Ragnheiður Jónsdóttir | október. 19. 2012 | 07:00

Smriti Mehra leiðir á Ladies Indonesian Open

Indverski kylfingurinn Smriti Mehra er í fyrsta sæti eftir 1. dag Ladies Indonesia Open, lék á 3 undir pari vallar, 69 höggum. Verðlaunafé í mótinu er $200.000. Neha Tripathi (75) er T-26, Vani Kapoor (76) er í 35. sæti og Saaniya Sharma (78) var T-49 í  Palm Hill Golf Club á 9. móti þessa árs á Ladies Asian Golf Tour (LAGT). Allt eru þær indverskir kylfingar. Þátttakendur í  The Ladies Indonesia Open eru  84 . Mótið er 54 hola og enginn niðurskurður. Þetta er það mót þar sem verðlaunafé er hvað hæst í Suðaustur-Asíu en vinningshafinn hlýtur verðlaunatékka upp á $ 30.000 (u.þ.b. 3.6 milljónir íslenskra króna). Thidapa Suwannapura og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 23:45

PGA: Bud Cauley og Marco Dawson leiða á McGladreys – hápunktar 1.dags

Það eru Bud Cauley og Marco Dawson, sem leiða eftir 1. dag The McGladreys Classic mótsins, sem hófst á Sea Island í Georgíu í dag. Báðir léku þeir á 8 undir pari, 62 glæsihöggum!!! Cauley fékk 8 fugla á skollalausum hring og Dawson fékk 9 fugla og 1 skolla. Boo Weekley, Rod Pampling og Greg Owen deila 3. sætinu á 64 höggum, hver.  Davis Love III Ryder bikars fyrirliði Bandaríkjanna og Camilo Villegas eru síðan tveir af 9 kylfingum sem deila 6. sætinu á 5 undir pari 65 höggum, hver. John Daly er í 87. sæti ásamt 12 öðrum kylfingum á sléttu pari, 70 höggum. Til þess að sjá stöðuna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 23:15

Birgir Leifur í 27. sæti eftir 3. dag úrtöku- mótsins í Mississippi – lék á 68 í dag!!!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefir nú lokið 3. hring á úrtökumóti fyrir PGA Tour, í Lake Caroline Golf Club í Madison, Mississippi (Til þess að komast á heimasíðu golfklúbbsins  SMELLIÐ HÉR: ) Úrtökumótið stendur dagana 16.-19. október 2012. Birgir Leifur er búinn að spila á samtals 208 höggum (69 71 68) og er því á 2 undir pari eftir 3. dag úrtökumótsins.  Hann fékk 3 fugla og 1 skolla í dag. Birgir Leifur deilir 27. sætinu sem stendur með David Suggs frá Flórída. Það eru þeir sem eru í 16. sæti eða jafnir í 16. sæti, sem komast á næsta stig úrtökumótsins og sem stendur verður Birgir Leifur að vinna upp 3 högg því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 23:00

Evróputúrinn: Cañizares og Hendry í forystu eftir 1. dag í Perth

Alejandro Cañizares frá Spáni og Michael Hendry frá Nýja-Sjálandi deila forystu á ISPS Handa Perth International, en mótið hófst í dag í Perth í Ástralíu. „Þetta var góður hringur“ sagði Cañizares m.a. eftir hringinn góða þar sem han fékk 7 fugla í skollafríum hring, „ég var að slá virkilega vel og setti niður nokkur pútt þannig að ég er virkilega ánægður.“ Cañizares og Hendry léku báðir á 7 undir pari, 65 höggum. Í 3. sæti aðeins 1 höggi á eftir er Emiliano Grillo frá Argentínu. Englendingarnir Paul Casey og Andrew Johnston deila 4. sætinu á 5 undir pari, 67 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag ISPS Handa Perth Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Nick O´Hern – 18. október 2012

Það er Nick O´Hern sem er afmæliskylfingur dagsins. O´Hern fæddist 18. október 1971 í Perth, Ástralíu og er því 41 árs í dag. Hann komst í fréttirnar fyrir nákvæmlega viku síðan þegar hann leiddi eftir 1. hring Frys.com Open á 62 höggum 11. október 2012.  Nick ver afmælisdeginum með því að spila á McGladreys mótinu á Sea Island í Georgíu. O´Hern gerðist atvinnumaður 1994 og hefir sigrað 5 sinnum þar af 2 sinnum á PGA Ástralasíu túrnum.  Sem stendur spilar hann á 3 mótaröðum PGA Tour, Evróputúrnum og PGA Ástralasíutúrnum.  Besti árangur O´Hern í risamótum er T-6 árangur á Opna bandaríska 2006. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 16:30

