Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 13:00

GVG: Sáð og sandað á Bárarvelli

Á heimasíðu Golfklúbbsins Vestarrs mátti lesa eftirfarandi frétt: „Í gær þriðjudaginn 20. maí var farið í að sá í og sanda flatirnar. Gekk þetta mjög vel fyrir sig en áður var búið að skera í flatirnar með sérstöku tæki sem fengið var frá Akranesi. Einnig var sérstakur bíll sem notaður er við söndun fenginn frá félögum okkar í Mostra (í Stykkishólmi). Þá mætti formaður vallarnefndar á traktorsgröfu sem Friðrik Tryggva lánaði ásamt Ásgeiri Ragnarssyni sem mætti á lyftara og færði sandkörin upp á völl. Eru öllum þessum aðilum færðar miklar þakkir fyrir þessa aðstoð. Í dag miðvikudaginn 21.maí er vinnudagur sem hefst kl. 17:00.“

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 12:00

Lindsey spilaði golf í góðgerðarmóti Tiger

Tiger Woods er alveg frá í bakinu og er rétt farinn að brölta á fætur aftur og láta sjá sig opinberlega. Og meðan hann spilar ekki golf…. tekur kærastan, Lindsey Vonn, það hlutverk að sér og hlýtur mikla athygli fyrir. S.l. helgi voru Lindsey Vonn og systir hennar Karin Kildow í Las Vegas og tóku þátt í Tiger Jam helginni. Reyndar er ekki um 1 helgi að ræða heldur mörg mót og viðburði. Þær Lindsey og Karin vöktu mikla athygli sérstaklega þegar þær lágu í sólbaði við hótelið sem þær gistu á. Tiger lét sjá sig á póker kvöldi sem hann stóð fyrir en til þess að vera með þurfti Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 11:30

Rúnar mun spila í bandaríska háskólagolfinu

Á heimasíðu Golfklúbbsins Keilis (GK)  má finna eftirfarandi frétt: „Nýverið skrifaði Rúnar Arnórsson, einn af okkar afrekskylfingum, undir samning við háskóla í Bandaríkjunum. Eftir gott sumar í fyrra tók Rúnar stefnuna á háskólagolfið sem leiddi til þess að hann komst í samband við einn af stærstu háskólum í Bandríkjunum, University of Minnesota. Þó svo að skólinn sé staddur í Norðurríkjum Bandaríkjanna varð liðið landsmeistari árið 2002. Skólinn spilar í fyrstu deild og hefur verið í kringum 70. sæti á styrkleikalista.“ Það verður gaman að fylgjast með Rúnari í bandaríska háskólagolfinu!!!

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 11:00

Viðtalið: Sigríður Birgisdóttir, GOS

Viðtalið í kvöld er við nýliða í golfi, konu sem nýlega er gengin er í Golfklúbb Selfoss (GOS), en hún segir GOS vera einstaklega nýliðavænan klúbb, þar sem henni og þeim sem voru að byrja í golfíþróttinni var boðinn afsláttur af félagsgjöldum og 14 kennslustundir hjá frábærum golfkennara. Hér fer viðtalið : Fullt nafn:   Sigríður Birgisdóttir. Klúbbur:   GOS Hvar og hvenær fæddistu?    Í Stokkhólmi, 1. apríl 1960. Hvar ertu alin upp?    Í þorpinu í Mývatnssveit en pabbi var framkvæmdarstjóri Kísiliðjunnar. Í hvaða starfi/námi ertu?  Ég er hús-og sundlaugarvörður. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf?    Það er fullt af frændfólki sem spilar golf, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 08:40

Rory og Caroline hætt saman

Sambandi Rory og kærustu hans Caroline Wozniacki er lokið. Rory tilkynnti um slit trúlofunarinnar í gegnum umboðsskrifstofu sína,  eftir samtal við Caroline. Í tilkynningunni sagði: „Það er engin rétt leið til að ljúka sambandi sem hefir verið tveimur manneskjum svo mikilvægt.“ „Þetta er mér að kenna. Þegar farið var að senda út boðskort í brúðkaup okkar nú um helgina gerði ég mér grein fyrir að ég var ekki tilbúinn í það sem gifting hefir í för með sér.“ „Ég óska Caroline allrar þeirrar hamingju sem hún á skilið og þakka henni fyrir þær frábæru stundir, sem við höfum átt saman.“ „Ég mun ekki tjá mig meira um samband okkar í neinum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 07:15

