Birgir Leifur í 27. sæti eftir 3. dag úrtöku- mótsins í Mississippi – lék á 68 í dag!!!
Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefir nú lokið 3. hring á úrtökumóti fyrir PGA Tour, í Lake Caroline Golf Club í Madison, Mississippi (Til þess að komast á heimasíðu golfklúbbsins SMELLIÐ HÉR: )
Úrtökumótið stendur dagana 16.-19. október 2012.
Birgir Leifur er búinn að spila á samtals 208 höggum (69 71 68) og er því á 2 undir pari eftir 3. dag úrtökumótsins. Hann fékk 3 fugla og 1 skolla í dag.
Birgir Leifur deilir 27. sætinu sem stendur með David Suggs frá Flórída. Það eru þeir sem eru í 16. sæti eða jafnir í 16. sæti, sem komast á næsta stig úrtökumótsins og sem stendur verður Birgir Leifur að vinna upp 3 högg því sá sem er síðastur inni skv. skortöflunni í dag á næsta stig úrtökumótsins er samtals búinn að spila á 5 undir pari.
Golf 1 óskar Birgi Leif góðs gengis á morgun!
Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag á úrtökumótinu í Madison, Mississippi SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024