
Afmæliskylfingar dagsins: Anna Sólveig Snorradóttir og Geir Jónsson – 20. maí 2014
Það eru Anna Sólveig Snorradóttir, GK, og Geir Jónsson sem eru afmæliskylfingar dagsins.
Anna Sólveig er fædd 20. maí 1995 og því 19 ára í dag. Hún er núverandi Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni stúlkna. Anna Sólveig byrjaði að æfa golf 9 ára, en prufaði fyrst þegar hún var 8 ára. Í dag er Anna Sólveig í afrekshóp GSÍ. Hún tók þátt í Opna írska U-18 ára mótinu í apríl 2012 og stóð sig mjög vel, náði 2. besta árangri íslensku þátttakendanna.
Anna Sólveig Snorradóttir, GK. Mynd: Dalli
Árið 2012 spilaði Anna Sólveig bæði á Unglingamótaröð Arion banka og Eimskipsmótaröðinni. Þar er eftirminnilegt þegar Anna Sólveig landaði 2. sætinu á Íslandsmótinu í höggleik á Hellu á Eimskipsmótaröðinni og eins var hún í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 2012, en þar laut hún í lægra haldi fyrir klúbbfélaga sínum Signýju Arnórsdóttur, GK. Hér má sjá viðtal Golf 1 við Önnu Sólveigu eftir árangurinn glæsilega á Íslandsmótinu í holukeppni 2012 SMELLIÐ HÉR: En Anna Sólveig hafnaði einnig í 4. sæti af konunum á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar í Leirunni 2012.
Anna Sólveig á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar í
Leirunni 2012. Mynd: Golf 1
Eins gekk Önnu vel á Unglingamótaröðinni: á fyrsta mótinu upp á Skaga varð Anna t.a.m. í 2. sæti.

Anna Sólveig Snorradóttir slær upphafshögg sitt á 1. móti Unglingamóta-raðar Arion Banka upp á Skag 2012, þar sem hún varð í 2. sæti. Mynd: Golf 1
Anna Sólveig varð síðan í 3. sæti á 2. móti Unglingamótaraðarinnar á Þverárvelli og eins á 3. mótinu í Korpunni (þ.e. í 3. sæti). Svo varð Anna í 2. sæti á Íslandsmótinu í höggleiki í stúlknaflokki í Kiðjaberginu og sigraði á síðasta móti Unglingamótaraðarinnar á Urriðavelli.
Anna Sólveig tók þátt í ýmsum mótum erlendis 2012. Hún var t.a.m. í íslenska stúlknalandsliðinu ásamt Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, GK og Sunnu Víðisdóttur, GR sem keppti í European Girls Team Championship í Þýskalandi en þar urðu stúlkurnar Evrópumeistarar í Shoot-out.
Anna Sólveig varð síðan Íslandsmeistari með A-sveit Keilis í sveitakeppni GSÍ í stúlknaflokki seint á árinu 2012:

Íslandsmeistarar í A-sveit Keilis í sveitakeppni GSÍ 2012 í stúlknaflokki. F.v.: Anna Sólveig Snorradóttir, Högna Kristbjörg Knútsdóttir, Sara Margrét Hinriksdóttir og liggjandi fyrir framan Saga Ísafold Arnarsdóttir. Mynd: Helga Laufey Guðmundsdóttir
Síðan var Anna Sólveig valinn efnilegasti kylfingurinn í lokahófi GSÍ 2012:
Efnilegasti kylfingurinn 2012 Mynd: gsimyndir.net
Í fyrra, 2013, lék Anna Sólveig, sem fyrr á Unglingamótaröðinni, sem og á Eimskipsmótaröðinni.
Eins tók hún, sem fyrr þátt í mörgum mótum erlendis t.a.m. aftur á Irish Girls Open í Roganstown á Írlandi 20.-21. apríl 2013, þar sem hún stóð sig best af íslensku keppendunum, landaði 14. sætinu!!!
Anna Sólveig sigraði í 1. móti sínu á Eimskipsmótaröðinni í fyrra, þ.e. Securitas mótinu úti í Vestmannaeyjum, sem fram fór 7.-9. júní 2013! Sjá má viðtal Golf 1 við Önnu Sólveigu með því að SMELLA HÉR:

Haraldur Franklín og Anna Sólveig sigurvegarar á 2. móti Eimskipsmótaraðarinnar í Vestmannaeyjum 2014 – Securitasmótinu. Mynd: gsimyndir.net
Strax í vikunni þar á eftir varð Anna Sólveig Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna á Leirdalsvelli þ.e. 15. júní 2013:

Anna Sólveig Snorradóttir, GK, Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki 17-18 ára – 15. júní 2013 á Leirdalsvelli. Mynd: Golf 1
Meðal þess eftirminnilegasta árið 2013 er að Anna Sólveig tók þátt í EM kvenna í júlí 2014.
Þann 9. júlí 2013 og fékk ás á EM kvenna.
Anna Sólveig er einnig núverandi Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára stúlkna í höggleik, en þann titil vann hún í Leirunni 11. ágúst 2013.

Íslandsmeistarar í höggleik í flokki 17-18 ára 2013 – Isak Jasonarson, GK og Anna Sólveig Snorradóttir, GK. Mynd: golf.is
Dagana 10.-12. 2013 september tók Anna Sólveig síðan þátt í Duke of York mótinu.
Það verður spennandi að fylgjast með Önnu Sólveigu í sumar á Eimskipsmótaröðinni, en hún er meðal keppenda á fyrsta móti ársins, sem fram fer í Leirunni 24. maí 2014.
Komast má á facebook síðu Önnu Sólveigar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér fyrir neðan:

- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024