Nýju stúlkurnar á LET 2012 (24. grein af 34): Sahra Hassan

Hér verður fram haldið stuttum kynningum á þeim stúlkum sem komust í gegnum Q-school LET í La Manga fyrr á árinu.  Enn á eftir að kynna 3 af 7 stúlkum  sem deildu 9. sætinu; Liebelei Lawrence, Kendall R. Dye, Charlotte Ellis og Jennie Y Lee hafa þegar verið kynntar og í dag verður Sahra Hassan kynnt og á næstu dögum þær tvær sem þá er enn eftir að kynna þær Elenu Giraud frá Frakklandi og Maríu Beautell frá Spáni. Sahra Hassan er frá Wales. Hún fæddist í Newport í Wales, 13. nóvember 1987 og er því 24 ára.  Þegar Sahra var aðeins 2 ára fóru hún og systur hennar oft Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 13:00

PGA: John Daly reynir enn að bjarga 2013 kortinu sínu á PGA Tour

John Daly spilar í dag á The McGladrey Classic á Seaside golfvellinum í Georgía í tilraun til að bjarga kortinu sínu fyrir 2013 keppnistímabil PGA Tour.  Mikill tími er ekki aflögu til að gera svo því þetta mót er 3. síðasta opinbera mót keppnistímabilsins.  Töfratalan er 125 þ.e. 125. sætið á peningalista PGA Tour en í því sæti situr sem stendur  Billy Mayfair (með $ 612.361 verðlaunafé). Daly er í 141. sæti (með $488,505 í verðlaunafé) og getur náð sér á strik með góðri frammistöðu í mótinu þar sem heildarverðlaunafé er $ 4 milljónir. Seaside golfvöllurinn er par-70 og 6.451 metra að lengd. Sá sem á titil að verja í mótinu Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 11:00

Tiger og Rory spila á Abu Dhabi HSBC Championship í stað Humana Challenge í ársbyrjun 2013

Olíuaurar Mið-Austurlanda heilla! A.m.k. hafa tveir af toppkylfingum heims, Tiger Woods og Rory McIlroy tilkynnt að þeir muni spila í Abu Dhabi HSBC Championship 2013 á Evrópumótaröðinni. Það er í sömu viku og  Humana Challenge í samstarfi við the Clinton Foundation í La Quinta fer fram. Ástæður þess að Tiger tók ekki þátt var í upphafi ferilsins var einhver stirðleiki við mótshaldara bandaríska mótsins, sem þá hét Bob Hope Classic, en síðar þegar úr því leystist hentaði mótið Tiger einfaldlega ekki – því hann vildi ekki spila í 5 daga móti á 4 mismunandi golfvöllum með einhverjum stórstjörnum og áhugamönum – hann var einfaldlega of mikill einvaldur á vellinum þá. Og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State luku leik í 7. sæti á Susie Maxwell Berning Classic mótinu

Valdís Þóra Jónsdóttir, klúbbmeistari GL 2012, Íslandsmeistari í höggleik 2012 og í Bobcats golfliði Texas State lauk í gær leik á hinu 3 daga Susie Maxwell Berning Classic móti í Oklahoma. Mótið stóð dagana 15.-17. október 2012. Spilað var í Jimmie Austin OU Golf Club í Norman, Oklahoma. Þátttakendur voru 96 frá 18 háskólum. Valdís Þóra lék samtals á 13 yfir pari, 229 höggum (74 84 71). Hún var á 4. besta skorinu í liði sínu og taldi það því. Bobcats golflið Texas State og Valdísar Þóru varð í 7. sæti í liðakeppninni ásamt Coastal Carolina (gamla háskólanum hans Dustin Johnson). Næsta mót Valdísar Þóru og Texas State er Alamo Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 06:30

Paul Casey horfir á björtu hliðarnar

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er ISPS Handa Perth International, sem hefst í dag og fer  fram á golfvelli Lake Karrinyup klúbbsins, í Perth, Vestur-Ástralíu. Ef þetta hefði verið árið 2009 hefði Paul Casey verið meðal þeirra, sem taldir hefðu verið sigurstranglegastir – hann var þá nr. 3 á heimslistanum og þeir tveir sem voru í sætunum á undan voru Tiger Woods og Phil Mickelson. Í gær voru markmið hins 35 ára Casey, sem tók þátt  í Pro-Am hluta mótsins í Lake Karrinyup, þau sömu. „Ég vil bara koma hingað og standa mig vel og gefa mér tækifæri til að sigra á sunnudaginn. En ég ætla ekki að gera mikið úr Lesa meira