73 3 2 Bergur Lesa meira
Fyrstu mót Unglingamótaraða Arion banka hófust í dag – 19. maí 2012
Fyrstu mót á Unglingamótaröðum Arion banka hófust í dag 19. maí 2012. Arion banki styrkir mótaraðirnar með rausnarlegum hætti. Á Nesvelli fer fram 1. mót í Áskorendamótaröðinni og eru 105 krakkar og unglingar skráðir í mótið. Á Garðavelli hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi fer fram 1. mót í Unglingamótaröð Arion banka og er það tveggja daga, sem venja er. Fyrri mótsdagur er í dag, laugardaginn 19. maí 2012 og sá síðari á morgun sunnudaginn 20. maí. Þátttakendur eru 135. Golf 1 verður að sjálfsögðu á staðnum og með myndaseríur frá báðum mótum, í dag frá Áskorendamótaröðinni og á morgun frá Unglingamótaröð Arion banka.
Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Ingjaldur Valdimarsson. Ingjaldur er fæddur 19. maí 1961 og því 51 árs í dag. Ingjaldur er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér: Ingjaldur Gjalli Valdimarsson (51 árs) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Michael Dean Standly 19. maí 1964 (48 ára); KJ Choi 19. maí 1970 (42 ára); Brynja Þórhallsdóttir, GK, 19. maí 1970 ….. og …….. Vilborg Ingvaldsdottir (61 ára) Áslaug Birna Bergsveinsdóttir (17 ára) Fatasíða Á Akureyri Kærleikskrásir Og Kruðerí Flúðum (18 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að Lesa meira
Evróputúrinn: Alvaro Quiros kom í veg fyrir að Ian Poulter verði titil sinn í Volvo holukeppninni
Það var Spánverjinn Alvaro Quiros sem vann IanPoulter í 16 manna undanúrslitum í Volvo World Match Play Championship, sem fram fer í Finca Cortesin á Cascares í Andaluciu. Þar með kom hann í veg fyrir að Englendingurinn (Ian Poulter) næði að verja titil sinn, en hann vann mótið í fyrra. Þegar þetta er skrifað (kl. 14:45) liggja úrslitin í 16 manna úrslitunum fyrir og 8 manna undanúrslitin eru þegar hafin og 1 leik lokið. Þar er það Skotinn Paul Lawrie sem hafði algera yfirburði yfir gömlu kempuna Retief Goosen; vann leik þeirra 6 & 5. Annars má sjá úrslit í 16 manna undanúrslitunum hér (og stöðuna í fjórðungsúrslitunum kl. 14:45): Lesa meira
PGA: Jason Dufner leiðir þegar HP Byron Nelson mótið er hálfnað – hápunktar og högg 2. dags
Það er Flórídabúinn Jason Dufner sem leiðir þegar HP Byron Nelson Championship er hálfnað á TPC Four Seasons golfvellinum í Irving, Texas. Dufner er samtals búinn að spila á -7 undir pari, samtals 133 höggum (67 66). Öðru sætinu deila 6 kylfingar þ.á.m. Matt Kuchar, sigurvegari The Players, en allir eru þessir 6 kylfingar (auk Kuch, Pat Perez, Dicky Pride, Ryan Palmer, Chad Campbell og Ástralinn Marc Leishman) búnir að spila á -6 undir pari og eru því aðeins 1 höggi á eftir Dufner, algerlega á hælunum á honum. Þrír kylfingar deila 8. sætinu: Bandaríkjamennirnir Keegan Bradley og Charley Hoffman og Japaninn Ryuji Imada, allir á -5 undir pari. Til Lesa meira
GHR: Óskar Pálsson formaður GHR fór holu í höggi
Óskar Pálsson formaður GHR fór holu í höggi þann 16. maí s.l. á 13. holu á Strandarvelli í M-móti, sem er innanfélagsmót. Óskar notaði 9 járn en brautin er 128 metra að lengd. Þetta er í annað sinn sem Óskar fer holu í höggi, en síðast afrekaði hann ás árið 1992, þ.e. fyrir 20 árum. Þá fór Óskar holu í höggi á 9. holu, sem er 11. hola í dag. Golf 1 óskar formanni GHR, Óskari Pálssyni, innilega til hamingju með draumahöggið!!!