Dubuisson ekki með í Wentworth

Franski kylfingurinn Victor Dubuisson hefir dregið sig úr flaggskipsmóti Evrópumótaraðarinnar, BMW PGA Championship, sem hefst á morgun á Wentworth vegna axlarmeiðsla, sem hafa verið að hrjá hann. Dubuisson, sem er nr. 23 á heimslistanum, hefir þjáðst af sinabólgu og ætlar að hvíla öxlina.  Landi hans Gary Stal, tekur sæti hans í mótinu. Dubuisson, sem er í 6. sæti á Race To Dubai listanum og þykir líklegur til þess að komast í Ryder bikars lið Evrópu hefir ekkert spilað frá því hann dró sig úr Indonesian Masters í síðasta mánuði. Dubuisson er vongóður um að snúa aftur til æfinga seinna í vikunni og svo gæti farið að hann geti verið með Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 07:00

GR: Opna TaylorMade mótið fer fram í fyrsta sinn á Ánni/Landinu

Fyrsta opna mót sumarsins hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, Opna TaylorMade/Adidas mótið verður haldið á Korpúlfsstaðavelli fimmtudaginn 29. maí sem er Uppstigningardagur. Sá hluti vallarins sem leikinn verður er Áin/ Landið. Er þetta í fyrsta sinn í sem opið mót fer fram á þessum hluta vallarins. Ræst er út frá kl.8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er höggleikur og punktakeppni. Hámarksforgjöf er gefin 18 hjá körlum og 24 hjá konum. Kylfingar sem eru með 4,4 og lægra spila á hvítum teigum í höggleik. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í höggleik og fyrir besta skor kvenna. Nándarverðlaun eru veitt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 21. 2014 | 05:00

Li 11 ára yngst til að spila á US Women´s Open

Lucy Li, 11 ára, mun keppa á risamótinu US Women´s Open í næsta mánuði en hún er sú yngsta til þess að komast í gegnum úrtökumót fyrir US Women´s Opne risamótið. Hún tók þátt  í úrtökumóti  á Half Moon Bay’s Old golfvellinum og átti þar hringi upp á 74 og 68 og 7 högg á næstu keppendur. Li  slær  eldra aldursmet, sem Lexi Thompson átti fyrir að vera yngst til þess að hjóta keppnisrétt í US Women´s Open risamótinu, en í ár fer það fram á Pinehurst í Norður-Karólínu. Li er undrabarn í golfinu. Hún vann t.a.m í sínum aldursflokki í Drive, Chip and Putt Championship í Augusta, en það mót var Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2014 | 23:00

Jack Nicklaus veitt gullorða Bandaríkjaþings

Fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær með 371 atkvæði gegn 10 atkvæðum að veita golfgoðsögninni Jack Nicklaus, gullorðu (ens. Congressional Gold Medal) Bandaríkjaþings. Áður hefir þingið veitt Arnold Palmer gullorðuna Sjá frétt Golf1 þar um með því að SMELLA HÉR:   Þessi heiðursviðurkenning er veitt Nicklaus „til viðurkenningar á störfum hans fyrir (bandarísku) þjóðina og fyrir að stuðla að afburðargæðum og íþróttamannlegri framkomu  í golfíþróttinni.“ Gullorða Bandaríkjaþings er æðsta viðurkenning sem veitt til í þakklætisskyni fyrir frægðarafrek og framlög (til þjóðarinnar) Jack Nicklaus er 71 árs, kvæntur eiginkonu sinni Barböru (síðan 1960 þ.e. í 54 ár) og á með henni 5 börn:   Gary Nicklaus, Nancy Nicklaus, Jack Nicklaus Jr., Michael Nicklaus, Steven Nicklaus Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2014 | 18:00

Afmæliskylfingar dagsins: Anna Sólveig Snorradóttir og Geir Jónsson – 20. maí 2014

Það eru Anna Sólveig Snorradóttir, GK, og Geir Jónsson sem eru afmæliskylfingar dagsins. Anna Sólveig er fædd 20. maí 1995 og því 19 ára í dag. Hún er núverandi Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni stúlkna. Anna Sólveig byrjaði að æfa golf 9 ára, en prufaði fyrst þegar hún var 8 ára. Í dag er Anna Sólveig í afrekshóp GSÍ. Hún tók þátt í Opna írska U-18 ára mótinu í apríl 2012 og stóð sig mjög vel, náði 2. besta árangri íslensku þátttakendanna. Anna Sólveig Snorradóttir, GK. Mynd: Dalli Árið 2012 spilaði Anna Sólveig bæði á Unglingamótaröð Arion banka og Eimskipsmótaröðinni. Þar er eftirminnilegt þegar Anna Sólveig landaði 2. sætinu á Íslandsmótinu í Lesa meira